Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2015, Síða 30

Læknablaðið - 01.10.2015, Síða 30
Garðabær er vaxandi sveitarfélag með tæplega 15 þús. íbúa. Við Heilsugæsluna starfa nú sjö sérfræðingar í heimilislækningum í 5,5 stöðugildum, barnalæknir og fæðingarlæknir í hlutastörfum, félagsráðgjafi, hreyfistjóri/sjúkraþjálfari í hlutastöðu og tíu hjúkrunarfræðingar. Auk þess eru þrír sérnámslæknar í heimilislækningum tengdir stöðinni og læknakandidatar hafa um árabil fengið þjálfun á stöðinni. Þar starfa fastir kennarar í heimilislæknisfræði og samskiptafræði við Háskóla Íslands og umtalsverð kennsla læknanema fer fram á stöðinni. Frekari upplýsingar um starfið: Upplýsingar um starfið veitir Bjarni Jónasson yfirlæknir Heilsugæslunnar í Garðabæ í síma 520-1800 eða í tölvupósti: bjarni.jonasson.@heilsugaeslan.is Hæfnikröfur: Krafist er að umsækjendur hafi sérfræði- menntun í heimilislækningum. Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð. Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og reynsla af teymisvinnu. Helstu verkefni og ábyrgð: Almennar lækningar. Heilsuvernd. Vaktþjónusta. Kennsla nema. Þátttaka í vísindarannsóknum, gæða- og umbótarverkefnum. Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Umsókn skal fylgja ítarleg náms og starfsferilskrá ásamt gögnum sem staðfesta menntun, fyrri störf, vísinda- og kennslustörf. Þeim gögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skilað til Svövu K. Þorkelsdóttur mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Við ráðningar í störf hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er ávallt tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar. Sækja skal um starfið rafrænt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is), undir laus störf eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is). Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun Starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna í Garðabæ Um er að ræða 100% ótímabundið starf sem veitist frá 1. janúar 2016 eða eftir samkomulagi Umsóknarfrestur er til 10. október 2015. PO R T h ön nu n

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.