Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1961, Blaðsíða 54

Húnavaka - 01.05.1961, Blaðsíða 54
52 HÚNAVAKA skógrækt og í því sambandi gróðursettar nokkur þúsund trjáplöntur úti í Hrútey á sl. sumri. Rætt hefur verið um að koma hér upp tómstunda- heimili, og tillaga hefur komið fram um það, að bæta úr og efla áhuga fyrir betri og snyrtilegri umgengni utan húss í héraðinu með þvi að veita verðlaun fyrir snyrtimennsku og góða umgengni á hverju ári. En ótalið er þó stærsta málið, sem allmikið hefur verið rætt, sem sé það að koma upp sundlaug hér á staðnum. Er hér um að ræða hið mesta nauð- synja- og framfaramál, sem verður að leysa hið allra fyrsta. Hefur innan klúbbsins verið kjörin sérstök nefnd til þess að vinna að málinu, gera raunhæfar tillögur þar að lútandi og stuðla að því, að framkvæmdir geti hafizt svo fljótt, sem verða má. Að lokum mætti geta þess, að nokkr- ir klúbbfélagar hafa komið upp undirstöðu að útsýnisskífu uppi á Háu- brekku, hér innan við kauptúnið, og mun það verk fullgert á næsta sumri. Þá hefur einn af stofnendunum, sem nú er fluttur burtu, Páll V. G. Kolka fyrrverandi héraðslæknir, afhent klúbbnum til varðveislu all- merkilegt myndasafn, sem hugmyndin er að flokka og bæta við, svo að úr geti orðið skemmtilegt safn, sem geyma á myndir af sem allra flestum Húnvetningum, húsakosti þeirra, atvinnutækjum o. fl. Eins og áður er sagt, koma klúbbfélagar saman einu sinni í hverjum hálfum mánuði, drekka saman kvöldkaffi og ræða áhugamál sín. Lögð hefur verið áherzla á það, að allir meðlimirnir taki þátt í störf- um klúbbsins, taki þátt í umræðum og flytji sjálfir erindi um ýmis konar efni. Klúbbfélagar eru nú 25 og hefur fundarsókn, það sem af er starfs- árinu, verið mjög góð, eða milli 90 og 100%, sem sýnir ljóslega að áhugi er fyrir hendi. Núverandi stjórn skipa þeir: Jósafat Sigvaldason, formaður; Stefán Á. Jónsson, ritari; Sveinn Ell- ertsson, gjaldkeri. Siðameistari er Jón S. Baldurs, strangur mjög, en réttsýnn, og sektar félaga miskunnarlaust fyrir hin minnstu brot. Að endingu þetta: Lionsklúbbar eru ekki gleðisamkomur broddborgara eins og stundum hefur heyrst, heldur félagsskapur manna frá flestum starfsstéttum, sem vilja vinna saman, utan við flokks- eða trúarofstæki, að sem flestum velferðarmálum með kjörorð sitt við hún: Þjónið öðrum. Hermann Þórarinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Húnavaka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.