Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1961, Blaðsíða 49

Húnavaka - 01.05.1961, Blaðsíða 49
HÚNAVAKA 47 Þúsundir króna og oft tugþúsund fara í kostnað hvert leikár og nettótekjur hafa oft verið litlar. Það er áreiðanlega ósk og von okkar allra að leikstarfsemi megi efl- ast og þroskast hér í framtíðinni til skemmtunar og menningarauka fyrir héraðsbúa. Til þess að það megi verða er fyrsta og aðalskilyrðið það, að hér rísi upp fyrirhugað félagsheimili, með nægilega rúmgóðu leiksviði, búnings- herbergjum og geymslum. Slík breyting á öllurn aðstæðum mundi hvetja uppvaxandi æskufólk og starfandi leikfélaga til stærri átaka. Stærri og fjölbreyttari verkefni yrðu tekin til meðferðar, og þá mundi auðveldara að fá hingað hæfa leikstjóra og tjaldamálara en nú er. Með komu Þjóðleikhússins og síaukinna framfara á sviði leikhús- mála, hafa aukizt kröfur áhorfenda til þeirra, sem halda uppi leik- starfsemi úti á landi, og þessum kröfum er ekki hægt að fullnægja nema með bættum aðstæðum. Húnvetningar hafa alltaf sótt vel leik- sýningar hér á Blönduósi og verið þakklátir fyrir veitta skemmtun. Efa- laust hefur þreyttum leikendum líka fundist það nokkur laun fyrir erfið- ið að fá góðar undirtektir og sanngjarna gagnryni áhorfenda. Þeir, sem lengst hafa unr.ið að þessum málum hér, eru nú senn að hætta. Þeirra mörgu og góðu endurminningar eru tengdar litla leik- sviðinu í gamla samkomuhúsinu og mörgum hugþekkum verkefnum og hlutverkum. Við tekur svo stórhuga æskufólk, sem vonandi starfar á nýju og stærra sviði við betri skilyrði. Megi gæfan fylgja því fólki fram til sigurs. Megi öll verkefni þess mótast í björtu sviðsljósi framtíðarinnar. Á Húnavökunni í ár sýnir Leikfélag Blönduóss sjónleikinn: „Þegar Pétur kemur heim“ sex sinnum. Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. I meira en hálfan fjórða áratug hefir Karlakór Bólstaðarhlíðar- hrepps átt sinn ákveðna þátt í svipmóti félagslífs þessa héraðs. Framan af árum, meðan kórinn var enn á bernskuskeiði, gætti áhrifa hans aðeins að litlu leyti utan sveitarinnar, þar sem vagga hans stóð. En hin síðari árin hefir starfsemi kórsins orðið í æ ríkari mæli sameign héraðsbúa allra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Húnavaka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.