Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1961, Blaðsíða 39

Húnavaka - 01.05.1961, Blaðsíða 39
HÚNAVAKA 37 segir frúin, „þér gerið svo vel að koma inn til mín og þiggja eitt glas af víni, — eigið svo sem fyrir því, fyrir alla hjálpina og fylgdina hingað heim.“ Það kom hik á mig. — Þetta var alveg ljómandi falleg kona, að slepptum fótaburðinum. Ellegar þá viðmótið núna! Það gat brugðið til beggja vona með freistinganna mótslöðu hjá mér jjótt blóðfjörið hefði ögn dvínað frá tvítugu. Ef ég færi nú að ganga til stofu með henni og súpa vín — já — þá gat svo sem skeð að ekkisen syndaartin næði tökum á mér, hver gat nokkuð ábyrgzt um það, — þó ég eigi konu heima — ágæta konu. Þrátt fyrir allar vangavelturnar hrökk samt út úr mér. „Takk, en er maðurinn yðar ekki heima.“ Hún brosti dálítið skrítilega til mín og sagði: „Er kannski beygur í yður að líta inn hans vegna? Nei, maðurinn minn er ekki heima og kemur ekki heim í bráð.“ „Geigur i mér? Nei, það er aldrei geigur í stórbændum. Þakka yður fyrir frú, ég tek boði yðar.“ Frúin gekk á undan mér inn í rúmgóða forstofu og þaðan inn í rafljómaða fjaðrasófastofu, með ljómandi málverkum um alla veggi. Hún leit brosandi til mín og benti mér til sætis í drepmjúkan stól, hvar ég tyllti mér. Með mjúkri höfuðhneigingu gekk hún að hnjám mér og sagði: „Afsakið mig augnablik, meðan ég næ okkur í hressingu. Þjónustu- stúlkan er ekki við.“ „Takk,“ varð mér að orði, en hugsaði á þá leið, að héðan af yrði nú að skeika að sköpuðu með hve vel ég stæði á svell- inu. Frúin sveif út úr stofunni með dísanna dúnmýkt í hverri hreyfingu, — ég leit ekkert á fæturna — neðst. Eftir sat ég einn, tók upp rauðan vasaklút og snýtti mér, því að ég tek ögn í nefið. Brá síðan greiðu í hár mitt. Hún skvldi ekki geta hugsað eða sagt að ég væri sóðalegur, né það, sem Reykvíkingar kalla bónzkur eða sveitó, og fínfataður var ég. Bráðlega kom svo frúin inn með koníaksflösku og tvö glös á ákaflega fínum bakka, hellti í bæði glösin full, lyfti síðan sínu með fagurri arm- hreyfingu. Ég greip til míns glass, rétti til móts við frúarglasið og sagði: „Skál fyrir fögrum konum.“ „Já, skál fyrir norðlenzkum stór- bændum,“ sagði frúin og kinkaði kolli til min, saup djúpt borð á glas sitt, en ég minna. „Ég er nú ekki vanur að láta mikið ofan í mig af svona,“ sagði ég. „Nú, hvað drekkið þið þá þarna fyrir norðan, — ekki þó Svartadauða,11 sagði frúin. „Nei, Svartidauði 'sést ekki þar. Ég drekk nú eiginlega aldrei nema jjegar ég er sveittur, og þá drekk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Húnavaka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.