Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1961, Page 47

Húnavaka - 01.05.1961, Page 47
TOMAS R. JONSSON: Litiö til baka Sýningar á leikritum eftir innlenda og erlenda höfunda er nú orð- inn stór þáttur í skemmtanalífi fólksins um allt land. Hér á Blönduósi mun leikstarfsemi hafa verið fyrir og um síðustu aldamót og til ársins 1906. Arið 1923 er þessi starfsemi hafin á ný af nokkrum áhugamönn- um og 1926—27 er stofnað leikfélag sem starfar til 1930. Stærsta verk- efni þess var Skugga-Sveinn og titilhlutverkið lék Hinrik Berndsen, en leikstjóri var Kristján Arinbjarnar héraðslæknir. Gamla ungmennafélagið Hvöt var stofnað 1923. Nokkrir af meðlim- um þess voru einnig leikfélagar. Þegar svo leikfélagið hættir störfum 1930 tekur ungmennafélagið leiksýningar á starfsskrá sína og sýnir eitt stórt leikrit á hverjum vetri. Flest voru þessi leikrit útlendir gamanleikir, eftir Arnold og Bach og fleiri höfunda. Tengdamamma eftir Kristínu Sigfúsdóttur var og sýnd. Ungmennafélagið hættir störfum 1942, en nokkrir meðlimir þess stofna Leikfélag Blönduóss árið 1944. Stofnendur voru 10 að tölu og fyrsta verkefnið var Ráðskona Bakkabræðra. Helztu verkefnin undan- farin ár eru: Ævintýri á gönguför, Orrustan á Hálogalandi, Leynimel- ur 13, Þrír skálkar, Þorlákur þreytti, Franska ævintýrið, Fómarlambið og Svefnlausi brúðguminn. Þó hafa verið sýnd íslenzk leikrit, svo sem Maður og kona, Hallsteinn og Dóra, Lénharður fógeti og Skugga- Sveinn, en hann var leikinn 1954 og fór Þorvaldur Þorláksson með titil- hlutverk. Þar fóru einnig með hlutverk, Tómas R. Jónsson og Bjarni Einarsson, en þeir léku einnig í Skugga-Sveini 1928. Þeir sem lengst hafa starfað hér við leiksýningar og farið með hlut- verk eru: Bjarni Einarsson í 38 ár, Tómas R. Jónsson 35 ár og Margrét Jónsdóttir 26 ár.

x

Húnavaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.