Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2015, Síða 32

Læknablaðið - 01.10.2015, Síða 32
472 LÆKNAblaðið 2015/101 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Nokkur vandi blasti við lyflækninga­ sviði Landspítala fyrir um tveimur árum. Þá ríkti ófremdarástand, erfiðlega gekk að fá námslækna, álag var óviðunandi og vaxandi áhyggjur voru af öryggi sjúklinga. Með samstilltu átaki lyflækna á Landspítala, stjórnenda spítalans og ráðherra heilbrigðismála var hafin uppbygging á lyflækningasviði, fram­ haldsnámið sett í forgang og það endur­ skipulagt. Undirstöður hafa verið lagðar til að tryggja framhaldsnáminu styrkan sess og sviðið hefur skýra framtíðarsýn varðandi námið. Námslæknum þykir aftur eftirsóknarvert að fá námsstöðu í lyflækningum, og berast nú fleiri umsóknir um námsstöður en hægt er að sinna. Fyrr á þessu ári setti ráðherra heilbrigðis- mála reglugerð um sérnám í lækningum. Þar eru gerðar mun meiri kröfur til sérnáms en áður. Sérstök nefnd metur hæfi heilbrigðisstofnunar til að öðlast viðurkenningu sem kennslustofnun til að annast sérnám. Sérstaklega er tekið fram að leita skuli alþjóðlegrar ráðgjafar við gerð marklýsinga og að skipulagi sérnáms skuli þannig háttað að alþjóðlegum gæða- viðmiðum sé mætt. Við endurskipulagningu sérnáms í lyf- lækningum ákvað lyflækningasvið Land- spítala að leita til The Federation of the Royal College of Physicians (RCP) í Bret- landi um ráðgjöf og samstarf. Sú stofnun er án efa ein sú virtasta í heimi á þessu sviði. Hún var stofnuð árið 1508 af Hinriki VIII og hefur verið leiðandi í menntun og gæðakröfum til lyflækna síðan. Samstarfið felur í sér að Íslendingar nýta sér mark- lýsingar Bretanna, námsefni, skilgreindar námskröfur, rafrænt skráningarkerfi og handleiðslu við uppbyggingu og skipulag námsins. Sérnámslæknar munu taka skriflegu hluta MRCP-prófa hér á landi en verklegan hluta þeirra í Bretlandi. Í framhaldi mun RCP gera formlega úttekt á árangri samstarfsins sem leiða mun til al- þjóðlegrar vottunar framhaldsnámsins. Sjúkrahúsið á Akureyri mun verða í samvinnu við Landspítala um framhalds- námið og hafa því námslæknar tækifæri til að sinna námi sínu á báðum sjúkra- húsunum. Fyrir utan þjálfun í almennum lyflækningum og undirsérgreinum þeirra munu námslæknar í lyflækningum einnig fá þjálfun á bráðamóttöku Landspítala í gjörgæslulækningum og í taugalækning- um. Nú er boðið upp á þriggja ára sérnám á Íslandi, en frekari sérfræðimenntun verður enn sem komið er erlendis. Umgjörð framhaldsnámsins í lyflækningum Friðbjörn Sigurðsson er framhaldsmennt- unarstjóri lyflækninga á Landspítalanum og Tómas Þór Ágústsson, lyflæknir og innkirtlalæknir, er einn af kennslustjórum lyflækninga. Þeir hafa ásamt fjölda annarra komið að endurskipulagningu sérnámsins. Kennslustjórar eru auk þeirra Anna Björg Jónsdóttir, Inga Sif Ólafsdóttir, Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir og Kjartan Örvar. Þeim til fulltingis er framhalds- menntunarnefnd. Þar sitja ýmsir forkólfar í menntamálum lækna, Guðmundur Þor- geirsson, Helga Ágústa Sigurjónsdóttir, Kristján Erlendsson, Rafn Benediktsson, Runólfur Pálsson, Sigurður Guðmunds- son, Sigríður Þ. Valtýsdóttir, Steinn Jóns- son og Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir. Auk þeirra hafa fjölmargir aðrir lyflæknar, bráðalæknar og taugalæknar komið að uppbyggingu námsins. Yfirstjórn sviðsins og framkvæmdastjórn spítalans hefur stutt dyggilega við verkefnið. Þó má segja að námslæknarnir sjálfir hafi átt stærstan hlut í að mál hafa þróast á þann veg sem þau eru í dag. Án áhuga þeirra og metn- aðar væri ekkert af þessu mögulegt. Þeir Friðbjörn og Tómas eru einnig sérlega ánægðir með að sviðið hafi fengið afar öfl- ugan læknaritara, Gerði Helgadóttur, sem skrifstofustjóra. Ný reglugerð um sérnám lækna. Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi tók gildi síðastliðið vor. Hún hafði verið lengi í smíðum, enda vandað til hennar að mati Friðbjarnar og Tómasar. Reglugerðin tekur mun skýrar fram en áður hvernig sérnámi skuli háttað. Þar er gerð krafa um marklýsingar, skipulag og inntöku í sérnám, innihald, fyrirkomulag og lengd sérnámsins og einstakra námshluta, gæða- kröfur, handleiðslu og hæfismat þarf að vera skilgreint. Samkvæmt reglugerðinni skipar heil- brigðisráðherra mats- og hæfisnefnd sem metur hæfi heilbrigðisstofnunar til að öðlast viðurkenningu sem kennslustofnun til að annast sérnám. Þá á nefndin að meta Sérnám í lyflækningum á Íslandi tekur á sig nýja mynd Nokkrir af skipuleggjendum sérnáms í lyflækningum á Landspítalanum. Aftasta röð frá vinstri: David Parry, Rafn Benediktsson, Kjartan Örvar, Friðbjörn Sigurðsson. Miðröð: Anna Björg Jónsdóttir, Tómas Þór Ágústsson, David Black og Hlíf Steingrímsdóttir. Fremsta röð: Inga Sif Ólafsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Rachel O´Flynn, Winnie Wade og Gerður Helgadóttir.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.