Húnavaka - 01.05.1961, Síða 9
Fylgt úr hladi
Um leið og rit þetta hefur göngu sína, teljum við rétt að fylgja því
úr hlaði, með nokkrum orðum.
Tilgangur þess er í stuttu máli sá, að flytja sem fjölbreyttast hún-
vetnskt efni til fróðleiks og skemmtunar. Vildum við gjarnan tengja
saman fortíð og nútið í efnisvali, ásamt því að horfa fram á veginn, með
því að flytja jöfnum höndum þjóðlegan fróðleik, greinar, sögur, kvœði
og annað, sem Húnvetningar vilja kama á framfœri.
Hugmyndin er, að rit þetta komi út einu sinni á ári á vegum
Ungmennasambands Austur-Húnvetninga og sé, eins og nafn þess bend-
ir til, tengt frœðslu- og skemmtiviku Húnvetninga, „Húnavökunni“,
sem Ungmennasambandið stendur að.
Húnavakan var í fyrstu hugsuð sem fræðslu- og skemmtivika. Því
miður hefur orðið minna úr frœðsluhlutverki hennar en œskilegt hefði
verið. Nú er það von okkar, að þessu litla riti verði vinsamlega tekið
og Húnvetningar stuðli að því, að það geti orðið visir að vaxandi
frœðslugildi Húnavökunnar, þó að okkur sé Ijóst að því sé í mörgu
áfátt og œskilegra hefði verið að prenta það. Kvöldvökurnar i gömlu
baðstofunum hér áður fyrr voru í senn menntandi og þroskandi fyrir
þjóðina og margir eldri menn minnast þeirra enn með söknuði.
Við vildum gjarnan mega óska þess, að svo frjóir verði pennar Hún-
vetninga í framtíðinni, að ritið „Húnavaka“ geti orðið sameiginleg
kvöldvaka Húnvetninga einu sinni á ári hverju.
Við, sem höfum unnið að riti þessu, höfum leitað til margra vel rit-
fœrra manna hér í sýslu og beðið þá um efni. Færum við þeim öllum
sérstakar þakkir, fyrir góðar og skjótar undirtektir. Það er fyrst og
fremst þeim að þakka, að ritið gat komið út og orðið til á svo skömmum
tíma sem raun ber vitni.
Ennfremur vildum við beina því til allra þeirra, sem hefðu eitthvað
í fórum sínum og vilja stuðla að vexti og viðgangi rits þessa í framtíð-
inni, að bezti stuðningurinn við ritið er að láta stjórn Ungmennasam-
bandsins í té góðar greinar, frásagnir, sögur kvœði eða annað efni.
Stefán A. Jónsson.