Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1961, Page 10

Húnavaka - 01.05.1961, Page 10
HALLDÓR JÓNSSON, Leysingjastöðum: Tvær smámyndir Á VORI. Á bláum himni sigla silfurský, sólgullið flæðir yfir höf og lönd. Blíðlega strýkur blómin gola hlý, bárurnar faðma lága og sendna strönd. Upplyftum höndum ung og fögur mær unaði dagsins tjáir sína þrá. Ó, kom þú gleði, komdu til mín nær, kyssið þið sól og vindur mína brá. UM ÁGÚSTKVÖLD. Aftanninn blækyrr, angandögg á rós, óminnishöfgi sígur yfir byggðir. Til viðar gengur dagsins dýra ljós og deginum hefur nóttin svarið tryggðir. Að austan rennur blakki um heiðis brún, blika á efstu tindum röðulglóðir. Um suðurhimin ristir blika rún, í rauðagulli funa norðurslóðir. Við himinskraut og heiða kvöldsins ró, hugur minn dvelur, nýtur sólarlagsins. Höfugt af trega hljómar kvak úr mó, — hreimfagurt kveðjustef til liðins dagsins.

x

Húnavaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.