Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 7
LÆKNAblaðið 2015/101 563 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Starfstækifæri lækna liggja víða, innan lands og utan. Fjöldi útskrifaðra lækna skiptir í raun litlu máli; ungir læknar munu ekki velja að starfa hér á landi nema kjör og starfsumhverfi verði sambærileg við það sem tíðkast í nágrannalöndum. Í al- þjóðlegum samanburði hafa innviðir heil- brigðiskerfisins á Íslandi verið vanræktir mjög lengi og þarfnast verulegrar fjárfest- ingar eigi heilbrigðisþjónustan að ráða við vaxandi verkefni sín á næstu árum.1 Nýr kjarasamningur kveikti vonir í brjóstum margra um að fleiri læknar myndu snúa aftur heim til starfa. Það hefur gengið eftir í sumum sérgreinum en alls ekki öllum og heilbrigðisþjónusta hér á landi stendur víða tæpt um þessar mundir vegna skorts á sérfræðilæknum. Þá er óásættanlegt að kostnaðarauki vegna vakta lækna á Land- spítala frá og með 1. janúar 2016 í nýjum kjarasamningi sé ekki enn fjármagnaður af ríkinu nema að hálfu leyti. Samkvæmt útreikningum hagdeildar Landspítala og lækna í samninganefnd Læknafélags Ís- lands verður kostnaðurinn að minnsta kosti tvöfalt meiri en þær 400 milljónir sem spítalanum hefur verið úthlutað vegna þessa liðar samninganna. Nýlega mætti formaður fjárlaganefndar á opinn fund með læknum á Landspítala og fullyrti að kjarasamningurinn yrði fjármagnaður að fullu. Nú ríður á að hún standi við orð sín fyrir lok fjárlagagerðar í desemberbyrjun. Skynsamlegt væri að formaðurinn kallaði þegar eftir útreikningum samninganefnd- ar ríkisins svo að Alþingi geti látið yfirfara þá. Önnur leið væri að biðja Ríkisendur- skoðun um að fara yfir málið. Enn skeikar mörg hundruð milljónum þrátt fyrir óbil- gjarna kröfu framkvæmdastjórnar Land- spítala um breytingar á vaktalínum og yfir- vinnu í sparnaðarskyni með tilheyrandi launalækkun lækna um næstu áramót. Ljóst er að verði fyrirsjáanleg útgjöld vegna þessarar reiknivillu ekki bætt í fjárlögum þá þarf að skerða þjónustu spítalans. Verði það ekki gert er óhjákvæmilegt að kostn- aður við nauðsynlega vaktþjónustu mun leiða til rekstrarhalla. Nýleg ákvörðun ríkissaksóknara um að kæra hjúkrunarfræðing fyrir manndráp af gáleysi er þó líklega mesta öryggisógn sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna hér á landi um þessar mundir. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var hjúkrunarfræðing- urinn að sinna störfum sínum á gjörgæslu undir gífurlegu álagi á langri aukavakt. Ákvörðunin grefur undan öryggismenn- ingu sem hefur verið í örri þróun á spítal- anum á síðustu árum. Góðar fyrirmyndir er að finna hjá flugmönnum þar sem haft er í öndvegi að greint sé frá mistökum til að unnt sé að læra af þeim og koma í veg fyrir að þau endurtaki sig. Andstöðu lækna og heilbrigðisstarfs- fólks við áform um sameiningu Ríkisspít- ala og Sjúkrahúss Reykjavíkur árið 1999 var mætt með loforðum um að byggt yrði yfir hinn sameinaða spítala á innan við áratug. Þannig yrði þjónusta við sjúklinga og að- staða starfsmanna bætt í nýju húsnæði og hlutverk spítalans sem kennslu- og vísinda- stofnunar eflt. Nú, 15 árum síðar, bólar ekki á efndum. Á sama tíma hefur þjónustugeta íslensks heilbrigðiskerfis skerst í hlutfalli við niðurskurð og vaxandi þörf fyrir þjón- ustu, eins og kemur fram í nýlegri skýrslu Legatum-stofnunarinnar.2 Í sömu skýrslu var Ísland í öðru sæti undir liðnum heilsa og heilbrigðiskerfi árið 2010 í samanburði við þjóðir heims, en hafði fallið niður í 18. sæti árið 2015. En þjóðinni fjölgar og þeim sem þurfa á mikilli heilbrigðisþjónustu að halda fjölgar enn hraðar, svo sem öldr- uðum og hælisleitendum. Embætti landlæknis vann skýrslur um stöðu mála og þörf á úrbótum á lyflækn- ingasviði og geðsviði Landspítala á síðasta ári sem sýna vel þörfina á endurbótum á húsnæði sem hægt er að nýta nú þegar til úrbóta á öryggi sjúklinga og starfsmanna.3 En hver ber ábyrgðina þegar fagfólk skortir til að taka forfallavaktir eða þegar rúm vantar til innlagna og sjúklingar bíða klukkustundum saman eftir að komast af bráðamóttöku á legudeildir; eru það vakt- hafandi læknar og hjúkrunarfræðingar, millistjórnendur, framkvæmdastjórar og forstjórar Landspítala eða eru það nefndar- menn fjárlaganefndar og formenn stjórnar- flokka síðustu 15 ára? Svari hver fyrir sig. Í nýlegri könnun Capacent-Gallup settu 90% svarenda úrbætur í heilbrigðismálum í fyrsta sæti.4 Það verður spennandi að sjá hvaða stjórnmálaflokkar ná að bregðast við eindregnum óskum almennings um úrbæt- ur nú þegar aðeins rúmt ár er til kosninga. Á seinni hluta þessa árs hafa vonir um betri tíð dvínað hjá mörgum læknum vegna skorts á fjármögnun kjarasamninga og tafar á byggingu nýs spítala. Þrátt fyrir táknræna og gleðilega skóflustungu að nýju sjúkrahóteli Landspítala hinn 11. nóvember skortir enn á traust, öryggi og ekki síst framtíðarsýn í heilbrigðiskerfinu, eins og heilbrigðisráðherra benti sjálfur á nýlega.5 Vel stæð þjóð með afgang á fjárlögum á ekki að sætta sig við heilbrigðiskerfi sem sí- fellt berst í bökkum. Helstu áskoranir ríkis- stjórnarinnar í fjármálum eru svo að segja í höfn og ferðamenn flykkjast til landsins. Nýtum það til að gera betur. Formenn stjórnarflokkanna heyra vitaskuld hávært ákall almennings um úrbætur. Þess vegna hlýtur að mega treysta því að þeir styðji í verki uppbyggingu þjónustunnar. Ekki er seinna vænna eftir eyðimerkurgöngu við- varandi hagræðingar og niðurskurðar sem spannar brátt aldarfjórðung. Heimildir 1. visir.is/islenskt-heilbrigdiskerfi-i-fallbarattu---baetum- um-betur/article/2015151118749 - nóvember 2015. 2. vb.is/frettir/island-fellur-um-eitt-saeti-velmegnunar- listanum/122204/?fb_action_ids=10206248417946910&- fb_action_types=og.recommends - nóvember 2015. 3. landlaeknir.is/um-embaettid/frettir/frett/item24656/ Uttektir-a-Landspitala - nóvember 2015. 4. Capacent-Gallupkönnun kynnt á Mbl.is 14.9 2015 mbl.is/frettir/innlent/2015/09/14/heilbrigdismalin_i_ fyrsta_saeti/ - nóvember 2015. 5. mbl.is/frettir/innlent/2015/09/22/engin_stefnumotun_i_ heilbrigdismalum/ - nóvember 2015. Destabilising the foundations of health and safety Engilbert Sigurðsson Professor of Psychiatry and Consultant Psychiatrist, University of Iceland and Landspitali University Hospital Editor-in-Chief of The Icelandic Medical Journal engilbs@landspitali.is http://dx.doi.org/10.17992/lbl.2015.12.52 Að höggva undan sér fæturna Engilbert Sigurðsson Prófessor í geðlæknisfræði og yfirlæknir læknadeild Háskóla Íslands og geðsviði Landspítala Ritstjóri og ábyrgðarmaður Læknablaðsins flútíkasónfúróat Hver sem ástæðan er, hver sem árstíðin er * Notist eingöngu í nef IS_FF_0001d_12(1)_Avamys_Advert_A4_April2015.indd 1 22.04.2015 15:17:52 AVAMYS 27,5 míkrógrömm/úðaskammt nefúði, dreifa. Glaxo Group Ltd. R01AD12. Samantekt á eiginleikum lyfs – styttur texti SPC Innihaldslýsing: Hver úðaskammtur gefur 27,5 míkrógrömm af fl útíkasónfúróati. Ábendingar: Avamys er ætlað til notkunar hjá fullorðnum, unglingum og börnum (6 ára og eldri). Avamys er ætlað til meðferðar við einkennum ofnæmiskvefs. Skammtar og lyfjagjöf: Skammtar: Fullorðnir og unglingar (12 ára og eldri): Ráðlagður upphafsskammtur er tveir úðaskammtar í hvora nös einu sinni á dag. Þegar fullnægjandi stjórn á einkennum hefur náðst gæti minni skammtur, einn úðaskammtur í hvora nös, nægt til viðhaldsmeðferðar. Skammturinn skal stilltur á minnsta skammtinn sem viðheldur fullnægjandi stjórn á einkennum. Börn (6 til 11 ára): Ráðlagður upphafsskammtur er einn úðaskammtur í hvora nös einu sinni á dag. Sjúklingar sem sýna ekki fullnægjandi svörun við einum úðaskammti í hvora nös einu sinni á dag geta notað tvo úðaskammta í hvora nös einu sinni á dag. Þegar fullnægjandi stjórn á einkennum hefur náðst er mælt með því að minnka skammtinn niður í einn úðaskammt í hvora nös, einu sinni á dag. Til að ná hámarksárangri af meðferðinni er mælt með reglulegri notkun. Verkun hefur komið fram aðeins 8 klukkustundum eftir fyrstu notkun. Engu að síður getur þurft nokkurra daga meðferð til að ná hámarksárangri og ber að upplýsa sjúklinginn um að einkennin lagist við samfellda reglulega notkun. Tímalengd meðferðar ætti að takmarka við þann tíma sem snerting við ofnæmisvaka varir. Börn yngri en 6 ára: Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi og verkun Avamys hjá börnum yngri en 6 ára. Aldraðir sjúklingar: Engin þörf er á aðlögun skammta hjá þessum hópi. Skert nýrnastarfsemi: Engin þörf er á aðlögun skammta hjá þessum hópi. Skert lifrarstarfsemi: Engin þörf er á aðlögun skammta hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Gæta skal varúðar við skömmtun hjá sjúklingum með alvarlega skerðingu á lifrarstarfsemi, þar sem sjúklingar með skerta lifrarstarfsemi eiga hugsanlega frekar á hættu að fá altækar aukaverkanir er tengjast barksterum. Lyfjagjöf: Avamys nefúði er eingöngu til notkunar í nef. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð, og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfi shafi : Glaxo Group Ltd, 980 Great West Road, Brentford, Middlesex, TW8 9GS, Bretland. Nánari upplýsingar um lyfi ð fást hjá umboðsaðila á Íslandi sem er Vistor hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabæ, sími: 535-7000. Textinn var síðast samþykktur 26. mars 2015. Ath. textinn er styttur. Sjá nánari upplýsingar í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is. Pakkning og verð (október 2015) Avamys nefúði 27,5 mcg/sk 120 skammtar R,G 2.722kr Heimildir: 1) samantekt á eiginleikum lyfs, www.serlyfjaskra.is IS /F F/ 00 01 d/ 12 (1 )a o kt ób er 2 01 5 Hörgatúni 2, 210 Garðabæ. S: 535 7000 Meðferð við einkennum ofnæmiskvefs1 Meðferð við einkennum ofnæmiskvefs1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.