Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Blaðsíða 72
„Vinur minn sem var að keyra, var
nýbúinn í bakaðgerð, þannig að það
fyrsta sem ég hugsaði var hvort væri
í lagi með bakið hans. Annað sem
ég hugsaði var að ég þyrfti að fá mér
sígarettu og þriðja var hvort ég þyrfti
að borga vini mínum bensínið,“ seg-
ir Aron Pálmi Ágústsson glaðbeittur
þrátt fyrir alvarlegt bílslys sem hann
lenti í á miðvikudaginn.
Aron var í bíl með þremur vin-
um sínum að keyra í Kópavogi niður
brekku. Í miðri brekku ákveður öku-
maðurinn, vinur Arons Pálma, að
hægja á sér. „Við heyrðum eitthvað
smella og síðan virkuðu bremsurnar
ekki. Vinur minn tók í handbremsuna
en það bar lítinn árangur. Fram und-
an voru gatnamót þannig að við gát-
um beygt til hægri og klesst á hús, far-
ið beint áfram og kannski klesst á bíl
eða beygja til vinstri og lent á tré. Við
ákváðum að fara til vinstri og lentum
á tré en bíllinn var á fjörutíu til fimm-
tíu kílómetra hraða. Ég braut fram-
rúðuna með hausnum á mér. Bíllinn
gjöreyðilagðist og það voru brot úr
honum út um allt. Einn vinur minn
var fluttur með sjúkrabíl á Landspít-
alann og ég og annar vinur minn
fórum þangað í skoðun,“ segir Aron
Pálmi en bráðabirgðaniðurstöður úr
læknisskoðun sýndu að ekkert amaði
að Aroni Pálma. „Þegar ég steig út úr
bílnum fann ég fyrir tánum á mér og
höndum og athugaði hvort ég hefði
nokkuð eyðilagt í mér tennurnar. Þeg-
ar ég kom upp á Landspítala vissi ég
hvaða dagur var og hver forseti Ís-
lands er þannig að það er allt í lagi
með mig.“
n Leikstjórinn góðkunni Júlíus
Kemp gat svo sannarlega látið fara
vel um sig á leið til London í flugvél
Iceland Express í síðustu viku. Júlíus
var nefnilega meðal þriggja farþega í
vélinni en ásamt þeim á ferðalaginu
voru fimm flugfreyjur og þrír flug-
menn. Í samtali við DV vildi Júlíus
sem minnst tjá sig um ferðalagið en
að sögn viðstaddra var frekar tóm-
legt í vélinni. Að sögn Matthíasar
Imsland, forstjóra Iceland Express,
var um leiguflugvél að ræða sem
verið var að ferja milli
landa. Í staðinn fyrir
að fljúga með hana
tóma var tekið á það
ráð að reyna að hafa
tekjur upp úr krafs-
inu með því að fólk
keypti „flugmiðann,
samloku um borð
og kannski eitt
armband“, eins
og Matthías
segir sjálfur.
Eru allir svona flugleiðir?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
Einmana
í flugvél
Aron Pálmi Ágústsson lenti í alvarlegu bílslysi með vinum sínum á bremsulausum bíl:
Braut framrúðuna mEð hausnum
n Spéfuglinn geðþekki Sverrir Þór
Sverrisson, eða Sveppi eins og hann
er oftast kallaður í daglegu tali,
mætir samviskusamlega í ræktina í
Laugum þessa dagana til að halda
línunum í lagi. Það má með sanni
segja að Sveppi skeri sig úr í þessari
frægustu líkamsræktarstöð lands-
ins þar sem hann mætir
stundum í upplituð-
um íþróttafötum
og kærir sig koll-
óttan um tískuna í
líkamsræktarfatn-
aði. Athygli vekur
einnig að Sveppi
tyggur oft tyggjó
er hann skokkar
á hlaupabrettinu
með iPod-inn í
eyrunum en það
sjá gestir líkams-
ræktarstöðva
ekki á hverjum
degi.
n Stórleikarinn Stefán Karl Stefáns-
son kaus í byrjun vikunnar enda
búsettur í Los Angeles ásamt sinni
heittelskuðu, leikkonunni Stein-
unni Ólínu Þorsteinsdóttur. Á
Facebook-síðu sinni er Stefán Karl
ekki hræddur við að opinbera það
fyrir heiminum hvað hann kaus.
Hann setti X við Borgarahreyfing-
una og segir að hann sé „búinn að
fá nóg af þessu gamla
fyrirgreiðsluliði“ og
bætir við í hástöf-
um: „Ég vil alvöru
breytingar!“ Vel virð-
ist fara um Stefán
Karl í borg englanna
því á síðu sinni segist
hann hafa eytt
þrjátíu árum
ævi sinnar
á Íslandi
og ætli
að eyða
næstu
þrjátíu
vestan
hafs.
stEfán Karl
sEtur X við O
Brugðið aron Pálmi slapp vel.
mEð tyggjó
á hlaupaBrEttinu