Læknablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 4
560 LÆKNAblaðið 2015/101
F R Æ Ð I G R E I N A R
12. tölublað 2015
563
Engilbert Sigurðsson
Að höggva undan
sér fæturna
Vel stæð þjóð með
afgang á fjárlögum á ekki
að sætta sig við heil-
brigðiskerfi sem sífellt
berst í bökkum. Helstu
áskoranir ríkisstjórnar-
innar í fjármálum eru
svo að segja í höfn og
ferðamenn flykkjast til
landsins. Nýtum það til
að gera betur.
567
Skúli Magnússon, Baldur Tumi Baldursson, Hilmar Kjartansson, Guðný Ella
Thorlacius, Ivar Axelsson, Óttar Rolfsson, Pétur Henry Petersen,
Guðmundur Fertram Sigurjónsson
Affrumað roð: Eðliseiginleikar sem styðja vefjaviðgerð
Framleiðsla affrumaðs roðs felst í því að fjarlægja með söltum allar frumur roðsins
þannig að sem minnst sé hreyft við náttúrlegri byggingu þess og efnasamsetningu.
Framleiðsluferlið er affrumun, frostþurrkun og dauðhreinsun, annaðhvort með etýle-
noxíði eða gammageislun. Einkum er lögð áhersla á að halda fitusýrum roðsins eftir
en talið er að virkni þeirra skapi sérstöðu vörunnar og bættan sáragróanda. Affrumað
roð er um það bil einn millimetri að þykkt og byggingin ekki eins og ólík mannshúð
og ætla mætti.
575
Anna Sigurðardóttir, Sigurjón Örn Stefánsson, Bergrós Kristín Jóhannesdóttir,
Tómas Guðbjartsson
Hnífstunguáverki á hjarta meðhöndlaður með bráðum brjóst
holsskurði á bráðamóttöku – sjúkratilfelli
Hér er lýst fertugum karlmanni sem hlaut hnífstungu í hjarta sem olli gollurshúsþröng
og hjartastoppi. Gerður var brjóstholsskurður á bráðamóttöku og tókst að koma
hjartanu í gang með beinu hjartahnoði og loka síðan gatinu á hjartanu. Rúmlega
hálfu ári síðar er sjúklingurinn við góða heilsu.
581
Guðrún Valdimarsdóttir, Anne Richter
Straumhvörf í rannsóknum á fjölhæfum stofnfrumum og
notagildi þeirra í læknavísindum
Stofnfrumur úr fósturvísum eru fjölhæfar frumur sem geta annaðhvort endurnýjast og
haldist ósérhæfðar eða sérhæfst í hvaða frumugerð sem er í líkamanum. Árið 1998
tókst að einangra stofnfrumur úr fósturvísum manna og breytti það sýn manna á nýja
möguleika í vefjalæknisfræði. Aðeins 8 árum síðar tókst vísindafólki að mynda svo-
kallaðar iPS-frumur, fjölhæfar stofnfrumur sem útbúnar voru með því að endurforrita
líkamsfrumur. Þetta hefur gjörbylt hugmyndum um óafturkræfi frumuþroska.
589
Jólasjúkratilfelli Læknablaðsins 2015.
Miðaldra prófessor með verk í vísifingri
Prófessorinn sem kominn var af léttasta skeiði en grannur og hraustur að sjá leitaði
álits geðlæknis og skurðlæknis. Hann hafði þjáðst í nokkra daga af verk í vísifingri
hægri handar.
565
Helga Valfells
Fjárfesting
í heilbrigðistækni
Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins fylgist með
framþróun heilbrigðis-
tæknigeirans á Íslandi.
Vonandi halda íslenskir
læknar áfram að hugsa
út fyrir kassann og þróa
byltingarkenndar hug-
myndir að nýjum heil-
brigðistæknilausnum.
L E I Ð A R A R
árgangar að baki