Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1961, Blaðsíða 9

Húnavaka - 01.05.1961, Blaðsíða 9
Fylgt úr hladi Um leið og rit þetta hefur göngu sína, teljum við rétt að fylgja því úr hlaði, með nokkrum orðum. Tilgangur þess er í stuttu máli sá, að flytja sem fjölbreyttast hún- vetnskt efni til fróðleiks og skemmtunar. Vildum við gjarnan tengja saman fortíð og nútið í efnisvali, ásamt því að horfa fram á veginn, með því að flytja jöfnum höndum þjóðlegan fróðleik, greinar, sögur, kvœði og annað, sem Húnvetningar vilja kama á framfœri. Hugmyndin er, að rit þetta komi út einu sinni á ári á vegum Ungmennasambands Austur-Húnvetninga og sé, eins og nafn þess bend- ir til, tengt frœðslu- og skemmtiviku Húnvetninga, „Húnavökunni“, sem Ungmennasambandið stendur að. Húnavakan var í fyrstu hugsuð sem fræðslu- og skemmtivika. Því miður hefur orðið minna úr frœðsluhlutverki hennar en œskilegt hefði verið. Nú er það von okkar, að þessu litla riti verði vinsamlega tekið og Húnvetningar stuðli að því, að það geti orðið visir að vaxandi frœðslugildi Húnavökunnar, þó að okkur sé Ijóst að því sé í mörgu áfátt og œskilegra hefði verið að prenta það. Kvöldvökurnar i gömlu baðstofunum hér áður fyrr voru í senn menntandi og þroskandi fyrir þjóðina og margir eldri menn minnast þeirra enn með söknuði. Við vildum gjarnan mega óska þess, að svo frjóir verði pennar Hún- vetninga í framtíðinni, að ritið „Húnavaka“ geti orðið sameiginleg kvöldvaka Húnvetninga einu sinni á ári hverju. Við, sem höfum unnið að riti þessu, höfum leitað til margra vel rit- fœrra manna hér í sýslu og beðið þá um efni. Færum við þeim öllum sérstakar þakkir, fyrir góðar og skjótar undirtektir. Það er fyrst og fremst þeim að þakka, að ritið gat komið út og orðið til á svo skömmum tíma sem raun ber vitni. Ennfremur vildum við beina því til allra þeirra, sem hefðu eitthvað í fórum sínum og vilja stuðla að vexti og viðgangi rits þessa í framtíð- inni, að bezti stuðningurinn við ritið er að láta stjórn Ungmennasam- bandsins í té góðar greinar, frásagnir, sögur kvœði eða annað efni. Stefán A. Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Húnavaka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.