Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.10.2015, Qupperneq 53

Læknablaðið - 01.10.2015, Qupperneq 53
LÆKNAblaðið 2015/101 493 Vísinda- og þróunarstyrkir Úthlutun 2015-2016 Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna (FÍH) úthlutar styrkjum til vísinda- og þróunarverkefna á sviði heilsugæslu einu sinni á ári. Lögð er áhersla á að styrkja rannsóknir í heimilislækningum, um heimilislækningar og á forsendum heimilislækning- anna sjálfra. Sjóðurinn veitir einnig sérstaka starfsstyrki til slíkrar vinnu. Umsóknir um úthlutun fyrir styrkárið 2015-2016 þurfa að berast sjóðnum fyrir 20. október næstkomandi. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina. Umsóknum ber að skila rafrænt til Margrétar Aðalsteinsdóttur (magga@lis.is) hjá Læknafélagi Íslands, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi, ásamt rannsóknar- og fjárhagsáætlunum eða framgangsskýrslu ef um endurumsókn sama verkefnis er að ræða. Umsóknareyðublað er að finna á innra neti heimasíðu Læknafélagsins, lis.is, undir Tenglar. Starfsstyrkir geta verið allt frá einum til 12 mánaða í senn. Upphæð starfsstyrks miðast við fasta upphæð sem svarar til dagvinnulauna styrkþega og er þá tekið mið af menntun og starfsaldri, þó aldrei hærri en sem svarar dagvinnulaunum yfirlæknis í heilsugæslu. Sé styrkþegi starfandi á heilbrigðisstofnun innan heilsugæslunnar leggur stjórn Vísindasjóðsins til að styrkurinn verði greiddur beint til þeirrar stofnunar. Á móti komi að forsvarsmenn stofnunarinnar sjái til þess að styrkþegi haldi áfram starfi sínu, óbreyttum launum og réttindum, en fái jafnframt tíma til að sinna rannsóknarstörfum á dagvinnutíma. Sjóðurinn veitir að jafnaði starfsstyrki til verkefna sem krefjast minnst tveggja mánaða vinnu eða meira. Við mat á umsóknum er lögð áhersla á að rannsóknarverkefnið sé á forsendum heilsugæslunnar. Sé um vísindaverkefni að ræða er einnig lögð áhersla á tengsl rannsakenda við heimilislæknisfræði Háskóla Íslands eða aðra akademíska háskólastofnun í heimilislækningum. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Sigurðsson ( johsig@hi.is) Stjórn Vísindasjóðs FÍH Jón Finsen (1826- 1885) beitti fyrstur manna svæfingu við skurðaðgerð hér á landi 1856 og notaði til þess klóróform. etýlen kom til sögunnar. Óblandað klóróform hvarf smám saman úr notkun vegna skurðaðgerða á Íslandi á fjórða og fimmta áratug liðinnar aldar, en var þó á einstaka stað notað við stuttar aðgerðir, jafnvel fram yfir 1960. Í viðtali við Læknablaðið 2007 sagði Höskuldur Baldursson (cand. med. 1961) frá starfi sínu á Landakoti 1959. Þar kom fram að öll börn og unglingar hefðu verið svæfð með opnum maska. „Vírgrind vafin með grisjum var látin yfir vit sjúklingsins og síðan var hellt á grisjurnar, fyrst klóróformi sem er hraðvirkt en hættulegt svo það var bara notað til að ná sjúklingnum niður. Síðan var svæft með eter og það var einfaldlega gert á þann hátt að eternum var dreypt á maskann meðan á aðgerðinni stóð.“ Klóróform var notað við fæðingar í heimahúsum í Reykjavík og víða úti á landsbyggðinni að minnsta kosti fram á sjöunda áratuginn. Lauk þar með rúmlega hundrað ára sögu klóró- formsins á Íslandi. Í bókinni Svæfingar á Íslandi í 150 ár 1856-2006 (Jón Sigurðsson 2010) má sjá ítarlega heimildaskrá.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.