Læknablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 44
600 LÆKNAblaðið 2015/101
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Á Læknadögum í janúar 2014 var efnt til
málþings um heilsufar lækna. Málþingið
var mjög vel sótt og sýndi glöggt hve
mikill áhugi var á efninu og að þörf var
fyrir aðgerðir. Í kjölfarið skipaði stjórn
Læknafélags Íslands fjögurra manna
nefnd til að vinna að tillögum til úrbóta
og í henni sitja Haraldur Erlendsson
yfirlæknir og forstjóri Heilsustofnunar í
Hveragerði, Benedikt Sveinsson fæðinga-
og kvensjúkdómalæknir, Gerður Aagot
Árnadóttir heimilislæknir og Kristinn
Tómasson geðlæknir og yfirlæknir hjá
Vinnueftirliti ríkisins.
Nefndin hefur fundað reglulega undan-
farið ár og kynnt sér hvernig tekið er á
þessum málum erlendis og mun kynna
þær niðurstöður á Læknadögum í janúar
2016.
Blaðamaður hitti þau Harald, Gerði og
Benedikt á dögunum og forvitnaðist um
hvað lægi að baki hugmyndum um sér-
staka læknisþjónustu fyrir lækna.
„Staðreyndin er sú að læknar eru mjög
tregir til að leita sér lækninga og það eru
ýmsar ástæður fyrir því,“ segja þau. „Ein
ástæðan er að þeim finnst óþægilegt að
vera skráðir inn í hið almenna sjúkra-
skráningarkerfi þar sem óviðkomandi geta
séð allar upplýsingar um veikindi þeirra.
Þrátt fyrir strangar reglur um aðgang að
slíkum upplýsingum sýna dæmin bæði
hér heima og erlendis að þær eru ekki
virtar.“
Erfitt að viðurkenna veikleika
Þau leggja reyndar áherslu á að brot á
þeim reglum varði brottrekstri en það
virðist ekki duga til og spurning hvort
slíku er fylgt nægilega vel eftir þegar upp
kemst.
„Þetta er þó ekki eina ástæðan fyrir
tregðu lækna heldur hitt að læknar eru
gjarnan þannig persónuleikar að þeir eiga
erfitt með að viðurkenna veikleika og þá
sérstaklega fyrir kollegum sínum. Þetta
veldur því að í mörgum tilfellum leita
læknar ekki aðstoðar í veikindum fyrr en
í óefni er komið og lítið hægt að gera til að
snúa við blaðinu.“
Erlendar rannsóknir sem gerðar hafa
verið á heilsufari lækna sýna ótvírætt
fram á þetta en góðu fréttirnar eru þær að
þar sem brugðist hefur verið við þessu af
skilningi hefur náðst mjög góður árangur.
„Í Noregi og Katalóníu á Spáni hefur
verið byggt upp mjög öflugt kerfi fyrir
lækna sem stendur til hliðar við hið al-
menna kerfi og með því eru skjólstæðingar
hvergi skráðir þó þeir leiti sér aðstoðar
í veikindum. Í Noregi er einn læknir í
hverju fylki sem sinnir þessu verkefni.
Aðrir læknar geta leitað til hans í þeirri
fullvissu að upplýsingar um þá rati ekki
í hendur óviðkomandi. Þá er einnig rekin
sérstök heilsu- og endurhæfingarstofnun
eingöngu ætluð læknum og árangur af
þessu starfi hefur verið mjög góður. Svip-
að kerfi er að finna í Katalóníu og einnig
í Sviss svo ekki þarf að velkjast í vafa um
gagnsemina.“
Byrja strax í náminu
Þau benda á að læknisstarfið sé í eðli sínu
mjög streituvaldandi og læknar almennt
haldnir mikilli fullkomnunaráráttu. „Þetta
sjáum við glöggt strax á læknanemunum
sem vilja ávallt gera sitt allra besta og
þegar út í starf er komið er yfirleitt gerð
krafa um 100% árangur. Til að breyta við-
horfi læknastéttarinnar gagnvart sjálfri
sér hvað þetta varðar, er nauðsynlegt að
byrja strax í læknanáminu og gera unga
fólkið okkar meðvitað um þær hættur sem
leynast í starfinu að þessu leyti. Við höfum
því kynnt þessar hugmyndir fyrir Magn-
úsi Karli Magnússyni forseta læknadeildar
og hann tók þeim vel og kom þeim strax
áleiðis til þeirra Bryndísar Benediktsdótt-
ur og Ingu Sifjar Ólafsdóttur sem kenna
samskiptatækni í læknadeildinni.“
Þau lýsa hugmynd sem byggir á því
að læknanemarnir myndi stuðningshópa
skipaða eldri og yngri nemendum þar
sem áherslan er á samhjálp þegar eitthvað
bjátar á. „Þessir hópar gætu síðan haldið
áfram óformlega eftir að námi lýkur
þannig að hver og einn læknir hefði þessa
bakhjarla að snúa sér til af eitthvað kemur
upp á.“
Heilsustofnun býður læknum úrræði
Það kemur einnig fram að mikilvægt er
að breyta viðhorfum þannig að hægt sé
að taka á vandanum áður en hann verður
óviðráðanlegur. „Við erum að tala um
alla almenna sjúkdóma, auk áfengis- og
lyfjafíknar, og ýmsa geðræna kvilla eins
og þunglyndi og kvíða sem eru oft afleið-
ingar streitu og kulnunar í starfi. Óhóflegt
álag í starfi veldur kulnun og læknar eiga
oft erfitt með að setja sjálfum sér mörk
hvað vinnu varðar. Til skamms tíma voru
„Yngra fólkið er duglegra að setja mörk en þeir eldri voru, fólk vill geta átt annað líf utan starfsins, sinnt fjölskyldu og
áhugamálum, sem jafnframt stuðlar að því að halda jafnvægi og góðri heilsu,” segja þau Kristinn Tómasson,
Benedikt Sveinsson, Gerður A. Árnadóttir og Haraldur Erlendsson.
Læknar eru einfaldlega mannlegir