Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Blaðsíða 34
föstudagur 24. apríl 200934 Helgarblað Logi Berg- mann skemmti- Legastur sigmundur davíð gunnLaugsson, formaður framsóknarfLokksins: í einu orði, hver var orsök hrunsins? „andvaraleysi.“ Hverju myndir þú breyta á íslandi ef þú gætir breytt hverju sem er? „Hugarfarinu.“ vissir þú fyrir hrun að ríkisábyrgð væri á erlendum innlánum einkabanka? „Já, ég var búinn að átta mig á því.“ Hver er besti tími sólarhringsins? „snemma nætur.“ Hefur þú villt á þér heimildir á netinu? „Nei.“ Hversu lengi hugnast þér að leiða þinn flokk? „Óráðið, enda nýtekinn við.“ Á þjóðin kvótann? „Þjóðin á auðlindina.“ ertu trúaður og hvernig iðkar þú trú þína? „Já. í hljóði.“ Hvaða kvikmynd sást þú síðast í bíó? „??“ Hvað á íslenska krónan langt eftir? „Heilsan er tvísýn.“ Hversu hátt hlutfall atkvæða yrði framboði þínu ásættanlegt? „Það sem þjóðin kýs að veita því.“ Langar þig að biðja einhvern afsökun- ar? „Nei.“ Hvaða fjölmiðli treystir þú best? „rÚV.“ Hefur þú drepið dýr? „Já, lax.“ er þetta allt útrásarvíkingunum að kenna? „Nei, ekki allt.“ Hvaða íslendingur er skemmtilegastur? „logi Bergmann.“ er einhver þingmaður í röngum flokki? „góð spurning, en því miður hef ég ekki svar. Þó sýnist mér sumir vera áttavilltir.“ Hversu hratt hefur þú keyrt á íslandi? „Hef ekki hugmynd um það, en ég fer alltaf rólega í gegnum Húnavatnssýslurnar.“ Hvað getum við lært af hruninu? „samtíminn varir ekki að eilífu og því ber að sýna fyrirhyggju.“ Hvenær verður botni kreppunnar náð? „í haust eða byrjun næsta árs.“ Brugðust fjölmiðlar í aðdraganda hrunsins? „fjölmiðlamenn eru síst betri í því en aðrir að sjá fyrir óorðna hluti. En ég held að margir fjölmiðlamenn nagi sig í handarbökin fyrir að hafa ekki verið gagnrýnni á ýmislegt sem var að gerast í aðdraganda hruns og séu að nokru leyti að bæta sér það upp núna, með óvægnum frásögnum.“ Hefurðu neytt fíkniefna? „Nei.“ Þurfa þingmenn aðstoðarmenn? „Já.“ skortir pólitíska ábyrgð á íslandi, sbr. bankahrunið? „Það skortir að menn geri sér grein fyrir því hvað í henni felst.“ kemur til greina að breyta þingsköpum til að lágmarka málþóf? „Ef það er vilji þingheims.“ kanntu á þvottavél? „að sjálfsögðu.“ Höfum Lært Hvað Á ekki að gera steingrímur J. sigfússon, formaður vinstriHreyfingar- innar - græns framBoðs: í einu orði, hver var orsök hrunsins? „græðgi, siðblinda og heimska.“ Hverju myndir þú breyta á íslandi ef þú gætir breytt hverju sem er? „Ég mundi þurrka allar skuldir af ríkinu og af almenningi sem á þeim hefur lent vegna bankahrunsins.“ vissir þú fyrir hrun að ríkisábyrgð væri á erlendum innlánum einka- banka? „Ég þekkti í grófum dráttum efni tilskipunar Evrópusambandsins um innistæðutryggingar og það rann upp fyrir mér fyrir tæpu ári síðan eða svo, að þessi innlánstrygging tæki til innlána útibúa íslenskra banka erlendis.“ Hver er besti tími sólarhringsins? „snemma á morgnana er oft góður tími og einnig síðdegis eða undir kvöld að loknum góðum vinnudegi, það er að segja ef hann stendur ekki lengur.“ Hefur þú villt á þér heimildir á netinu? „Nei, ekki svo ég viti til.“ Hversu lengi hugnast þér að leiða þinn flokk? „Ekki mitt einkamál, heldur flokksmanna. svarið gæti verið: Enn um sinn, meðan báðir aðilar eru ánægðir með þá tilhögun.“ Á þjóðin kvótann? „Já.“ ertu trúaður og hvernig iðkar þú trú þína? „Nei, ég er efahyggjumaður í trúmálum.“ Hvaða kvikmynd sást þú síðast í bíó? „Man það ekki, orðið langt síðan.“ Hvað á íslenska krónan langt eftir? „að minnsta kosti mörg ár enn.“ Hversu hátt hlutfall atkvæða yrði framboði þínu ásættanlegt? „öll myndarleg viðbót er góð niðurstaða.“ Langar þig að biðja einhvern afsökunar? „Nei, ekki sem stendur.“ Hvaða fjölmiðli treystir þú best? „smugunni og gömlu gufunni.“ Hefur þú drepið dýr? „Já, ég er veiðimaður.“ er þetta allt útrásarvíkingunum að kenna? „Nei, en talsvert mikið af því.“ Hvaða íslendingur er skemmtileg- astur? „Ja, til dæmis skúli á Álandi, hann er gríðarlega launfyndinn maður.“ er einhver þingmaður í röngum flokki? „Nei, ekki endilega, en einhverjir eru kannski á rangri hillu.“ Hversu hratt hefur þú keyrt á íslandi? „Ekki gefið upp, en örugglega einhvern tímann of hratt, sérstaklega á yngri árum.“ Hvað getum við lært af hruninu? „Mjög margt, fyrst og fremst það hvernig á EKKI að gera hlutina.“ Hvenær verður botni kreppunnar náð? „Vonandi er sá tími að nálgast, en það verður áfram erfitt einhver misseri.“ Brugðust fjölmiðlar í aðdraganda hrunsins? „Já, heldur betur.“ Hefurðu neytt fíkniefna? „Nei.“ Þurfa þingmenn aðstoðarmenn? „Nei, ekki endilega, að minnsta kosti ekki meðan svona árar.“ skortir pólitíska ábyrgð á íslandi, sbr. bankahrunið? „Já, það skortir bæði pólitíska og siðferðislega ábyrgð. Það skortir ekki síður heiðarleika og hreinskilni.“ kemur til greina að breyta þingsköp- um til að lágmarka málþóf? „Nei, það verður líka að verja málfrelsið.“ kanntu á þvottavél? „Já, já, heldur betur, og nota hana talsvert.“ ofmat og óHóf í „góðærinu“ guðrún maría óskarsdóttir, taLsmaður LýðræðisHreyfingarinnar í suðvesturkJör- dæmi: í einu orði, hver var orsök hrunsins? „Ofmat.“ Hverju myndir þú breyta á íslandi ef þú gætir breytt hverju sem er? „að launþegar á vinnumarkaði geti lifað af launum sínum eftir skatta.“ vissir þú fyrir hrun að ríkisábyrgð væri á erlendum innlánum einkabanka? „Nei.“ Hvenær er besti tími sólarhringsins? „Morguninn.“ Hefur þú villt á þér heimildir á netinu? „Nei.“ Hversu lengi hugnast þér að leiða þinn flokk? „lýðræðishreyfingin hefur aðeins talsmenn, og eins lengi og ég þarf mun ég vera talsmaður lýðræðisumbóta.“ Á þjóðin kvótann? „fiskimiðin við ísland eru sameign íslensku þjóðarinnar nú sem endranær.“ ertu trúuð og hvernig iðkar þú trú þína? „Já, ég er kristinnar trúar og bið mínar bænir hvert kveld.“ Hvaða kvikmynd sást þú síðast í bíó? „Man það ekki, það er svo langt síðan ég fór í bíó.“ Hvað á íslenska krónan langt eftir? „Hálfan áratug að minnsta kosti að mínu mati.“ Hversu hátt hlutfall atkvæða yrði framboði þínu ásættanlegt? „Því fleri beintengdir fulltrúar lýðræðishreyfingarinnar á þingi, því meiri áhrif fólksins í landinu.“ Langar þig að biðja einhvern afsökunar? „Man ekki eftir neinum í bili.“ Hvaða fjölmiðli treystir þú best? „geri ekki upp á milli þeirra hvað traust varðar, en rýni ætíð á milli lína alls sem ritað er.“ Hefur þú drepið dýr? „Já, ég veiddi fýl í gamla daga undir Eyjafjöllum.“ er þetta allt útrásarvíkingunum að kenna? „Þeir menn sem fengu fjármagn í hendur í miklu magni en kunnu sér ekki hóf eiga sök á því hve hátt fallið er hér á landi, hins vegar tel ég að flestir þurfi að líta í eigin barm og spyrja spurninga um þátttöku í hinu meinta „góðæri“ hér á landi.“ Hvaða íslendingur er skemmtilegastur? „Maðurinn bak við tjöldin í spaugstofunni hverju sinni.“ er einhver þingmaður í röngum flokki? „Já, venjulega korteri fyrir kosningar þegar þeir hafa tapað í prófkjörum.“ Hversu hratt hefur þú keyrt á íslandi? „Ég ek á löglegum hraða, að sjálfsögðu.“ Hvað getum við lært af hruninu? „Við getum lært heilmargt, einkum og sér í lagi þarf að endurnýja gildismatið í heild.“ Hvenær verður botni kreppunnar náð? „að öllum likindum um og fyrir áramótin næstu.“ Brugðust fjölmiðlar í aðdraganda hrunsins? „Já.“ Hefurðu neytt fíkniefna? „Nei.“ Þurfa þingmenn aðstoðarmenn? „Nei, ekki alla jafna að ég tel en í einstökum tilvikum kann svo að vera.“ skortir pólitíska ábyrgð á íslandi, sbr. bankahrunið? „Já, það skortir pólitíska ábyrgð og hefur gert hér á landi um áraraðir, því miður.“ kemur til greina að breyta þingsköpum til að lágmarka málþóf? „Já, sjálf vildi ég sjá fundarstjórn á þingi afmarkast enn frekar af viðfangsefnunum.“ kanntu á þvottavél? „Já, það er víst alveg ábyggilegt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.