Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Page 10
föstudagur 24. apríl 200910 Fréttir EINKAÞOTUR, LÚXUSBÍLAR OG RÁNDÝRIR GOSKÆLAR Fréttir af 30 milljóna króna styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins árið 2006 vöktu mikla reiði hjá almenn- ingi. Sú upphæð er þó lítil í saman- burði við ýmsan annan kostnað sem félagið greiddi á árunum 2006 og 2007. Rekstrarkostnaður FL Group árið 2007 var 6,2 milljarðar króna en það ár skilaði félagið 67 milljarða króna tapi. Þar af var lögfræði- og ráð- gjafarkostnaður 1.300 milljónir króna og „annar kostnaður“ tveir milljarðar króna. Þegar Hannes Smárason lét af störfum sem forstjóri félagsins í lok árs 2007 lofaði eftirmaður hans, Jón Sigurðsson, að lækka rekstrarkostn- aðinn um 35 prósent. Á fyrstu þrem- ur mánuðum ársins 2008 skilaði fé- lagið síðan 48 milljarða króna tapi. Leigðu þotu Hannesar Meðal þess sem FL Group greiddi var leiga á einkaþotu Hannesar Smára- sonar sem félagið hafði afnot af. Árið 2007 greiddi FL Group 94 milljón- ir króna vegna „flugþjónustu“ við vél Hannesar. Vélin sem Hannes átti var af gerðinni Bombardier Chall- enger 604. Ásett verð hennar á sölu í Bretlandi var í kringum 20 milljónir dollara fyrir stuttu. Það er í kringum 2.500 milljónir króna samkvæmt nú- verandi gengi. Félagið J-Einnátta ehf. sem Jón Þór Sigurðsson fór fyrir sá FL Group fyrir einkabílstjórum. Sá félagið um að aka starfsmönnum og viðskipta- mönnum FL eftir þörfum. Sam- kvæmt ársreikningi J-Einnátta ehf. var útseld vinna Jóns Þórs á árunum 2006 og 2007 um 140 milljónir króna. Bílarnir sem félagið hafði til umráða voru af dýrustu gerð og meðal þeirra var BMW af 740-gerðinni. Auk þess að keyra með starfsmenn og við- skiptavini sá fyrirtæki Jón Þórs um að bóna bíla starfsmanna FL ef þeir óskuðu eftir því. Auk þess sótti fé- lagið mat fyrir starfsmenn. Í dag hefur sama félag, J-Einnátta ehf., fært að minnsta kosti tvær af bif- reiðum sínum yfir á nafn unn- ustu Hannesar Smárason- ar, fyrrverandi forstjóra FL Group. Granít og goskælar FL Group flutti starfsemi sína að Síðumúla 24 í lok árs 2007. Leigði félagið þar húsnæði á þremur hæðum af Byggingafélagi Gylfa og Gunnars (BYGG). Kostn- aður FL við að innrétta hús- næðið er talinn hafa verið nálægt milljarði króna. Segja kunnugir að hvergi hafi verið eytt jafn miklum fjármunum í sérsmíðað granít líkt og FL gerði. Meðal þess sem fyr- irtækið keypti voru 15 gos- drykkjakæliskápar sem kost- uðu nokkur hundruð þúsund hver. Starfsmenn voru á sama tíma um það bil þrjátíu talsins og því að meðaltali tveir starfs- menn á hvern hinna fínu, dýru gos- kæla. Þetta voru ekki einu dýru tækin á skrifstofunni. Þar var líka að finna tólf fimmtíu tommu plasmaskjái. FL Group var með höfuðstöðvar í Reykjavík en var auk þess með skrif- stofu í London og í Kaupmannahöfn. Samkvæmt heimildum DV borgaði FL Group hæsta fermetraverð fyrir skrifstofuhúsnæði í London af öllum fyrirtækjum sem þar störfuðu. Fé- lagið opnaði skrifstofu í London árið 2006. Um vorið 2007 opnaði FL skrif- stofu í Kaupmannahöfn. Þá var ekk- ert til sparað og var 300 manns boðið í opnunarpartí. Flogið var með mikið af íslensku fyrirfólki til Kaupmanna- hafnar og var þar á meðal sjálfur for- seti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms- son. Æft fyrir maraþon Í ársbyrjun 2007 hófu starfsmenn FL Group að æfa fyrir New York- maraþonið sem fram fór átta mánuðum síðar. Ekkert var til sparað og voru starfsmenn- irnir fyrst sendir á sex vikna Bootcamp-námskeið. Eftir það höfðu þeir hlaupaþjálf- ara alveg fram að hlaupi. Meðal þeirra sem tóku þátt í New York-maraþoninu 2007 voru Hann- es Smárason, Þor- steinn M. Jónsson og Magnús Ármann. Einnig tók Bjarni Ár- mannsson þátt í hlaup- inu en á sama tíma var REI-málið ein- mitt í hámæli á Íslandi. Starfsmenn FL fengu allir dýrustu gerð af hlaupagalla og skóm auk þess sem þeir gistu á einu dýrasta hóteli New York-borgar. Meðal þess sem Hannes Smárason samdi um þegar FL Group seldi Ice- landair var að fimm af æðstu stjórn- endum FL Group og makar þeirra fengju fríar flugferðir með Icelandair til æviloka. Síðar var þetta ákvæði stytt niður í fimm ár. Síðan átti FL Group að yfirtaka skuldbindinguna. „FL-dagurinn“ FL Group hélt einu sinni á ári svo- kallaðan „FL-dag“ þar sem flogið var með alla starfsmenn félagsins í einka- þotu til útlanda. Þar á meðal til Kaup- mannahafnar og London. Þorsteinn Guðmundsson uppi- standari talaði um kynni sín af FL Group á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Þar fjallaði hann um það þegar hann var fenginn sem veislustjóri til London á skemmtun sem haldin var á vegum félagsins. Af orðum hans má skilja það svo að óhóflegur peningaaust- ur og glamúr hafi einkennt félagið. Þar lýsti hann því hvernig hann fékk stærðarinnar hótelherbergi með tveimur hjónarúmum, tveimur bað- herbergjum og þremur sturtum að- eins fyrir sig. Þorsteini brá við herleg- heitin og lýsti því þannig í þættinum að honum hefði liðið illa í þessu her- bergi. Töpuðu á flestu FL Group tapaði á flestum fjárfest- ingum sínum. Þó má ætla að skyn- samlegasta fjárfestingin hafi verið í lággjaldaflugfélaginu Easyjet og Tryggingamiðstöðinni. Hins vegar tapaði félagið á fjárfestingum sín- um í Bang & Olufsen, AMR Corp- oration, móðurfélagi American Airlines, Finnair, þýska bankanum Commerzbank, danska drykkjar- vöruframleiðandanum Royal Un- ibrew, auk þess sem íslenska ríkið yfirtók stærstu eign þess sem var hlutur í Glitni. Síðan átti félagið 40 prósenta hlut í Landic Property en félagið óskaði eftir greiðslustöðvun í síðustu viku. Félagið eyddi 792 millj- ónum í kostnað vegna fyrirhugaðrar yfirtöku á breska leikjavélafélaginu Inspired Gaming. Ekkert varð af yf- irtökunni en FL Group átti 19 pró- senta hlut í félaginu. Bréf félagsins lækkuðu um 85 prósent næstu tólf mánuði eftir að FL tilkynnti um fyr- irhugaða yfirtöku sína. „Meðal þess sem fyrir- tækið keypti voru 15 gosdrykkjakæliskápar sem kostuðu nokkur hundruð þúsund hver.“ Hlaupaþjálfari fyrir starfsmenn, fjáraust- ur í skemmtanir og hundraða milljóna króna kostnaður við að innrétta leiguhús- næði eru meðal ástæðnanna fyrir því að rekstrarkostnaður FL Group nam rúmum sex milljörðum króna árið 2007. DV skoð- ar í hvað peningarnir fóru og hversu gott gat verið að vinna fyrir FL Group. Veislunni lokið Árið 2008 var ljóst að 60 milljarða hagnaður hafði snúist í nær 70 milljarða tap. Nýr forstjóri sór að lækka rekstrarkostnað um þriðjung. Skokkhópur FL Group starfsmenn og velunnarar fl group fengu Bootcamp-nám- skeið og hlaupaþjálfara á kostnað félagsins til að búa þá undir maraþon í New York. Veislan í algleymingi í stjórnartíð Hannesar var rekstrarkostnaður himinhár og ekkert sparað í lúxuslífi hjá fl group. dýr ferðalög og rándýr skrifstofa bættust á rekstrarreikninginn. annaS SiGmundSSon blaðamaður skrifar as@dv.is Ísköld kók starfs- menn þurftu ekki að hafa áhyggjur af volgu gosi með 15 goskæla á skrifstofunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.