Læknablaðið - 01.10.2015, Page 42
482 LÆKNAblaðið 2015/101
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Vinir og velunnarar Vilhjálms Rafns
sonar prófessors í lýðheilsufræðum og
fyrrverandi ritstjóra Læknablaðsins
efndu til málþings á dögunum í tilefni af
sjötugsafmæli hans og starfslokum við
Háskóla Íslands.
Málþingið var haldið í sal Þjóðminjasafns-
ins og var þétt setinn bekkurinn og fjöl-
breytt dagskrá í boði, með fræðilegu efni í
bland í við léttara efni og spaug. Fundar-
stjóri var Andri Steinþór Björnsson og hélt
hann röggsamlega utan um málþingið
og gætti þess vandlega að enginn ræðu-
manna færi yfir tilskilin tímamörk. Var
gerður góður rómur að fundarstjórninni.
Af þessu tilefni kom einnig út bók til
heiðurs Vilhjálmi undir titlinum Af lífi og
í hana rita ýmsir samstarfsmenn, vinir og
fjölskyldumeðlimir greinar um fræðasvið
er Vilhjálmur hefur tengst og starfað við,
einnig frásagnir af áhugamálum og ferða-
lögum og upprifjun barna hans á uppvexti
undir handleiðslu hans. Erindin sem flutt
voru á málþinginu er öll að finna í bókinni
auk nokkurra greina til viðbótar og er það
allt hin fróðlegasta lesning.
Dætur Vilhjálms, Þrúður og Linda,
fluttu hugleiðingu um æsku sína og
skreyttu með myndum úr fjölskyldu-
albúminu. Þar var dregin upp persónuleg
mynd af Vilhjálmi en sýndi vel að sam-
hliða löngu námi og erilsömu starfi hefur
fjölskyldan ávallt skipað mikilvægan sess
í lífi hans.
Guðmundur Þorgeirsson flutti fróðlegt
erindi undir yfirskriftinni Yfirlit um æðaþel
og hlutverk þess í æðasjúkdómum og síðan
tók Tómas Zoëga við og ræddi um geð-
rannsóknir og sakhæfi. Reynir Tómas
Geirsson tíundaði merkt framlag Vilhjálms
til fræðilegra skrifa í hlutverki hans sem
ritstjóri Læknablaðsins um 12 ára skeið og
Haraldur Briem ræddi framlag Vilhjálms
til lýðheilsufræða og hversu stóran þátt
hann átti í að stofna Miðstöð í lýðheilsu-
vísindum við Háskóla Íslands. Unnur
Anna Valdimarsdóttir forstöðumaður
Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum ræddi um
faraldsfræðilegar rannsóknir sem gerðar
hafa verið á áhrifum ögurstunda í lífi
fólks á heilsufar þess. Slíkar ögurstundir
geta til að mynda verið ástvinamissir,
alvarleg sjúkdómsgreining og veikindi,
hamfarir og ofbeldi. Unnur nefndi erindi
sitt Þegar einn faraldsfræðingur hittir annan
og lýsti af mikilli hlýju móttökunum sem
hún fékk hjá Vilhjálmi þegar hún hóf störf
við Háskóla Íslands. „Vilhjálmur tók á
móti mér með sínu góðlátlega og virðu-
lega yfirbragði, húmor og stjórnlausri
vinnugleði. […] Við Villi urðum semsagt
vinir og hófum þar með órjúfanlega
akademíska sambúð. […] Við kenndum
saman, ræddum og leystum fræðilegar og
akademískar flækjur og unnum hlið við
hlið að framþróun vísindanna.“
Pétur Pétursson flutti gagnmerkan fyr-
irlestur um húmor og sagði hann skiptast í
tvo meginþætti, áreitnishúmor og spektar-
húmor, og munurinn væri fólginn í því að
í fyrra tilfellinu væri hlegið að öðrum en
í því síðara væri hlegið með öðrum. Óttar
Guðmundsson tók við skemmtikeflinu af
Pétri og rifjaði upp heimsókn Vilhjálms til
sín á námsárum í Stokkhólmi er Vilhjálm-
ur hrópaði í dyrasíma tilvitnun í Illuga
Ásmundsson í Grettissögu: „Knýr Hösmagi
hurð, bróðir.“ Óttar ræddi tengsl sín og
Vilhjálms við ýmsa kappa Íslendingasagna
og kvaðst eftir mikla yfirlegu og rann-
sóknir vera kominn að þeirri niðurstöðu
að Vilhjálmur væri líkastur þeim bræðrum
Gretti og Illuga Ásmundsonum en ekki
síður hrútnum Hösmaga, þeim er Grettir
átti, en hrúturinn sá var vitur skepna sem,
með orðum Óttars, knýr í sífellu dyra,
rekinn áfram af forvitni og þrá eftir hinu
óþekkta. Þannig nálguðust fyrirlesarar
merkt vísinda- og rannsóknastarf Vil-
hjálms Rafnssonar úr ýmsum áttum en
komust þó að einni og sömu niðurstöðu.
Húmor og
vinnugleði
einkenna
Vilhjálm
Rafnsson
Vilhjálmur Rafnsson í hópi
vina og velunnara á málþingi
honum til heiðurs.
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Til meðferðar við miðlungsalvarlegum til alvarlegum
þrymlabólum (acne vulgaris).
NÝTT LYF
Lymecycline
Actavis 300 mg
Lymecycline Actavis 300 mg
(Hvert hylki inniheldur 408 mg af lymecýklíni sem jafngildir 300 mg af tetracýklíni.)
Lymecycline Actavis 300 mg, hart hylki. Virkt innihaldsefni: Hvert hylki inniheldur 408 mg af lymecýklíni sem jafngildir 300 mg af tetracýklíni. Ábendingar:
Lymecýklín er ætlað til meðferðar við miðlungsalvarlegum til alvarlegum þrymlabólum (acne vulgaris). Hafa skal í huga opinberar leiðbeiningar um viðeigandi notkun
sýklalyfja. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir: Venjulegur skammtur við langtímameðferð gegn miðlungsalvarlegum til alvarlegum þrymlabólum er 1 hylki á dag tekið
með a.m.k. hálfu glasi af vatni í uppréttri stöðu. Hylkið skal taka með léttri máltíð án mjólkurafurða. Meðferð skal haldið áfram í a.m.k. 8 vikur til 12 vikur, en hins vegar
er mikilvægt að takmarka notkun sýklalyfja við eins stutt tímabil og hægt er og hætta notkun þeirra þegar frekari bati er ólíklegur. Meðferð skal ekki haldið áfram í
meira en 6 mánuði. Aldraðir: Eins og á við um önnur tetracýklín er ekki þörf á sértækri skammtaaðlögun.Börn: Notkun er ekki ráðlögð hjá börnum yngri en 12 ára.
Börnum eldri en 12 ára má gefa fullorðinsskammt. Skert nýrnastarfsemi: Útskilnaðarhraði tetracýklíns minnkar þegar um skerta nýrnastarfsemi er að ræða og geta
venjulegir skammtar þannig valdið uppsöfnun. Ef um skerta nýrnastarfsemi er að ræða er ráðlagt að minnka skammtinn og hugsanlega að hafa eftirlit með þéttni í
sermi. Frábendingar: Lymecycline Actavis má ekki nota þegar um er að ræða ofnæmi fyrir lymecýklíni eða öðrum tetracýklínum eða einhverju hjálparefnanna,
sjúklinga með alvarlega skerðingu á nýrnastarfsemi, börn yngri en 12 ára, meðgöngu og brjóstagjöf, samhliðameðferð með retínóíðum til inntöku og notkun er tengist
altækum retínóíðum. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is.
Pakkningar og hámarksverð í smásölu (september 2015): 300 mg, 100 stk: 7.366 kr. Afgreiðsluflokkur: R. Greiðsluþátttaka: 0. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf.
Frekari upplýsingar: www.actavis.is, s: 550 3300. Dagsetning síðustu samantektar um eiginleika lyfsins: 10. febrúar 2015. September 2015.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
A
ct
av
is
5
1
9
0
1
2