Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2015, Qupperneq 41
21.6. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Háskóla Íslands, fyrst kvenna. Hún
kenndi lífeðlisfræði við tann-
læknadeild til ársins 1961.
1957 Hulda Jakobsdóttir verður
bæjarstjóri í Kópavogi og gegndi
því embætti til 1962. Hún varð
fyrst kvenna til að gegna bæjar-
stjóraembætti á Íslandi.
1958 Sett jafnlaunalög. Sérstakir
kvennataxtar skyldu hverfa úr
samningum verkalýðsfélaga næstu
sex árin.
1959 Auður Auðuns verður
borgarstjóri í Reykjavík fyrst
kvenna.
1960 Selma Jónsdóttir listfræð-
ingur, ver doktorsritgerð við Há-
skóla Íslands, fyrst kvenna.
1966 Ferðin til Limbó eftir Ingi-
björgu Jónsdóttur er fyrsta leikrit
eftir íslenska konu sem sýnt er í
Þjóðleikhúsinu.
1967 Róska, Ragnhildur Óskars-
dóttir, er fyrsta konan sem sýnir
myndlist á vegum SÚM.
Getnaðarvarnarpillan tekin á lyfja-
skrá.
1969 Margrét G. Guðnadóttir
skipuð prófessor við læknadeild
Háskóla Íslands. Margrét varð þar
með fyrst kvenna til að gegna
embætti prófessors við háskólann.
1970 Auður Auðuns lögfræðingur
verður fyrst kvenna ráðherra í
ríkisstjórn Íslands þegar hún tók
við embætti dóms- og kirkju-
málaráðherra.
Fyrsti opinberi leikurinn í knatt-
spyrnu kvenna haldinn. Lið frá
Keflavík og Reykjavík mættust í
forleik að karlalandsleik Íslands og
Noregs.
Rauðsokkahreyfingin stofnuð 4.
október. Rauðsokkar tóku þátt í 1.
maí göngu verkalýðsins þetta ár og
vöktu mikla athygli
1972 Auður Þorbergsdóttir
skipuð borgardómari í Reykjavík,
fyrst kvenna.
1973 Dóra Hlín Ingólfsdóttir og
Katrín Þorkelsdóttir eru fyrstu Auður Auðuns var fyrsta konan sem varð borgarstjóri og ráðherra.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Það er óhætt að segja að Sig-ríður Erlendsdóttir veitýmislegt um íslenskar kon-
ur en hennar sérgrein sem há-
skólakennari var kvennasaga. Sig-
ríður var heimavinnandi húsmóðir
með fjögur börn áður en nám og
kennsla tók við. Hún hefur lifað
mikla breytingatíma á sinni ævi
og séð framfarir í jafnrétt-
ismálum.
Framsýnar mennta-
skólastúlkur
Sigríður gekk í Menntaskólann í
Reykjavík og voru þær 33 stúlkur
sem luku stúdentsprófi af hundrað
nemum. „Við vorum nokkuð fram-
sýnar. Nokkrar af mínum bekkj-
arsystrum náðu langt og sumar
ruddu brautina,“ segir hún, en í
hennar útskriftarhópi voru marg-
ar kjarnakonur eins og Vigdís
Finnbogadóttir forseti, Svava Jak-
obsdóttir rithöfundur, Margrét
Guðnadóttir, fyrsti kvenprófessor
við Háskóla Íslands, og Ragnhild-
ur Helgadóttir alþingismaður. Sig-
ríður segir að þær stöllur hafi
stofnað félag í menntaskóla sem
hét Málfundafélag stúlkna því
þeim fannst strákarnir í málfunda-
félaginu Framtíðinni tala of mikið
um stjórnmál. Þær vildu ræða
meira um bókmenntir og listir.
„Við héldum fundi og svo héldum
við eina dansæfingu þar sem
strákarnir máttu ekki bjóða upp,
bara við stelpurnar,“ segir hún. Á
þessum tímum var ekki algengt að
konur færu í háskólanám. „Við
stelpurnar vorum ekkert of mikið
að hugsa um framhaldsnám, það
voru frekar strákarnir sem sáu
tækifærin í verkfræðinni og raun-
greinunum,“ segir hún. „Fimm
stúlkur úr mínum árgangi völdu
stærðfræðideild sem þótti mjög
óvenjulegt og voru þær kallaðar
inn til rektors. Hann spurði þær
hvort þær gerðu sér grein fyrir
hvað þær væru að gera,“ segir
hún og brosir því á þeim tíma áttu
stúlkur að fara í máladeild og síð-
an var búist við að þær yrðu
heimavinnandi húsmæður.
Fjögur börn á níu árum
Eftir menntaakóla fór Sigríður í
háskóla að nema frönsku og ensku
en svo fór lífið að snúast um börn
og bú. „Ég gifti mig 23 ára og
eignaðist fjögur börn á níu árum
og var mjög störfum hlaðin. Ég féll
inn í þessa mynd sem var búist við
af konum af minni kynslóð. Það
var raunverulega litið á starf fyrir
giftingu eins og tímabundið starf,“
segir Sigríður sem telur fjölskyld-
una það dýrmætasta af öllu.
Verkaskiptingin á heimilinu var
hefðbundin þar sem hún var
heimavinnandi en eiginmaðurinn
tók alltaf þátt í uppeldi barnanna.
Í seinni tíð hafa þau bæði séð um
heimilisstörfin. „Tímarnir breytast,
og nú gerum við allt í góðri sam-
vinnu,“ segir hún.
Rétturinn til menntunar
Bækur vinkonu hennar, Svövu Jak-
obsdóttur, höfðu mikil áhrif á Sig-
ríði og telur hún að þær hafi haft
áhrif á kvenréttindabaráttuna. „Ég
tel að hún hafi rutt brautina með
skrifum sínum,“ segir hún. Margt
fleira hefur skipt máli í baráttunni
í gegnum árin. „Mér finnst hlustað
á raddir kvenna í dag, en það hef-
ur ekki alltaf verið gert,“ segir
hún. Sigríður telur það mikilvægt
þegar sett voru lög árið 1915 um
kosningaréttinn en nefnir fleira
sem hafi skipt sköpum. „Það voru
önnur réttindi sem konur fengu
1911, rétturinn til menntunar, emb-
ætta og skólagöngu sem mér hefur
alltaf þótt einn mikilvægasti rétt-
urinn. 1904 kom fyrst rétturinn til
skólagöngu en svo 1911 til allra
embætta,“ segir hún en það var
Bríet Bjarnhéðinsdóttir sem kom
þessu til leiðar.
Lítið af konum í mann-
kynssögunni
Eftir að hafa komið fjórum börnum
til manns fór Sigríður í sagnfræði
sem hafði verið gamall draumur
hjá henni. Þegar hún hafði lokið
sagnfræðinámi vantaði kennara til
að kenna kvennasögu. „Ég var rétt
kona á réttum stað á réttum tíma.
Það voru þá kröfur innan sagn-
fræðinnar að kenna kvennasögu, í
kringum 1980, og ég var sú eina
sem hafði lokið meistaraprófi og
skrifað um konur og þannig varð
það að ég fékk að kenna,“ segir
Sigríður. „Það var lengi vel svo lít-
ið af konum í sögunni og mig lang-
aði svo að vita meira um þær og
koma konum inn í mannkynssög-
una,“ segir hún og fannst henni
starfið ákaflega skemmtilegt.
Kvenréttindi eru
mannréttindi
Sigríður átti afar framsýna for-
eldra sem studdu hana og systur
hennar dyggilega. „Ég er alin upp
við að kvenréttindi eru mannrétt-
indi. Pabbi var sjómaður og
mamma var höfuð fjölskyldunnar
og hún innprentaði okkur að við
gætum gert það sem við vildum
gera,“ segir hún. Jafnréttismál
voru ekki rædd á æskuheimili Sig-
ríðar. „Það var ekki talað í gamla
daga eins og er talað núna, það var
ekki verið að ræða opinskátt um
hluti. En það voru margar sterkar
konur í minni fjölskyldu og þetta lá
bara í loftinu,“ segir hún. Verka-
skiptingin hjá foreldrum hennar
var mjög hefðbundin eins og gefur
að skilja, enda faðir hennar mikið
að heiman. „Mamma sá um allt,
var húsmóðir og sá um fjármálin
eins og sjómannskonur gerðu,“
segir hún. „Pabbi var framsýnn
maður og hafði metnað fyrir dætur
sínar,“ segir Sigríður. Þær eru
þrjár systurnar en bróðir þeirra
lést ungur.
Ræðir brjóstabyltingu
við barnabörnin
Sigríður telur margt hafa áunnist i
réttindabaráttu kvenna en annað
megi enn bæta. „Verst finnst mér
með launamálin, að ennþá þurfi að
berjast fyrir því. Þetta ætti að hafa
verið komið í gegn fyrir löngu.
Mér finnst mjög gott að konum
hafi fjölgað á Alþingi og hvað kon-
ur hafa menntað sig mikið. Ég
held að menntun sé besta leiðin
fyrir konur að geta átt sjálfstætt
og gott líf og notið sín,“ segir hún.
Sigríður ræðir gjarnan um jafn-
rétti við barnabörnin. „Ég reyni að
vera ekki með fordóma,“ segir Sig-
ríður en viðurkennir að hún sé
ekki endilega alltaf sammála öllu.
„Mér blöskrar stundum skoðanir
þessara ungu femínista, það er
stundum sem ég sætti mig ekki við
þær skoðanir,“ segir Sigríður og
segist hafa rætt brjóstabyltinguna
svokölluðu við eitt barnabarnið,
sem er ung kona á tvítugsaldri og
hlustað á hennar skoðanir um þau
mál.
Sigríður leggur áherslu á að það
sé alltaf gott að jafnréttismál séu
rædd og ekki síður mikilvægt að
hafa karlmenn með í jafnréttisbar-
áttunni. „Ég vil vinna með ungum
konum og einnig með ungum körl-
um. Ég er hlynnt því á allan hátt
að hafa karlmenn með í barátt-
unni,“ segir hún. Sigríður segir að
margt hafi áunnist með árunum
sem ekki megi gleymast en sem
unga kynslóðin í dag tekur sem
sjálfsögðum hlut. „Við eigum kon-
um skuld að gjalda, við eigum að
muna eftir þeim og mér finnst frá-
bært að minnast þessara kosninga-
réttinda,“ segir hún og bætir við,
„það vekur upp löngun til að vita
meira, um fortíð kvenna, en líka
um karla, við megum ekki gleyma
því að þeir hafi verið miklir liðs-
menn kvenna í réttindabaráttunni.“
Eigum konum skuld að gjalda
„Ég held að menntun sé besta leiðin fyrir konur til að geta átt sjálfstætt og gott líf og notið sín,“ segir Sigríður Theodóra.
Morgunblaðið/Ásdís
SIGRÍÐUR THEODÓRA ERLENDSDÓTTIR 85 ÁRA
SIGRÍÐUR THEODÓRA ERLENDSDÓTTIR VAR ÓVENJU
FRAMSÝN SEM UNG KONA. HÚN HEFUR ÁVALLT HAFT
ÁHUGA Á MÁLEFNUM KVENNA OG JAFNRÉTTISMÁLUM.
HÚN KENNDI KVENNASÖGU VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is