Læknablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 3
LÆKNAblaðið 2015/101 559
læknablaðið
the icelandic medical journal
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Gottfreðsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og
ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Sigdís Þóra Sigþórsdóttir
sigdis@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1800
12.900,- m. vsk.
Lausasala
1290,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu. Blað þetta má
eigi afrita með neinum hætti, hvorki að
hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition, Scopus og Hirsluna, gagna-
grunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Forsíðu Læknablaðsins prýðir stillimynd úr myndbands-
verki frá þessu ári eftir Theresu Himmer (f. 1976). Sund-
maðurinn byggist á samtali þriggja einstaklinga í heitum
potti. Þau virðast gamlir vinir sem spjalla saman um sam-
eiginlega kunningja og
nágranna. Fljótt verður
maður þess áskynja að
eitthvað er ekki eins og
það á að vera. Þeir sem
nefndir eru með nafni í
samræðunum heita upp
á ensku og engu er líkara
en fólkið sé statt í sinni
eigin einkasundlaug
þótt allt bendi til þess
að þau séu í dæmigerðri
íslenskri almennings-
laug. Í miðjum sam-
ræðum fær eitt þeirra þá hugmynd að hægt sé að synda
alla leið heim frá einni laug til annarrar, gegnum bakgarða
nágrannanna. Maðurinn fer úr pottinum, stingur sér til
sunds og hefur þetta undarlega ferðalag. Verkið er tæpar
sjö mínútur og leikarar eru Halldór Gylfason, Maríanna
Clara Lúthersdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Verk
Theresu kallast á við bandaríska smásögu frá sjöunda
áratugnum, The Swimmer, eftir John Cheever, og sam-
nefnda kvikmynd sem gerð var í kjölfarið með Burt Lan-
caster í aðalhlutverki. Listakonan lætur reyna á aðlögun
hinnar upprunalegu ádeilu á góðborgarastétt eftirstríðs-
áranna að nýju umhverfi, tungumáli og tíðaranda. Við þá
yfirfærslu koma í ljós fjöl-
margir agnúar sem alltaf
eru til staðar við hvers
konar þýðingu og túlkun.
Sumt misferst algerlega,
annað er dregið fram,
eitt verður kómískt og
enn annað stórundarlegt.
Theresa fæst gjarnan við
slíkan samanburð þar
sem hún beinir sjónum
að breytingunum sem
verða með því að taka
hluti úr samhengi og setja
þá fram með nýjum hætti. Henni er einkum hugleikið
samspil minnis og umhverfis ásamt þeim tengslum sem
við myndum við staði. Theresa er menntaður arkitekt og
listamaður af tékknesk-dönsku bergi brotin. Hún hefur
tengst Íslandi í fjölda ára og býr jöfnum höndum hér og
erlendis. Hún er einn þeirra listamanna sem setti nýverið
upp verk á gafl íbúðablokkar í Breiðholti.
Markús Þór andrésson
L I S T A M A Ð U R M Á N A Ð A R I N S
„Þessi athöfn markar upphaf endurreisnar ís-
lenska heilbrigðiskerfisins,“ sagði Kristján Þór
Júlíusson heilbrigðisráðherra glaðbeittur er hann
tók fyrstu skóflustungu að nýju sjúkrahóteli á
Landspítala Hringbraut kl. 11.00 miðvikudaginn
11. nóvember 2015. Viðstaddir voru margir fyrr-
verandi heilbrigðisráðherrar, þingmenn og borg-
arstjóri auk starfsmanna Landspítala og annarra
áhugamanna um nýjan Landspítala.
Athöfnin hófst með því að heilbrigðisráðherra
skrifaði undir samning við byggingarfyrirtækið
LNS Saga ehf. um byggingu sjúkrahótelsins.
Vottar að undirrituninni voru 6 nemendur frá
heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands.
Sjúkrahótelið er hluti af fyrsta áfanga upp-
byggingar Nýs Landspítala (NLSH) við Hring-
braut. Það rís á norðurhluta lóðar spítalans milli
kvennadeildar, K-byggingar og Barónsstígs og
verður tekið í notkun árið 2017. Aðalhönnuður
sjúkrahótelsins er KOAN-hópurinn en for-
hönnun, skipulagsgerð, hönnun gatna og lóðar er
unnin af SPITAL-hópnum. Húsið verður skreytt
listaverki eftir Finnboga Pétursson myndlistar-
mann.
Sjúkrahótelið verður fjórar hæðir og kjallari,
4258 fermetrar að stærð með 75 herbergjum. Hót-
elið mun tengjast barnaspítala og kvennadeild
um tengigang. Framkvæmdir hefjast fljótlega á
lóð Landspítala við gerð bráðabirgðabílastæða á
svæðinu sunnan við aðalbyggingu Landspítala
sem koma í stað annarra stæða sem verður lokað
tímabundið þegar framkvæmdir hefjast við bygg-
ingu sjúkrahótelsins. Gerð bráðabirgðabílastæð-
anna mun verða lokið um miðjan desember.
„Markar upphaf endurreisnar“
ábendingar1
Pradaxa®(dabigatran)
5
NÝ
IS
-P
R
A-
14
-0
1-
30
, A
U
G
14
Meðferð hjá
fullorðnum við segamyndun í
djúplægum bláæðum og(DVT)
til fyrirbyggjandi meðferðar við
endurtekinni segamyndun í
djúplægum bláæðum
Meðferð hjá
fullorðnum við lungnasegareki
og til fyrirbyggjandi(PE)
meðferðar við endurteknu
lungnasegareki
Forvörn
gegn bláæðasegareki (VTE)
hjá fullorðnum sjúklingum sem
hafa gengist undir valfrjáls
mjaðmarliðskipti
Forvörn
gegn bláæðasegareki (VTE)
hjá fullorðnum sjúklingum sem
hafa gengist undir valfrjáls
hnéliðskipti
Fyrirbyggjandi
meðferð gegn heilaslagi og
segareki í slagæðum hjá fullorðnum
sjúklingum með gáttatif sem ekki
tengist hjartalokum, ásamt einum
eða fleiri áhættuþáttum*
Varðandi heimild og nánari upplýsingar er vísað í stytta samantekt á eiginleikum lyfsins á bls. XX
* Til að mynda að hafa áður fengið heilaslag eða tímabundna blóðþurrð í heila (transient
ischaemic attack, TIA); aldur 75 ára; hjartabilun (NYHA (New York Heart Association)≥
�okkur II); sykursýki; háþrýstingur.≥