Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2015, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.6. 2015
Heimili og hönnun
Stærð: 305x215 cm.
Dökkgrátt slitsterkt áklæði.
Hnakkapúði ekki innifalinn í verði.
ÚTSALA
Sumar3
259.990
FULLTVERÐ: 379.990
KRÓNUR
ALENYA hornsófi 3H2/2H2
HÚSGAGNAHÖLLIN • B í l d s h ö f ð a 2 0 • R e y k j a v í k • OP I Ð V i r k a d a g a 1 0 - 1 8 , l a u g a r d . 1 1 - 1 7 o g s u n n u d . 1 3 - 1 7
MIDLAND tungusófi
ÚTSALA
Sumar3
279.990
FULLTVERÐ: 449.990
KRÓNUR
Brúnt microfiber áklæði.
B: 280 D:170 H: 95 cm.
Hægri eða vintsri tunga.
Róttækir frumkvöðlar
hönnunarheimsins
ÞÆR ERU MARGAR, KONURNAR SEM SKARAÐ HAFA FRAM ÚR Í HÖNNUNARHEIMINUM.
NOKKRIR AF MERKUSTU HÖNNUÐUM HEIMSINS ERU KONUR EN HÖNNUNARHEIM-
URINN VAR ÁÐUR, EINS OG Í SVO MÖRGUM STÉTTUM, ÁKAFLEGA KARLLÆGUR.
HÉR ERU RIFJUÐ UPP NOKKUR HELSTU NÖFN ÞEIRRA KVENNA SEM HAFT HAFA
GÍFURLEG ÁHRIF Á HEIM HÖNNUNAR.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Eileen Gray
Vivienne Westwood (1941-)
Einn róttækasti fatahönnuður fyrr og síðar er
pönkgyðjan Vivienne Westwood. Hippatímabilið
var allsráðandi í London í lok sjöunda ára-
tugsins. Westwood hafði ekki áhuga á slík-
um fatnaði og hóf að hanna nokkurs konar
mótvægi eða uppreisnarkenndan fatnað
og opnaði verslunina Let it Rock við
Kings Road. Westwood vann á þessum tíma, í
byrjun áttunda áratugarins, mikið með „biker“-
föt, rennilása og leður. Hún er frumlegur hönn-
uður sem fer sínar eigin leiðir og hefur haft
gífurleg áhrif á tískuheiminn eins og hann
leggur sig og er einnig mjög pólitísk í starfi
og hugsun.
AFP
Húsið E-1027 stendur
við strendur Cape
Martin í Frakklandi.
Hliðarborðið E1027
sem Gray hannaði er
enn í framleiðslu
ásamt Bibendum-
stólnum.
Phyllis Pearsall (1906-1996)
Listamaðurinn Phyllis Pearsall vann átján
tíma á dag þar sem hún gekk 3.000 mílur
um götur Lundúna þar sem hún hannaði og
framleiddi A-Z götuatlas borgarinnar. Hún
stofnaði fyrirtæki, Geographers’ Map
Company, til þess að geta gefið út götu-
atlasinn sem enn er notaður og er eitt
snjallasta dæmi upplýsingarhönnunar 20 .
aldarinnar.
AFP
Úr sumarlínu
Vivienne
Westwood
2015.
Eileen Gray (1878-1976)
Írski listmaðurinn, húsgagnahönnuðurinn og arkitektinn Eileen Gray er í flokki merkustu hönnuða og arkitekta
20. aldarinnar og hefur verið talin ein af áhrifamestu konum þess tíma.
Meðal þekktustu verka hennar eru borðið E1027 og Bibendum-stóllinn, sem Gray nefndi eftir Michelin-
manninum, stóllinn er hannaður í módernískum stíl. Grey fékk áhuga á arkitektúr og hóf, árið 1924, að vinna að
húsi sem ber heitið E-1027 og fékk ráðleggingar frá þáverandi ástmanni sínum, Jean Badovici, en húsið átti að
vera afdrep fyrir parið. E-1027 er staðsett í Roquebrune-Cap-Martin í Suður-Frakklandi. Grey hannaði að auki
húsgögnin í húsið.