Læknablaðið - 01.10.2015, Side 48
488 LÆKNAblaðið 2015/101
Vilhjálmur
lúðvíksson
efnaverkfræðingur,
fyrrum formaður Garðyrkju-
félags Íslands og fulltrúi GÍ í
stjórn Urtagarðsins
vilhjalmur.ludviksson@gmail.com
Norski grasafræðingurinn Per Arvid Åsen
svaraði spurningunni í fyrirsögninni ját-
andi í fyrirlestrum á vegum Urtagarðsins
í Nesi og á Norrænni ráðstefnu um sögu
læknisfræðinnar í ágúst síðastliðnum. Per
Arvid er sérfróður um sögu klausturjurta
og hefur rannsakað minjar um 31 klaustur
í Noregi og gaf nýlega út bók um niður-
stöðurnar. Á síðari árum hefur hann tekið
þátt í rannsóknum sem Steinunn J. Krist-
jánsdóttir fornleifafræðingur hefur staðið
fyrir á minjum um íslensk klaustur, meðal
annars með uppgreftri á Skriðuklaustri
og könnun á fleiri klausturstæðum. Þann
13. ágúst síðastliðinn var opnuð sýning í
Urtagarðinum í Nesi á 25 plöntutegundum
sem fundist hafa merki um í klausturrann-
sóknum og gætu hafa verið ræktaðar hér á
miðöldum (mynd 1).
Á Íslandi eru til heimildir um stofnun
13-14 klaustra, það elsta (Bær í Borgar-
firði) frá fyrri hluta 11. aldar, fyrir stofnun
Skálholtsstóls. Sum þeirra, eins og Þing-
eyraklaustur, voru starfrækt í meira en
400 ár, allt til siðaskipta um miðja 16.
öld. Lítið er til skráð um það sem þar fór
fram. Úr fornleifarannsóknum í Viðey og
með uppgreftri Skriðuklausturs hefur þó
komið nokkur vitneskja. Af rannsóknum á
Skriðuklaustri er dregin sú ályktun að ís-
lensk klaustur, sem mörg voru undir reglu
heilags Ágústínusar, hafi verið skipulögð
og starfrækt með sama hætti og fjölmörg
slík klaustur í Evrópu sem meiri heimildir
eru um. Stóð Skriðuklaustur þó einungis
í 60 ár. Meðal annars er ljóst að þar var
sjúkum líknað og ræktaður klausturgarð-
ur þar sem matjurtir og lækningajurtir
uxu.
Fyrirlestrar Per Arvid Åsen fjölluðu
um þær plöntur sem merki hafa fundist
um hér á landi í grennd við hin ýmsu
klausturstæði. Í Urtagarðinum í Nesi eru
þær til sýnis eins og lifandi minjar þessa
tíma og sögu ræktunar á Íslandi. Þá má
geta þess að við uppgröft í Viðey fannst á
sínum tíma lítil stytta af heilagri Dóróþeu
sem er verndardýrlingur garðyrkjumanna
og uppskeru. Garðyrkja hefur því verið
samofin klausturhaldi.
Klaustrin sem talið er að hafi verið
starfrækt hér á landi eru sýnd á mynd 2.
Rannsóknir á frjókornum og fræjum
úr borkjarnasýnum sem tekin hafa verið
við þessi klaustur og í uppgreftri við tvö
þeirra, svo og athuganir á núverandi gróð-
urfari umhverfis þau, leiða í ljós merki um
margar þekktar tegundir úr klausturgörð-
um erlendis, meðal annars nýlegum rann-
sóknum Per Arvid Åsen í Noregi. Margar
þeirra teljast reyndar til íslensku flórunnar
í dag en sumar gætu hafa komið til lands-
ins sem nytjaplöntur til matar eða lækn-
inga, hvort sem er með landnámsmönnum
eða á klausturtímanum. Meðal vel þekktra
og nokkuð útbreiddra plantna í dag eru
ætihvönn, vallhumall, kornsúra, mjaðurt,
holurt (reiðingsgras), maðra (gulmaðra eða
hvítmaðra) tágamura (gæsamura), einir,
villilín, græðisúra, kúmen og Spánarkerfill
sem nú breiðist hratt út eins og ætihvönn-
in. Ýmsar þessar tegundir hafa þó án efa
verið til í landinu fyrir landnám. Minna
þekktar garðategundir eru ljóstvítönn,
blóðkollur, mjaðarlyng, malurt, garða-
brúða og hagabrúða, brenninetla og hin
sérkennilega hjólkróna. Flestar þeirra eru
án efa innfluttar af mönnum. Einnig má
telja hér með villilauk sem vex útbreiddur
á Bæ í Borgafirði og hefur breiðst nokkuð
út með garðrækt. Villilaukurinn var
snemma á tímum mikilvæg krydd- og
lækningajurt og hefur líklega borist hing-
að með mönnum snemma á öldum. Fræ af
káltegund fannst á Skriðuklaustri og gæti
hafa verið ræktað nokkuð víða.
En sjaldgæfastar teljast þefjurtin (mynd
3) sem fannst fyrst við lok 19. aldar og vex
á fáeinum stöðum við Eyjafjörð í grennd
við meint klausturstæði (mynd 4), svo og
klóajurtin sem sést hefur öðru hvoru frá
1929 í grennd við klausturstæðið á Þing-
eyrum. Báðar þessar síðasttöldu jurtir hafa
án efa flust til landsins með mönnum þótt
ekki sé sannað hvernig. Þær eru einærar
og háðar því að skilyrði myndist til að
spíra, vaxa og bera fræ. Fræin virðast þó
geta lifað langan aldur í jörð áður en þau
spíra þegar tækifæri gefast, til dæmis við
jarðrask. Óvæntasti fundurinn er þó eitt
fræ af evrópska villieplinu sem fannst við
uppgröftinn á Skriðuklaustri. Villieplið
er vel þekkt matar- og heilsujurt frá fornu
Voru lækningaplöntur ræktaðar
á Íslandi á miðöldum?
Mynd 2. Klaustur á Íslandi á miðöldum. Mynd: Steinunn J. Kristjánsdóttir.
A Ð S E N T E F N I