Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Page 14
föstudagur 24. apríl 200914 Fréttir
1. febrúar 2009
n Ný ríkisstjórn samfylkingar og vinstri-grænna tekur
við.
8. mars 2009
n tryggvi Þór Herbertsson, frambjóðandi
sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forstjóri askar
Capital, viðurkennir að einkahlutafélag í hans eigu
hafi fengið 150 milljóna kúlulán frá askar Capital til
að kaupa hlutabréf í bankanum sjálfum árið 2007.
2. apríl 2009
n upplýst að Jónmundur guðmarsson, bæjarstjóri á seltjarnarnesi,
er hluthafi í einkahlutafélagi sem fékk 2 milljarða kúlulán til að kaupa
hlutabréf í Icebank.
9. apríl 2009
n greint frá því að guðlaugur Þór Þórðarson hafi haft
forgöngu um að útvega sjálfstæðisflokknum styrki upp á
tugi milljóna í árslok 2006 frá fl group og landsbankan-
um. guðlaugur neitar.
22. apríl 2009
n dv.is greinir frá því að guðlaugur Þór Þórðarson og
steinunn Valdís Óskarsdóttir hafi hvort um sig fengið 4
milljónir króna í styrki í aðdraganda síðustu alþingiskosn-
inga: tvær milljónir hvort frá Baugi og tvær milljónir frá
fl group. Einnig er sagt frá styrkjum sem fimmtán aðrir
þingmenn þáðu frá Baugi.
Tímalína frá Tildrögum bankahrunsins
arminum við þessi tíðindi.
Sá orðrómur hefur hins vegar
gengið fjöllum ofar að hann hafi
fengið háan styrk frá Landsbank-
anum vegna prófkjörs fyrir þing-
kosningarnar árið 2007.
Í samtali við blaðamann DV fyr-
ir nokkru svaraði Illugi spurningu
þess efnis á þá leið að hann hefði
ekki sjálfur séð um fjáröflunina
fyrir prófkjörsbaráttu sína heldur
þriðji aðili og að hann vissi því ekki
hversu mikið tilteknir aðilar hefðu
gefið í prófkjörssjóð hans. Guð-
laugur Þór svaraði þessari spurn-
ingu á sama hátt þegar blaðamað-
ur innti hann eftir því hvort hann
hefði fengið styrki frá Baugi; hann
bar því við að hann hefði ekki sjálf-
ur séð um fjármögnun prófkjörs-
baráttu sinnar og gæti því ekki
svarað spurningum þar um. Þetta
virðist því vera algengt hjá stjórn-
málamönnum þegar þeir eru inn-
tir eftir því hver hafi styrkt þá en að
sama skapi eru slík svör afar ótrú-
verðug.
Landsbankinn: Þeir fengu
sem hringdu
Heimildir DV herma hins veg-
ar að afar líklegt sé að bæði
Guðlaugur og Illugi
hafi fengið prófkjörs-
styrki úr bankan-
um árið 2006 auk
fjölda annarra
þingmanna og
sveitarstjórnar-
manna. Sam-
kvæmt heimild-
um DV var sá
háttur hafður á
innan Lands-
bankans að
þeir þingmenn
sem báðu um
prófkjörs-
styrki fengu þá. „Það er þannig að
nær allir einstaklingar sem voru í
prófkjöri og óskuðu eftir stuðningi
í Landsbankanum fengu hann, al-
veg sama hvar í flokki þeir voru,“
segir heimildarmaður DV. Styrk-
irnar námu frá 200 þúsund krón-
um og upp í milljón samkvæmt
heimildum. En heimildarmaður-
inn segir að á þessum tíma hafi ein
milljón ekki þótt mikil fjárhæð inn-
an Landsbankans.
Guðlaugur ræddi við Sigurjón
Heimildarmaður DV vill ekki nefna
nöfn þeirra sem fengu styrkina frá
Landsbankanum né hversu
háir þeir voru. Hann nefn-
ir hins vegar nöfn Guð-
laugs Þórs, Illuga,
Gísla Marteins Bald-
urssonar, Vilhjálms
Þ. Vilhjálmsson-
ar og Dags B. Egg-
ertssonar án þess
að fullyrða að þeir
hafi fengið styrki..
En prófkjörsbar-
áttur þeirra þriggja
síðastnefndu í
borgarstjórnar-
kosningunum árið
2006 voru afar
áberandi.
Dagur
segir í samtali við DV að hann geti
ekki staðfest hvort hann hafi feng-
ið prófkjörsstyrk frá Landsbank-
anum. Hann segist þó hafa leitað
eftir styrkjum en að enginn styrk-
ur sem hann fékk hafi verið hærri
en 500.000 krónur. Hvorki náðist
í Gísla Martein né Vilhjálm Þ. við
vinnslu fréttarinnar.
Heimildamaður DV segir einn-
ig að almennt séð hafi stjórnmála-
flokkar ekki fengið hærri styrki en
fimm milljónir króna í kosninga-
sjóði sína þar til Landsbankinn
veitti Sjálfstæðisflokknum 25 millj-
óna króna styrkinn í árslok 2006.
Hann segir að Sjálfstæðisflokkur-
inn hafi fengið þetta háan styrk frá
bankanum vegna þess að FL Group
hafi ákveðið að veita Sjálfstæðis-
flokknum 25 milljóna króna styrk
og að bankinn hafi viljað veita eins
háan styrk. Hann segir aðspurð-
ur að það sé rétt sem komið hafi
fram í fjölmiðlum að Guðlaug-
ur Þór hafi hringt í Sigurjón Árna-
son, bankastjóra Landsbankans,
og beðið bankann um að styrkja
flokkinn. Hann segir þó að það sé
ólíklegt að Guðlaugur hafi beð-
ið um þetta háa fjárhæð; hún hafi
líklega verið ákveðin af bankastjór-
anum sjálfum. Þrátt fyrir þetta hef-
ur verið nokkur pressa á Guðlaug
Þór innan úr Sjálfstæðisflokknum
að draga framboð sitt til alþingis-
kosninganna til baka, flokknum til
heilla, samkvæmt heimildum DV.
Guðlaugur hefur hins vegar ekki
orðið við þessum þrýstingi þó að
jafnvel nánir samstarfsmenn hans
séu á þeirri skoðun að hann eigi að
víkja af lista flokksins í Reykjavík.
Glitnir styrkti ekki einstakl-
inga
Öfugt við Landsbank-
ann var það stefna
Glitnis að styrkja
ekki einstaklinga
í prófkjörsbaráttu
á þessum tíma,
segir heim-
ildamað-
ur DV úr
Glitni.
Ein-
stakir
stjórnmálamenn höfðu þó oft
samband við bankann til að fal-
ast eftir styrkjum en fengu alltaf
svarið þvert nei við beiðnum sín-
um. Stjórnmálaflokkarnir fengu þó
styrki fyrir kosningarnar 2007 og
segir heimildarmaðurinn að það
hafi verið vegna þess að flokkarn-
ir hafi sóst eftir því. Hann segir að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi fengið 5
milljónir, Samfylkingin 3 eða 3,5 og
Framsóknarflokkurinn 2.
DV hefur ekki náð að verða sér
úti um upplýsingar um hvernig
styrkveitingunum frá Kaupþingi
var háttað fyrir efnahagshrunið í
haust.
Styrkjamálin geta leitt til
útstrikana
Umræðan um styrkjamálin og önn-
ur tengsl stjórnmálamanna við at-
vinnulífið sem hafa verið tortryggð
hafa haft mikil áhrif á kosningabar-
áttuna fyrir alþingiskosningarnar á
laugardaginn sem og á niðurstöðu
kosninganna. Einar Mar Þórð-
arson stjórnmálafræðingur seg-
ir að umræðan um styrkveitingar
til stjórnmálaflokkanna og stjórn-
málamanna hafi haft sérstaklega
slæm áhrif á Sjálfstæðis-
flokkinn. „Í staðinn
fyrir að Sjálfstæð-
isflokkurinn hafi
getað einbeitt
sér að kosn-
ingabarátt-
unni og kynnt
sín áherslu-
mál hafa þeir
þurft að vera
að svara fyr-
ir styrkja-
mál,“ segir
Einar Mar og
bætir því við
að þó virðist
sem þessi um-
ræða hafi í skoð-
anakönnunum
ekki haft áhrif
á kjarnafylgi
Sjálf-
stæðisflokksins en heldur ekki
aukið fylgi flokksins.
Einar segir að einnig kunni að
koma í ljós í kosningunum um
helgina að þeim stjórnmálamönn-
um sem hvað mest hafa verið í um-
ræðunni varðandi styrkjamálin
verði refsað með útstrikunum af
listum flokkanna. „Mér þykir það
alls ekki ólíklegt að þeir stjórnmála-
menn sem verið hafa mest í um-
fjölluninni í þessum styrkjamálum
verði fyrir barðinu á útstrikunum.
Útstrikanir hafa áhrif og kjósend-
ur vita það. Það voru tveir stjórn-
málamenn sem lækkuðu um sæti
vegna útstrikana í síðustu kosn-
ingum,“ segir Einar Mar. Hins veg-
ar er afar líklegt að þau Guðlaugur
Þór Þórðarson sjálfstæðismaður
og Steinunn Valdís Óskarsdóttir
samfylkingarkona lendi í þessu þar
sem þau bæði fengu samtals fjór-
ar milljónir króna í styrki frá Baugi
og FL Group auk þess sem Guð-
laugur var hvatamaðurinn að tug-
milljóna styrkveitingum FL Group
og Landsbankans til Sjálfstæðis-
flokksins.
En hvað sem gerist í kosningun-
um á laugardaginn standa núna öll
spjót á stjórnmálaflokkum lands-
ins og einstökum stjórn-
málamönnum um að
opna bókhald sitt
eftir kosningarn-
ar svo það liggi
ljóst fyrir hverj-
ir hafa þegið
styrki og frá
hverjum. Það
er augljóslega
almennur vilji
til þess í sam-
félaginu að þetta
verði gert og ættu
allir stjórnmála-
flokkarnir sennilega
að koma sér saman
um þetta til að eyða
tortryggni í þeirra
garð meðal almenn-
ings í landinu.
Þeir sem ekki svöruðu spurningum dv
arnbjörg sveinsdóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Ármann Kr. Ólafsson, Árni Johnsen, Árni M. Mathiesen, Ásta Möller, Birgir
Ármannsson, Birkir J. Jónsson, Bjarni Benediktsson, Björk guðjónsdóttir, Björn Bjarnason, Einar K. guðfinnsson, Einar Már
sigurðarson, geir H. Haarde, grétar Mar Jónsson, guðbjartur Hannesson, guðfinna s. Bjarnadóttir, guðjón a Kristjánsson,
guðlaugur Þór Þórðarson, Helga sigrún Harðardóttir, Herdís Þórðardóttir, Höskuldur Þórhallsson, Jóhanna sigurðardóttir,
Jón Bjarnason, Jón gunnarsson, Karl V. Matthíasson, Katrín Júlíusdóttir, Kristinn H. gunnarsson, Kristján Þór Júlíusson,
Kristján l. Möller, Magnús stefánsson, Ólöf Nordal, ragnheiður E. Árnadóttir, ragnheiður ríkharðsdóttir, sigurður Kári
Kristjánsson, steingrímur J. sigfússon, Þorgerður Katrín gunnarsdóttir, ögmundur Jónasson, össur skarphéðinsson.
„Mér þykir það alls
ekki ólíklegt að þeir
stjórnmálamenn sem
verið hafa mest í um-
fjölluninni í þessum
styrkjamálum verði
fyrir barðinu á útstrik-
unum.“
Lendir illa í styrkjaumræðunni styrkjaumræðan
hefur haft hvað mest áhrif á sjálfstæðisflokkinn að mati
stjórnmálafræðings. Bjarni Benediktsson tekur því við
sem formaður í miklum mótvindi en tengsl Bjarna sjálfs
við atvinnulífið hafa löngum verið tortryggð en hann
var stjórnarformaður olíurisans N1 þar til í desember.
Fyrirgreiðslupólitík Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi
borgarfulltrúi framsóknarflokksins, fékk tvær milljónir í
styrk frá Baugi fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006. Hann
hefur einnig hlotið óeðlilega fyrirgreiðslu úr bankakerfinu:
60 milljóna króna kúlulán frá Kaupþingi árið 2006.