Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Blaðsíða 57
föstudagur 24. apríl 2009 47Lífstíll
Spila lög FogertyS Hljómsveitin CCreykjavík er þessa
dagana að gefa út geisladiskinn 1967 með lögum eftir John fog-
erty, forsprakka hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Creedence
Clearwater revival sem hélt stórgóða tónleika hér á landi í fyrra-
sumar. af því tilefni heldur hljómsveitin útgáfutónleika í leikhús-
inu í Mosfellsbæ í kvöld, föstudag. Hljómsveitina skipa Birgir Har-
aldsson söngur, sigurgeir sigmundsson gítar, Ingólfur sigurðsson
trommur og Jóhann Ásmundsson bassi. tónleikarnir hefjast klukk-
an 21.
uMsJón: kolBrún pÁlína HelgadóttIr, kolbrun@dv.is
plötuSnúðar
takaSt á
IceGigg efnir til plötusnúðakeppni á Rúbín á laugardag þar sem gestir skera úr um sigur með fagnaðarlátum:
„Þetta er fyrsta svona keppnin á Ís-
landi. Þar sem raftónlistarplötu-
snúðar keppa sín á milli,“ segir Ragn-
ar Andri Hlöðversson, einn eigenda
fyrirtækisins IceGigg. Fyrirtækið er
nýtt af nálinni en ásamt Ragnari reka
það þeir Daníel Örn Jóhannesson og
Rúnar Svavarsson. Félagarnir fluttu
nýlega inn Leroy Thornhill úr hljóm-
sveitinni Prodigy en nú ætla þeir að
efna til plötusnúðakeppni á veitinga-
staðnum Rúbín í Öskjuhlíð á kosn-
inganótt.
„Svona kvöld hafa verið hald-
in áður innan hip hop-senunnar en
aldrei með techno- eða electro-tón-
list,“ útskýrir Ragnar en alls munu
13 plötusnúðar keppa sín á milli um
hylli dansþyrstra gesta. „Það verða
tvö DJ-borð á staðnum og sviðsljós-
ið einungis á öðru þeirra á meðan
keppinauturinn kemur sér fyrir hin-
um megin.“
Hver og einn plötusnúður fær um
20 til 30 mínútur til þess að heilla
fólkið. „Það þýðir að hver einasti
plötusnúður er að reyna sitt besta.
Allir byrja strax á gæðaefni og þess
vegna fær fólkið enn meiri stemn-
ingu en vanalega. Engin upphitunar-
lög heldur bara full keyrsla frá hverj-
um og einum,“ heldur Ragnar áfram.
Kvöldið ber nafn með rentu eða
Make Some Noise ´09. Því það er
fólkið í salnum sem sker úr um hvaða
plötusnúður ber sigur úr býtum.
„Það verður hávaðamælir á staðnum
og verða fagnaðarlætin mæld eftir
að hver og einn keppandi hefur lok-
ið sér af.“ Ekki nóg með það heldur
verður hinn glæsilegi staður Rúbín
undirlagður af svokölluðum gogo-
dönsurum sem munu skemmta sér
og öðrum gestum.
Þeir félagar í IceGigg ætla að ein-
beita sér að fleiru en bara tónleika-
haldi og plötusnúðakvöldum í fram-
tíðinni. „Við ætlum ekki bara að
einbeita okkur að raftónlist heldur
meira að skemmtanahaldi almennt.
Fólk getur líka haft samband við okk-
ur ef það þarf hjálp við að skipuleggja
svona atburði. Síðan erum við með
ýmislegt uppi í erminni en það kem-
ur bara í ljós seinna,“ segir Ragnar að
lokum en IceGigg á eflaust eftir að
vera áberandi í skemmtanalífi lands-
manna næstu misseri.
Hægt er að kaupa miða á Make
Some Noise ´09 í Blend í Kringlunni,
Smáralind og Keflavík. Miðinn er á
sannkölluðu kreppuverði eða aðeins
1.000 krónur.
asgeir@dv.is
Eigendur IceGigg ragnar
andri Hlöðversson, daníel
örn Jóhannesson og rúnar
svavarsson.