Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Page 12
föstudagur 24. apríl 200912 Fréttir
Tímalína frá Tildrögum bankahrunsins
Snemma árs 2008
n fulltrúar erlendra banka
lýstu miklu vantrausti
á Kaupþing og glitni á
fundum með fulltrúum
seðlabanka íslands í
lundúnum. davíð Oddsson
segist hafa greint forystu-
mönnum ríkisstjórnarflokkanna
frá þessu, ráðherrum og embættismönnum.
25. júlí 2008
n Þorgerður Katrín gunnarsdóttir gagnrýnir sér-
fræðing hjá greiningardeild fjárfestingarbankans
Merill lynch. Hann sagði andvaraleysi einkenna
íslensku ríkisstjórnina og varaði við erfiðri stöðu
bankanna. Þorgerður sagðist telja annarleg
sjónarmið búa þarna að baki og stakk upp á að
maðurinn yrði sér úti um endurmenntun.
Sumarið 2008
n Ingibjörg sólrún
gísladóttir og geir
Haarde ferðast til
útlanda, meðal
annars danmerkur og
Bandaríkjanna, þar sem
þau mæra „íslenska
efnahagsundrið“.
29. september
n glitnir þjóðnýttur. ríkið eignast 75 prósenta hlut
í bankanum.
6. október 2008
n Neyðarlögin sett sem heim-
ila fjármálaeftirlitinu að taka
yfir rekstur bankastofnana.
7. október 2008
n fjármálaeftirlitið fór inn í
landsbankann um nóttina
og tók yfir reksturinn.
öll viðskipti hjá Icesave
stöðvast.
n davíð Oddsson seðlabankastjóri segir í Kastljós-
viðtali að íslendingar ætli „ekki að borga erlendar
skuldir óreiðumanna“.
n Árni Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra,
ræðir í síma við fjármálaráðherra Bretlands,
alasdair darling.
n fjármálaeftirlitið fór inn í glitni um kvöldið og
tók yfir reksturinn.
Á nýafstöðnu kjörtímabili hefur
umræða í samfélaginu um óeðli-
lega fyrirgreiðslu frá fyrirtækjum til
stjórnmálamanna náð áður óþekkt-
um hæðum. Sérstaklega hefur þessi
umræða magnast upp í kjölfar
bankahrunsins í haust þegar mikil
reiði og tortryggni byrjaði að gera
vart við sig í garð stjórnmálamanna
vegna þátttar þeirra í efnahags-
hruninu. Spillingarsögur tengdar
góðærinu byrjuðu að koma fram
í dagsljósið; það virtist sem eng-
inn hefði sérstakan áhuga á þeim
á meðan allt lék í lyndi í samfélag-
inu og almenningur trúði því að ís-
lenska bankakerfið væri traust og
útrásarvíkingarnir sem áttu þá og
stjórnuðu þeim vissu nákvæmlega
hvað þeir væru að gera.
Samkrull stjórnmála og
viðskiptalífs tortryggt
En eftir hrunið hafa Íslendingar
byrjað að kalla eftir uppgjöri við
það samfélag og þann tíðaranda
sem leiddi til efnahagshrunsins;
viðkvæðið virðist vera að allt sem
áður var hulið og hugsanlega átti
þátt í að valda efnahagshruninu
skuli leitt fram í dagsljósið. Eitt af
þeim atriðum sem almenningur
hefur gert kröfu um að komi fram
eru tengsl stjórnmálamanna
við viðskiptalífið. Þar ber hæst
tengsl stjórnmálamanna við
fyrirtæki og einkahlutafélög,
hvort þeir hafi hlotið próf-
kjörsstyrki frá fyrirtækjum
og eins hvort þeir hafi hlot-
ið óeðlilega fyrirgreiðslu úr
bankakerfinu.
Hættan við slík tengsl
við atvinnulífið hefur þótt
vera sú að það geti verið
hættulegt að menn úr við-
skiptalífinu eigi hönk uppi
í bakið á stjórnmálamönn-
um því þá geti þeir síðarnefndu
hugsanlega talað máli þeirra
gegn almannahagsmunum í til-
teknum málum. Í þessari umræðu
hefur gjarnan verið vísað til orðatil-
tækisins að eitthvað sé kaup kaups
og að stjórnmálamennirnir hljóti þá
að launa fyrirtækjunum greiðann
með því að beita sér fyrir þau á ein-
hvern hátt. Þrátt fyrir að slík tengsl
séu til staðar er hins vegar ekki þar
með sagt að stjórnmálamaðurinn
hafi beitt sér í þágu einhvers fyrir-
tækisins og ekki þurfa að liggja fyr-
ir sannanir þess efnis til þess að slík
tengsl grafi undan trúðverðugleika
stjórnmálamanna.
Baugur dældi peningum í
stjórnmálamenn
Segja má að þrátt fyrir stöðuga um-
fjöllun íslenskra fjölmiðla um þessa
vafasömu tengingu stjórnmála og
viðskipta á liðnum mánuðum má
segja að hún hafi náð hámarki með
fréttum af 25 milljóna króna styrkj-
um frá FL Group og Landsbankan-
um til Sjálfstæðisflokksins árið 2006
og nú í vikunni þegar Stöð 2 og DV
greindu frá því að nokkrir stjórn-
málamenn hefðu hlotið himin-
háa prófkjörsstyrki frá Baugi og FL
Group.
LANDSBANKINN STYRKTI
ALLA ÞÁ SEM VILDU
IngI F. VIlhjálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Styrkjamálin varpa skugga á Alþingi umræðan um styrki til stjórn-
málaflokka og einstakra frambjóðenda hafa mikið verið í umræðunni upp á
síðkastið og sett strik í reikninginn í kosningabaráttunni og varpað skugga á
trúðverðugleika þingmanna. Þessi umræða mun líklega hafa nokkur áhrif á
niðurstöður þingkosninganna um helgina.
Styrkjahæst steinunn Valdís Óskarsdóttir,
þingkona smafylkingarinnar, hlaut hæstu
styrkina af þingmönnum samfylkingarinnar:
alls fjórar milljónir frá fl group og Baugi. Hún
gæti lent í útstrikunum í kosningunum um
helgina út af styrkjamálunum.