Læknablaðið - 01.10.2015, Side 52
492 LÆKNAblaðið 2015/101
Jón Finsen (1826-1885) lauk læknaprófi við
Hafnarháskóla 1855. Talið er víst að hann
hafi kynnst svæfingum í Kaupmannahöfn
og haft með sér klóróform til Íslands. Í
Þjóðskjalasafninu eru varðveittar hand-
skrifaðar ársskýrslur frá embættistíð
Jóns á Akureyri. Í þeirri fyrstu (1856)
getur hann fyrstu svæfingar á Íslandi; „
... anvendte jeg Indaanding af Chloroform főr
Operationerne, hvilket efter Sigende ikke skal
være blevet anvendt tidligere her i Landet.“
Ekkert bendir til þess að neitt annað
svæfingalyf en klóróform hafi verið notað
hér á landi á 19. öld. Vilmundur Jónsson
landlæknir spurðist fyrir um reynslu
lækna af svæfingum í lok 19. aldar. Einn
svaraði meðal annars svo: „Sjúklingurinn
var svo svæfður með kloroformi, önnur svæf-
ingarmeðul voru ekki notuð.“
Matthías Einarsson hóf læknanám í
Hafnarháskóla 1898-1900 en útskrifaðist
frá Læknaskólanum í Reykjavík 1904. Í
ársskýrslu Landakotsspítala 1934 skrifaði
hann grein um svæfingar og deyfingar
fyrstu áratugi aldarinnar en þar stendur:
„Fram yfir aldamótin síðustu var chloroform-
svæfing og chloretyl-frysting að heita mátti
einustu deyfingar-aðferðirnar, er notaðar voru
nokkuð að mun.“ Skurðaðgerðum og þar
með svæfingum á Íslandi fjölgaði mjög
eftir að Landakotsspítalinn tók til starfa
1902. Klóróform var eina svæfingalyfið
sem var notað þar fyrstu árin en ætla má
að eter hafi verið tekinn í notkun 1906.
Í áðurnefndri grein Matthíasar stendur:
„Var uppúr því smátt og smátt farið að nota
æther til svæfinga hér og frá árunum 1906-
1907 má telja að hann hafi verið aðal svæfinga-
lyfið. – Þessi breyting var mjög til bóta. ... Má
heita að síðan hafi óblandað chloroform ekki
verið notað til svæfinga á Landakotsspítala.
En við stuttar svæfingar og vímur hefir verið
og er oft notuð chloroform-æther-blanda.“ Í
þessari grein má segja að Matthías kveðji
klóróformið sem svæfingalyf við stærri
aðgerðir með því að skrifa: „Chloroform-
svæfing var hættuleg og því miklu vandameiri
og eftirköstin fyrir veikluð líffæri, og vanlíðan
sjúklingsins eftir svefninn, miklu meiri en eftir
æthersvæfingu, ef um langa svæfingu var að
ræða.“ Klóróform var þó áfram notað við
styttri aðgerðir og við fæðingar.
Í grein Steingríms Matthíassonar í
Læknablaðinu 1918 um Narkosis obstetricia
stendur: „Þarf ekki nema fáeina dropa á
undan hríð, til að deyfa sársaukann, stundum
reyndar meira.“ Guðmundur Thoroddsen
skrifaði svo í Læknablaðið 1922: „Við narc.
obst. hefir chloroform verið langmest notað,
en ýms önnur svæfingarmeðul hafa líka verið
reynd og notuð, einkum aether. Eg hefi reynt
hann nokkuð, en ekki getist nærri því eins vel
að honum eins og chloroformi. Munurinn er
aðallega sá, að aetherinn verkar ekki nærri eins
fljótt.“ Árið 1935 óskaði stjórn Ljósmæðra-
félagsins eftir áliti Vilmundar landlæknis
á mikilli notkun nokkurra ljósmæðra á
klóróformi við fæðingar í heimahúsum
í Reykjavík. Landlæknir skrifaði meðal
annars í áliti sínu: „Og hitt er víst, að ef
ljósmóðir iðkar slíkar aðgerðir upp á eigið eins-
dæmi og án þess að læknir sé viðstaddur, er
það með öllu óheimilt og stórlega vítavert.“
Landspítalinn tók til starfa í lok árs
1930. Klóróform-eter blanda var smávegis
notuð til aðgerða fyrstu árin eftir opnun
hans, en hins vegar var klóróform eitt
sér í daglegri notkun vegna fæðinga á
spítalanum fram til 1951 þegar tríklór-
Ö l D U n G a D E i l D
Stjórn Öldungadeildar
Magnús B. Einarson formaður, Þórarinn
Sveinsson ritari, Hörður Alfreðsson gjaldkeri,
Guðrún Agnarsdóttir, Kristrún Benediktsdóttir.
Öldungaráð
Bergþóra Ragnarsdóttir, Jóhann Gunnar
Þorbergsson, Jón Hilmar Alfreðsson, Sigurður
E. Þorvaldsson, Tryggvi Ásmundsson, Valgarður
Egilsson.
Umsjón síðu
Páll Ásmundsson
Vefsíða: http://innri.lis.is/oldungadeild-li
Jón Sigurðsson
svæfingalæknir
Klóróform á Íslandi
– meira en 100 ára saga
Klóróform var fyrst framleitt nær samtímis af þremur
efnafræðingum, hverjum í sínu landi 1831. Fyrstur til
að nýta sér klóróform til svæfinga var Sir James Young
Simpson í Edinborg haustið 1847, ári eftir að notkun eters
hófst með formlegum hætti.