Læknablaðið - 01.10.2015, Blaðsíða 45
LÆKNAblaðið 2015/101 485
Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungna-
skurðlæknir á Landspítala og prófessor
við læknadeild Háskóla Íslands, hefur
verið kjörinn formaður Samtaka hjarta- og
lungnaskurðlækna á Norðurlöndunum
(Scandinavian Association of Thoracic
Surgery).
Í samtökunum eiga sæti allir sérfræð-
ingar í hjarta- og lungnaskurðlækningum
á Norðurlöndunum og er helsta hlutverk
samtakanna að skipuleggja fræðslu- og
vísindastarf innan sérgreinarinnar. Þetta
er í fyrsta sinn sem Íslendingur er valinn
forseti í 66 ára sögu samtakanna og segir
Tómas að eflaust hafi ráðið úrslitum að
hann hafi undanfarin 7 ár verið forseti
systursamtaka SATS en þau heita Society
of Scandinavian Research in CardioThora-
cic Surgery (SSRCTS).
„Aðaláhersla okkar á vettvangi SSRCTS
hefur verið að lyfta undir vísindarann-
sóknir yngra fólksins í greininni og efla
samstarf á milli hjarta- og lungnaskurð-
deilda á norrænum spítölum. Þetta hefur
gengið mjög vel og sennilega þess vegna
sem mitt nafn kom upp þegar kjósa átti
nýjan forseta SATS. Þetta er sannarlega
mikill heiður fyrir mig, enda ungur miðað
við fyrri formenn, en þetta eru ansi öflug
samtök með nærri 500 félaga. Samtökin
eru mjög virk og halda stóra ráðstefnu
á hverju ári og það er í rauninni megin-
starfið enda mikil vinna í kringum slíkt
þinghald. Við höfum verið að stækka
áhrifasvið okkar ef svo má segja og styrkja
kollega okkar í Eystrasaltslöndunum til að
taka þátt. Við gerum ráð fyrir um eða yfir
700 þátttakendum á næsta ársþingi SATS
sem verður einmitt haldið í Reykjavík í
ágúst 2016.“
Tómas segir 22 hjarta- og lungnaskurð-
deildir samtals á Norðurlöndunum og í
gegnum starf sitt sem forseti systurfélags-
ins SSRCTS hafi hann nú þegar heimsótt
þær langflestar og komið á samstarfi á
milli margra þeirra um vísindarannsóknir.
„Við erum með nokkur mjög spennandi
stór rannsóknarverkefni í gangi sem ég
hef átt þess kost að leiða. Slík tengsl eru
lykillinn að því að viðhalda hinu norræna
samstarfi en það hefur verið viss tilhneig-
ing í þá átt að leita út fyrir Norðurlöndin
til stærri landa í Evrópu og Bandaríkjanna.
Ég tel að í rauninni sé heppilegra að eitt
minni landanna, eins og Ísland, hafi
forgöngu um norrænt vísindasamstarf
þar sem ákveðinn rígur getur verið milli
stærri sjúkrahúsa. Hér á Landspítalanum
er minnsta deildin af þessum 22 en það
þýðir ekki að við séum faglegir eftirbátar,
síður en svo, og við njótum virðingar til
jafns við hinar stærstu. Tilgangur minn
með heimsóknum á norrænu deildirnar er
líka að mynda tengslanet til að auðvelda
íslenskum sérnámslæknum í greininni
að komast að á bestu sjúkrahúsum á
Norðurlöndunum.“
Tómas Guðbjartsson lauk læknanámi
frá Háskóla Íslands árið 1991 og stundaði
síðan framhaldsnám í almennum skurð-
lækningum og hjarta- og lungnaskurð-
lækningum í Svíþjóð og framhaldsnám í
hjartaskurðlækningum við Harvard-há-
skóla í Boston. Tómas hefur verðið virkur í
kennslu og rannsóknum og hefur birt hátt
í 200 vísindagreinar og bókakafla, flestar
á sviði hjarta- og lungnaskurðlækninga.
Að auki hefur Tómas verið virkur í félags-
störfum en hann er formaður prófessora-
ráðs Landspítala og situr í ritstjórnum
Interactive Cardiovascular and Thoracic
Surgery og Læknablaðsins. Tómas situr
jafnframt í stjórnum Ferðafélags Íslands
og Vina Vatnajökuls, er forsprakki Félags
Íslenskra fjallalækna (FÍFL) og formaður
Skvasssambands Íslands.
Tómas er giftur Dagnýju Heiðdal list-
fræðingi og eiga þau tvö börn, Guðbjörgu,
tónlistarkonu og grafískan hönnuð, og
Tryggva, nema í lyfjafræði.
Fyrsti íslenski forseti Samtaka hjarta-
og lungnaskurðlækna á Norðurlöndunum
Tómas Guðbjartsson er fyrsti íslenski forseti SATS, Sam-
taka hjarta- og lungnaskurðlækna á Norðurlöndunum.
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
A
c
ta
v
is
5
1
8
0
0
2
Virkt innihaldsefni: Hver freyðitaa inniheldur 400 mg af dísúlfíram. Ábendingar: Áfengissýki. Skammtar og
lyagjöf: Fullorðnir: Byrjunarskammtur 800 mg daglega í 2–3 daga. Viðhaldsskammtur: 100–200 mg daglega eða
600–800 mg tvisvar í viku. Frábendingar: Ómeðhöndlaðir hjartasjúkdómar, háþrýstingur, staðfest geðrof, alvarlegar
vefrænar heilaskemmdir, alvarlegar persónuleikatruanir, áfengisneysla, ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju
hjálparefnanna. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í
sérlyaskrá – www.serlyaskra.is. Pakkningar og hámarksverð í smásölu (ágúst 2015): 400 mg, 50 stk: 10.538 kr.
Afgreiðsluflokkur: R. Greiðsluþátttaka: G. Markaðsleyfishafi: Actavis Group hf. Frekari upplýsingar: www.actavis.is,
s: 550 3300. Dagsetning síðustu samantektar um eiginleika lyfsins: 14. febrúar 2012. Ágúst 2015.
– 400 mg freyðitöurAntabus
Við áfengissýki