Læknablaðið - 01.10.2015, Blaðsíða 35
LÆKNAblaðið 2015/101 475
því marki brennd að telja óþarft að eltast
við smáatriði í öllum greinum. Bretarnir
eru ekki sama sinnis og vilja hafa allt á
hreinu og þeir hafa lýst yfir ánægju með
handbókina okkar eins og hún liggur fyrir
núna þó henni sé ekki lokið.“
geta aðrar sérgreinar nýtt sér
uppbygginguna á lyflækningasviði?
Þeir Friðbjörn og Tómas svara þeirri
spurningu tvímælalaust játandi. Þeir
segja að öll þessi endurskipulagning og
nýbreytni við fyrirkomulag sérnámsins í
lyflækningum reki upphaf sitt til þess að
námið hrundi bókstaflega fyrir tveimur
árum. En menn nýttu sér það sem aðrir
hafa sagt: „Það á aldrei að klúðra góðri
kreppu.“ Aðsókn að náminu var engin og
þetta stærsta svið Landspítalans sem reiðir
sig að miklu leyti á vinnuframlag náms-
lækna og deildarlækna var bókstaflega í
uppnámi. „Ástæður þessa eru flóknar en
efnahagshrunið árið 2008 átti þar stærstan
þátt og fjárhagsþrengingar spítalans sem
fylgdu í kjölfarið komu niður á sérnáminu
í lyflækningunum með þeim hætti að
námslæknar voru gjörnýttir til að leysa að-
steðjandi vanda og námið varð hreinlega
útundan við þessar aðstæður. Ennfremur
hefur álag á lyflækningadeild spítalans
aukist jafnt og þétt undanfarin ár þar
sem öldruðum sjúklingum og sjúklingum
með margþætta langvinna sjúkdóma fer
fjölgandi án þess að skilningur yfirvalda á
þörf sviðsins fyrir aukið fjármagn og meiri
mönnun sé til staðar.“
Vonandi þurfa önnur svið ekki að fara
í gegnum viðlíka kreppu og lyflækningar
til að umbætur geti hafist. Þeir Friðbjörn
og Tómas vonast til að sú vinna sem hefur
farið fram í lyflækningum geti nýst öðrum
greinum eftir því sem þurfa þykir. „Við
héldum nýlega fund með kennslustjórum
allra sérnámsgreinanna sem kenndar eru
hér á Íslandi þar sem núverandi staða í
framhaldsmenntunarmálum var kynnt og
rædd,“ segir Friðbjörn. „Fundurinn var
mjög gagnlegur en það kom í ljós að grein-
arnar eru mjög misjafnlega staddar hvað
útgáfu marklýsingar varðar. Eitt af því
sem við ræddum var hvort ástæða væri
til að sérnámið í öllum greinum hæfist á
sama tíma. Það gæti verið kostur, bæði
fyrir námslæknana og deildirnar. Sérnám
hæfist þá seinni part sumars, til dæmis
15. ágúst. Þá geta sérgreinar samnýtt vissa
hluti í umgjörð sérnámsins og var kallað
eftir því á fundinum að það yrði undir
handleiðslu framkvæmdastjóra lækninga,
sem samkvæmt títtnefndri reglugerð ber
ábyrgð á sérnámi lækna á stofnuninni.
Breytingar á lyflækningasviði hafa
einnig smitast yfir á aðrar faggreinar. Nú
er undirbúningur að sérnámi í klínískri
lyfjafræði langt kominn. Þar var notast við
forskriftina frá sérnáminu í lyflækningum,
en námið þar verður samstarfsverkefni
Háskóla Íslands, Landspítala, Royal
Pharmaceutical Society og Lyfjafræðinga-
félag Íslands. Stefnt er að því að sérnámið
hér hefjist næsta haust.“
Eru þá öll mál leyst er
varða sérnám lækna á Íslandi?
Friðbjörn og Tómas telja svo alls ekki
vera. „Það eru viss atriði sem valda þeim
sérstökum áhyggjum. Framhaldsnám í
lækningum kostar umtalsverða fjármuni.
Ekki virðist sem gert hafi verið ráð fyrir
því í áðurnefndri reglugerð. Mats- og
hæfisnefnd er ólaunuð nefnd, þrátt fyrir
að ljóst sé að störf hennar verði afar mikil,
allavega fyrst í stað. Mats- og hæfisnefnd
verður staðsett á Landspítala. Eðlilegra
er að skapa viðeigandi umgjörð um þessa
mikilvægu nefnd með sérstakri skrifstofu
hjá Embætti landlæknis eða í heilbrigðis-
ráðuneytinu. Eini skipaði starfsmaður
nefndarinnar er nú þegar í fullu starfi
og óljóst hvernig hann á að anna þessu.
Einnig þarf að gera ráð fyrir að utanum-
hald og uppbygging svona metnaðarfulls
sérnáms kosti bæði tíma og fjármuni. Þá
þarf að skýra vissa hluti varðandi stjórnun
sérnámsins, það er þátt heilbrigðisráðu-
neytisins og landlæknis.“
Þeir Friðbjörn og Tómas slá á léttari
strengi í lok samtalsins og segja sérstak-
lega ánægjulegt í ljósi allrar umræðunnar
undanfarin misseri um landflótta íslenskra
lækna, ekki síst til Norðurlanda, að Land-
spítalanum hafi nú nýlega borist umsókn
frá unglækni í Noregi um að hefja fram-
haldsnám í lyflækningum. „Það hljóta að
teljast nokkur tíðindi.“
Það er glæsilegur hópur námslækna sem hefur sérnám í lyflækningum samkvæmt hinu nýja skipulagi. Hér eru þau í
Hannesarholti ásamt leiðbeinendum sínum.
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R