Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 37

Læknablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 37
LÆKNAblaðið 2015/101 593 Þessa spurningu glímdu ráðstefnugestir við á ráðstefnu um þjónandi forystu sem haldin var á Bifröst í septembermánuði síðastliðnum. Spurningin er um margt forvitnileg að mínu viti og þeir sem hafa áhuga geta með aðstoð leitarvélarinnar Google kynnt sér niðurstöður úr sam- tölum hópa á ráðstefnunni. Nú gætu lesendur einnig hugsað með sér hvers vegna í ósköpunum ég er að velta þessari spurningu upp hér á síðum Læknablaðsins. Ég held að hugsunin um foringjann sem er aleinn og ískalt á toppnum á valdapíra- mídanum sé ekki í samræmi við kröfur nútímans um stjórnarhætti í heilbrigðis- þjónustu. Hugsunin um alræðisvald yfir peðunum sem eiga að afkasta sem flestu á færibandinu eins og í dósaverksmiðju gengur ekki upp í þjónustu við misveika einstaklinga sem eiga kannski allt sitt og sinna undir því að vel takist til. Frústr- eraður og útpíndur starfsmaður á ekki mikið eftir til að gefa af sér, hann er búinn með súrefnið sitt og á ekkert aflögu. Hann reynir bara að hlaupa eins hratt og hann getur og ef hann hrasar, er það þá honum að kenna eða stjórnandanum sem lætur færibandið ganga svo hratt að starfsmaðurinn hefur ekki undan? Stjórnandinn á toppnum er ekki sá sem veit allt best um hvað þarf og hvað er rétt við aðstæðurnar sem skapast á gólfinu. Þetta á alveg sérstaklega við í samskiptum við veikt fólk. Vissulega eigum við öll margt sameiginlegt en hver og einn skjól- stæðingur er sérstakur og aðstæður hans eru einstakar. Það þekkir enginn betur en sá sem sinnir viðkomandi mest. Þegar leitað er til okkar í heilbrigðisþjónustunni er ekki verið að kaupa fjöldaframleiddan dósamat úr lúgusjoppu. Skjólstæðingurinn er að leita til fagmanns með áralangt nám að baki og iðulega áratugareynslu og jafn- vel áralanga þekkingu á nákvæmlega þessum einstaklingi, fjölskyldu hans og aðstæðum eins og oft er í heilsugæslunni. Stjórnendur í heilbrigðisþjónustu verða að gera sér grein fyrir þessu og átta sig á því að það er ekki hægt að skipta fólki út eins og tannhjóli í vél. Þeir verða að skilja að auður „fyrirtækisins“ felst í þekkingu og reynslu fagmannsins sem „viðskipta- vinurinn“ leitar til með sín mál. Það er starfsfólkið, fagmennirnir á gólfinu, sem eru sérfræðingarnir og hinir sönnu stjórnendur og leiðtogar. Hlutverk þess sem formlega kallast stjórnandinn er því einungis að skapa aðstæður og umhverfi fyrir fagmennina til að sinna störfum sínum sem best og þá gerast kraftaverkin sem við verðum sem betur fer svo oft vitni að í daglegu amstri okkar. Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í Þorbjörn Jónsson, formaður orri Þór ormarsson, varaformaður Björn Gunnarsson, gjaldkeri Magdalena Ásgeirsdóttir ritari Arna Guðmundsdóttir Hildur Svavarsdóttir Magnús Baldvinsson Tinna Harper Arnardóttir Þórarinn Ingólfsson Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Stjórn lÍ Er tími frekjuhundsins liðinn? Hildur Svavarsdóttir heimilislæknir heilsugæslustöðinni Hvammi hildursvavarsdottir@hotmail.com 1) Brintellix (vortioxetín) samantekt á eiginleikum lyfsins, sjá www.serlyfjaskra.is. 2) Katona C et al. Int Clin Psychopharmacol. 2012; 27(4): 215-223. 3) McIntyre RS et al. Int. J. Neuropsychopharmacology 2014 doi:10. 1017/S1461145714000546. 4) Alvarez E et al. Int J Neuropsychopharmacol. 2012; 15(15): 589-600. 5) Baldwin DS et al. Eur Neuropsychopharmacol. 2012; 22(7): 482-491. 6) Boulenger JP et al. J Psychopharmacol. 2012; 26(11): 1408-1416. IS -B R IN -2 01 4. 11 -0 00 01 50 4 Brintellix® (vortioxetín) – nýtt þunglyndislyf með fjölþætta verkun til meðferðar á alvarlegum þunglyndisköstum hjá fullorðnum1 Verkunarháttur1 Brintellix (vortioxetín) er nýtt þunglyndislyf með fjölþætta verkun. Verkun1 Verkun Brintellix (vortioxetín) hefur verið rannsökuð samkvæmt klínískri áætlun með fleiri en 6.700 sjúklingum. Vitsmunaleg færni2,3 Brintellix (vortioxetín) bætir vitsmunalega færni marktækt samanborið við lyfleysu hjá sjúklingum með alvarlegt þunglyndi (MDD). Þolanleiki1,4,5,6 Brintellix (vortioxetín) þolist vel. Skammtar1 Upphafs- og viðhaldsskammtur Brintellix (vortioxetín) er 10 mg einu sinni á dag fyrir fullorðna yngri en 65 ára. NÝJU NG Vistor hf Hörgatún 2 210 Garðabær Er búinn að opna lækningastofu í Lækningu, Lágmúla 5, Reykjavík Sérgrein: bæklunarskurðlækningar. Tímapantanir í síma 590 9200 Brynjólfur Y. Jónsson dr med. Læknanr 0477
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.