Húnavaka - 01.05.1961, Page 15
HÚNAVAKA
13
ingar og trúði á handleiðslu Guðs, munaðarlítill, hinn ískalda vordag á
Höskuldsstöðum 1881.
í Saurbæ við Hvalfjörð, stendur kirkja séra Hallgríms Péturssonar,
þar sem hann dvaldi í mörg ár eftir langa og starfsama ævi, og vann þar
sín andlegu afrek. Handan Saurbæjarhlíðar er kapella séra Friðriks Frið-
rikssonar, í Vatnaskógi, þar sem hann starfaði sem húsþjónn drottins
með kærleik til allra sinna meðbræðra.
ÞORSTEINN MATTHÍASSON:
LÍTIÐ LJÓÐ
Er stjörnublik á bláum himni loga
og bjarma slær á fjallsins Ijósa traf,
er kvikul alda leikur létt um voga
og ljómar sólin björt við norðurhaf.
Svo, þegar vindar þýtt við björkum blaka
og bæra vorsins mjúka hörpustreng.
H\æ ljúft í muna minningarnar vaka,
um margt er áður gladdi sveitadreng.
Er ljúfur blærinn leikur þýtt að greinum
og léttar bárur kyssa bjartan sand,
á sumarkvöldi segir fátt af einum,
er sárum fótum treður Norðurland.
Er daggartárin drjúpa af dökku lyngi
og draumsins bjarma er vafin byggðin öll.
Þá svífur væran svefn að Húnaþingi,
en sólarglóðin roðar Strandafjöll.