Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Qupperneq 21
föstudagur 24. apríl 2009 21Fréttir hvað boða flokkarnir? Vill að öllum sé tryggður í lögum réttur til almennrar menntunar og fræðslu við sitt hæfi. Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst. Vill að allir njóti jafnra tækifæra til menntunar, óháð efnahag og búsetu. Vill efla starfs- og verk- menntun og bæta gæðastjórnun. Vill efla stuðningsnet skóla. Þá vill flokkurinn lánshæft sumarnám á háskólastigi. leggst gegn skólagjöldum til 1. prófgráðu í háskóla og leggur áherslu á að skólamáltíðir í grunn- skólum verði ókeypis. telur að það eigi að vera forgangsverkefni að fólk eigi þess kost að njóta góðrar almennrar menntunar, verk- og háskólamenntunar óháð efnahag og búsetu. lýðræðishreyfingin hefur enga sameiginlega stefnu í menntamál- um en hver og einn frambjóðandi getur haft sjálfstæðar skoðanir um einstök mál. Vill að framboð náms á fram- haldsskólastigi verði aukið yfir sumartímann. Vill efla starfs- og endurmenntun á landsbyggðinni. Námslán greiðist mánaðarlega, framfærslugrunnur líN jafnhár grunnatvinnuleysisbótum og núverandi ábyrgðarmannakerfi verði afnumið. Á landsfundi var ályktað að íslenskan yrði fest í stjórnarskrá sem þjóðtunga, lög um gagnsæi varðandi eignarhald á fjölmiðlum yrðu sett og efni sem rÚV hefur safnað gert aðgengilegt. Þá vill flokkurinn endurskoða lög um listamannalaun. Vill ókeypis menntun á öllum skólastigum og námslaunakerfi í stað lánskerfis. Vill hækka námslánagreiðslur til jafns við atvinnuleysisbætur. Vill fella niður verðtryggingu námslána. Vill tryggja öllum innflytjendum góða íslenskukennslu. styður að fyrirhuguðu stjórn- lagaþingi verði komið á. Vill að þjóðaratkvæðagreiðsla og þingrof fari fram óski 7% þjóðarinnar þess. ráðherrar, þingmenn og æðstu embættismenn framkvæmdavalds- ins gegni embætti í mesta lagi í átta ár. Vill endurskoða kjördæma- skipan. Vill kosningu til stjórnlagaþings. stjórnlagaþing skal ekki vera skipað núverandi eða fyrrverandi alþingismönnum, ráðherrum eða formönnum stjórnmálahreyfinga. Vill breyta kosningalögunum. Vill skýrari verkaskiptingu í stjórnar- ráðinu. styður að fyrirhuguðu stjórnlaga- þingi verði komið á. Berst fyrir því að þjóðaratkvæðagreiðsla um einstök mál fari fram innan þriggja mánaða krefjist a.m.k. 15% kjós- enda þess. Berst gegn flokksræði. telur að ráðherrar eigi aldrei að gegna þingmennsku. Vill að allir ríkisborgarar geti lagt lagafrumvarp fram á alþingi ef það er stutt undirskriftum 1% þjóðar- innar. Þingmenn og ráðherrar geti líka lagt fram frumvörp. Vill nýta hraðbanka sem kjörklefa og kosið verði um ný frumvörp tvisvar á ári. ráðherrar sitji ekki á alþingi. leggur áherslu á að boðað verði til stjórnlagaþings. aðhyllist þjóðar- atkvæðagreiðslur og að vægi allra atkvæða sé jafnt. Vill endurskoða lög um ráðherraábyrgð. flokkurinn vill að valdmörk löggjafarvalds og framkvæmdavalds verði skýrar afmörkuð. Vill breyta stjórnarskránni en vill þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingar á henni. setti sig á móti stjórnlagaþingi. segir nauðsynlegt að kveða skýrar á um stöðu ráðherra og valdheimildir þeirra. Vill ekki að auðlindirnar verði í þjóðareign, heldur ríkiseign. Vill auðlindirnar í þjóðareign og að t.d. 20% þjóðarinnar geti krafist þingrofs og nýrra kosninga. stjórn- arskrárbreytingar verði útkljáðar með þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá geti t.d. 1/3 þingmanna krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um stór mál. Vill stjórnlagaþing. Vill bjóða upp á víðtæka aðstoð við atvinnulausa um allt land. skuldsett fyrirtæki verði boðin til sölu og tilboðum aðeins tekið ef ásættanlegt verð fæst. annars verði starfsfólkinu leyft að taka yfir fyrirtæki. Vill bæta rekstrarumhverfi minni fyrirtækja, fjölskyldurekstrar og einyrkja. Vill efla matvælafram- leiðslu þjóðarinnar í landbúnaði og sjávarútvegi. flokkurinn vill fara í sérstakt átak til að bæta samgöngur og fjarskipti. Vill veita fyrirtækjum skattaafslátt vegna rannsókna og þróunarstarfs. telur að frjálsar handfæraveiðar skapi hundruð starfa. Vill tryggja framleiðslufyrirtækjum fjármagn. Vill að skattar verði ekki hækkaðir á lægstu launin. Vill að fjárfestingar- sjóður yfirtaki illa sett framleiðslu- fyrirtæki, endurreisi þau og selji síðan. sumir innan hreyfingarinnar vilja að valdir verði einstaklingar úr hópi atvinnulausra sem sendir verði um allan heim til að laða að erlend fyrirtæki. Vill hrinda í framkvæmd áætlunum ríkisstjórnarinnar um allt að 6000 ný störf í byggingariðnaði, nýsköpunar- og sprotageirum, ferðaþjónustu og menningar- greinum, sjávarútvegi o.fl. Vill efla minni fyrirtæki með tímabundnum ráðningum atvinnulausra. Vill áfram nýta náttúruauðlindir á sjálfbæran og hagkvæman hátt og vill bæði álver á Bakka og í Helgu- vík. Vill draga úr umsvifum hins opinbera til að auka samkeppni á markaði. ráðast verði í mann- aflsfrekar framkvæmdir og skapa hagstæð skilyrði fyrir rannsóknir og þróun. Vill ekki einblína á stóriðju heldur styðja lítil og meðalstór fyrirtæki. Beita skattaívilnunum til að styðja við sprotafyrirtæki. lækka raforkuverð til stuðnings atvinnu á landsbyggðinni. Vill stórefla ferðaþjónustu. Vill að ný framboð fái sama tíma í fjölmiðlum og sama stuðning og aðrir stjórnmálaflokkar. Vill að réttur allra til grunnlífskjara sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og lífsviðurværis fjölskyldna verði tryggður. Vill útrýma kynbundnum launamun og launaleynd. Vill jafna hlut kvenna og karla í stjórnunar- störfum. Vill tryggja jafna aðkomu kynjanna að fjölmiðlum. Vill sporna gegn kynbundnu ofbeldi. Vill lög- leiða hjónabönd samkynhneigðra og samþætta kynjasjónarmið. Vill að hver einstaklingur við- urkenni rétt annarra til frjálsrar hugsunar, trúar, tjáningar og frelsis til að kjósa sér eigin lífsstíl. flokkurinn berst fyrir samfélagi umburðarlyndis, réttlætis og jafnræðis þar sem þegnarnir eru virkir þátttakendur og bera ábyrgð á sjálfum sér og samfélaginu. Vill að landið verði eitt kjördæmi, þingmönnum verði fækkað í 31. alþingismenn velji ráðherra á faglegum forsendum. Vill að konur og karlar hafi jafnan rétt að lögum og að kynin hafi jafna möguleika á að nýta sér rétt sinn. Vill koma á fullu jafnrétti kvenna og karla. til þess mun fylkingin sam- þætta jafnréttissjónarmið á öllum sviðum og fela forsætisráðherra að fylgja henni eftir. Vill tryggja foreldrajafnrétti með breytingum á barnalögum og að hæfni, ábyrgð, vinnustaða og frammistaða launþega endur- speglist í launum. flokknum finnst óútskýrður launamunur óafsakan- legur. Vill tryggja jafnrétti karla og kvenna og breytt hjúskaparlög. Vill jafnan rétt allra án tillitis til kynferðis, kynhneigðar, trúar- bragða, litarháttar og uppruna. Vill stórefla kjör og aðstæður öryrkja og leiðrétta kynbundinn launamun. Vill afnema sjálfkrafa skráningu barns í trúfélag móður og vill ein hjúskaparlög á íslandi. Vill færa vísitölu verðtryggingar til þess sem var fyrir hrun hagkerfisins (janúar 2008). Vill að raunvextir á verðtryggðum lánum verði að hámarki 2–3% og afborgunum af húsnæðislánum megi fresta um tvö ár með lengingu lána. Vill lækka höfuðstól húsnæðislána og lána fyrirtækja um 20% og koma höndum á óskattlagðar eignir íslenskra auðmanna erlendis. Vill koma á fót nýju húsnæðisbótakerfi og afnema stimpilgjöld. Vill setja á fót nýja fjármögnunarleið fyrir ungt fólk. Hefur lagt til að verðtrygging lána verði afnumin frá og með síðustu áramótum. Vill að verðbætur umfram 5% verði ekki innheimtar heldur settar inn á biðreikning. Vill lækka vexti nú þegar niður í 8%. skattar verði ekki hækkaðir á þau heimili sem glíma við þunga lánabyrði. lýðræðishreyfingin hefur enga sameiginlega stefnu í málefnum heimilanna en hver og einn frambjóðandi getur haft sjálfstæðar skoðanir um einstök mál. Vill sækja um EsB-aðild og segir að upptaka evru muni styrkja efnahag heimilanna og fyrirtækja í landinu, þar sem gengi krónunnar muni styrkjast og vextir lækka vegna bættra lánskjara landsins erlendis, verð á neysluvörum muni lækka og verðtrygging leggist af með upptöku evru. segir stórhættulegt að leggja nýjar álögur á heimili og atvinnulíf. létta þurfi greiðslubyrði lána um 50% og tryggja eðlilega bankafyrir- greiðslu fyrir allar atvinnugreinar. Vill endurskoða gjaldþrotalögin frekar og auðvelda fólki að nýta séreignasparnað sinn. Vill lækka vexti og afnema verðtryggingu í áföngum. Vill frysta hækkanir höfuðstóls verðtryggðra lána og geyma í nokkur ár án vaxta og verðbóta. Vill að fólk geti fært erlend lán í krónur. Vaxtabætur verði hækkaðar um 25%. atvinna heimilin Jafnréttismál lýðræðismál menntamál
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.