Reykjalundur - 01.06.1961, Side 47

Reykjalundur - 01.06.1961, Side 47
Ferðin var fróðleg, ekki sízt Norðurlanda- fulltrúunum, er fengu þarna glögga mynd af erfiðleikum og bágindum, sem löngu eru úr sögunni hér heima. Bráðabirgðastjórnin hélt svo fund í Köln í apríl 1961. Þar var gengið frá lögum og stefnuskrá fyrir Alþjóðasambandið, er nefn- Oddur Ólafsson. ast skal I.A.S. — Atriði þessi liggja nú fyrir til samþykktar hjá meðlimafélögunum, og mun verða endanlega gengið frá stofnun al- þjóðasambandsins nú í þessum mánuði. Sú breyting var gerð í Köln, að sambandið skyldi ekki eingöngu hafa félög berklaör- yrkja innan sinna vébanda, heldur félög ör- yrkja í sjúkdóma í brjóstholi. Lög og stefnuskrá verða birt í heild síðar. Oddur Ólafsson. Forsíbumyndin er af frú Ingibjörgu Hallgrímsdótt- ur, sem er forstöðukona saumaverk- stœðis Múlalundar. Aðrar kdpumyndir eru af vinnu- stofum í Reykjalundi og Múlalundi. J-Cöfbingleg gjöf I júlí s. I. gáfu hjónin, frú Jóhanna Magn- úsdóttir lyfsali og Óskar Einarsson, fyrrum yfirlæknir, Vinnuheimilinu að Reykjalundi, nýjan hjartalínuritara, hið vandaðasta tæki og svo dýrt að tugum þúsunda króna skiptir. Óskar læknir er heiðursfélagi SÍBS, enda einn af hvatamönnum að stofnun sambands- ins og hefur ávallt síðan verið meðal öfl- ugustu stuðningsmanna þess og náinn vinur. Reykjalundur 45

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.