Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Blaðsíða 33
föstudagur 24. apríl 2009 33Helgarblað
Stjórnmálin og lífið
Margir þing-
Menn í rangri
vinnu
þór Saari, 1. Sæti fyrir Borgara-
hreyfinguna í SuðveSturkjördæMi:
í einu orði, hver var orsök hrunsins?
„Ónýt (viljandi) löggjöf um fjármálafyrirtæki,
siðblindir bankamenn, ónýtt stjórnkerfi og
stjórnsýsla og óheiðarlegir stjórnmálamenn.“
hverju myndir þú breyta á íslandi ef þú
gætir breytt hverju sem er?
„að hér yrði opið, lýðræðislegt og siðlegt
samfélag þar sem önnur gildi en græðgi ráða
ferðinni.“
Vissir þú fyrir hrun að ríkisábyrgð væri á
erlendum innlánum einkabanka? „Nei, og því
var haldið leyndu fyrir almenningi.“
hver er besti tími sólarhringsins?
„Kvöldið.“
hefur þú villt á þér heimildir á netinu?
„Nei.“
hversu lengi hugnast þér að leiða þinn
flokk?
„Við höfum enga leiðtoga en ég gæti hugsað
mér að gæta hagsmuna flokksins og félags-
manna eins lengi og þörf er til að ná inn
stefnumálunum, upp að því átta ára hámarki á
þingsetu sem við viljum innleiða.“
Á þjóðin kvótann?
„Já, það er sko alveg skýrt.“
ertu trúaður og hvernig iðkar þú trú þína?
„Nei, ekki í hefðbundnum trúarbragðaskilningi.
Minn skilningur er svo mitt einkamál.“
hvaða kvikmynd sást þú síðast í bíó?
„draumalandið.“
hvað á íslenska krónan langt eftir?
„Mjög stutt, því miður, en það er staðreynd.“
hversu hátt hlutfall atkvæða yrði fram-
boði þínu ásættanlegt?
„Ég yrði mjög ánægður með 11-15% en hreinn
meirihluti væri þó allra best.“
Langar þig að biðja einhvern afsökunar?
„Nei, og sem betur fer hef ég ekki þurft að gera
það mjög lengi.“
hvaða fjölmiðli treystir þú best?
„rÚV, þó ekki nægilega vel.“
hefur þú drepið dýr?
„Já, ég er áhugamaður um silungsveiði en veiði
þó og sleppi mikið.“
er þetta allt útrásarvíkingunum að kenna?
„Nei, en mjög margt er það.“
Hvaða íslendingur er skemmtilegastur?
„Ómar ragnarsson.“
er einhver þingmaður í röngum flokki?
„Kannski ekki en þeir eru margir í rangri vinnu.“
Hversu hratt hefur þú keyrt á íslandi?
„Of hratt.“
hvað getum við lært af hruninu?
„að aðhald, opin stjórnsýsla og virkt lýðræði
eru grundavallarþættir sem við megum ekki
vanrækja.“
Hvenær verður botni kreppunnar náð?
„sennilega ekki fyrr en eftir eitt til tvö ár.“
Brugðust fjölmiðlar í aðdraganda hrunsins?
„Já, því miður, nema Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
á mbl.is.“
Hefurðu neytt fíkniefna? „Já, en fyrir utan áfengi
og tóbak þá mjög lítið og fyrir mjög löngu
síðan.“
Þurfa þingmenn aðstoðarmenn? „Veit það ekki
ennþá, en þingið þyrfti að þjóða upp á meiri
aðstoð held ég.“
skortir pólitíska ábyrgð á íslandi, sbr. banka-
hrunið? „Já, algerlega.“
Kemur til greina að breyta þingsköpum til að
lágmarka málþóf? „Varla, en það mætti margt
betur fara í öðru er varðar þingsköp, svo sem að
afleggja yfirstéttartitlatogið hátt- og hæstvirtur
og afnema hálsbindaskyldu og stytta fríin svo
eitthvað sé nefnt.“
Kanntu á þvottavél? „Já, eitt prógramm.“
SÁtt við guð
og Menn
jóhanna Sigurðardóttir, forMað-
ur SaMfyLkingarinnar:
í einu orði, hver var orsök hrunsins?
„græðgin.“
hverju myndir þú breyta á íslandi ef þú
gætir breytt hverju sem er?
„tryggja bætt og jafnari lífskjör allra hópa
samfélagsins svo fátækt heyrði sögunni til.“
vissir þú fyrir hrun að ríkisábyrgð væri á
erlendum innlánum einkabanka?
„ítrekaðar fyrirspurnir mínar um þessi mál og
svör fyrrum viðskiptaráðherra framsóknar-
manna við þeim gáfu ekki annað til kynna en
að tryggingarsjóður innistæðueigenda ætti að
standa undir öllum mögulegum áföllum kæmi
til greiðslufalls banka.“
hver er besti tími sólarhringsins?
„Mér hafa nýst allir tímar sólarhringsins vel.“
Hefur þú villt á þér heimildir á netinu?
„Nei.“
hversu lengi hugnast þér að leiða þinn
flokk?
„Eins lengi og aðstæður mínar leyfa og
flokkurinn treystir mér til forystu og telur mig
gera gagn.“
Á þjóðin kvótann?
„Já, en hefur þurft að horfa upp á þessa
eign sína keypta, selda og veðsetta eins og
einkaeign nokkurra aðila og nú á að hræða fólk
með hótunum um atvinnuleysi ef eignarhald
þjóðarinnar verður að veruleika.“
ertu trúuð og hvernig iðkar þú trú þína?
„Já, ég á mína trú.“
hvaða kvikmynd sást þú síðast í bíó?
„sólskinsdrenginn.“
hvað á íslenska krónan langt eftir?
„Hlúum vel að krónunni á meðan þarf en
vonandi verður evran tekin við innan 3-5 ára.“
hversu hátt hlutfall atkvæða yrði fram-
boði þínu ásættanlegt?
„Við þurfum fyrst og fremst nægan styrk til að
leiða ríkisstjórn til áframhaldandi verka við að
tryggja vinnu og velferð og umboð til að hefja
samningaviðræður við EsB svo þjóðin fái að
kjósa um aðildarsamning sem gæti lagt grunn
að stöðugleika og bættum lífskjörum.“
Langar þig að biðja einhvern afsökunar?
„Nei, ég er sátt við guð og menn.“
hvaða fjölmiðli treystir þú best?
„No comment.“
hefur þú drepið dýr?
„fiska, flugur.“
er þetta allt útrásarvíkingunum að kenna?
„Nei, en þeir bera vissulega mikla ábyrgð.“
hvaða íslendingur er skemmtilegastur?
„Margir koma til greina.“
er einhver þingmaður í röngum flokki?
„Þeir eru þó nokkrir. Ég hef þá trú að í hjarta sínu
sé langstærstur hluti þjóðarinnar jafnaðarfólk.
íslendingar vilja sameina athafnafrelsi og
ábyrgð, framtak og jöfnuð.“
hversu hratt hefur þú keyrt á íslandi?
„90-100.“
hvað getum við lært af hruninu?
„að byggja til framtíðar á þeirri samfélagsgerð
sem norrænir jafnaðarmenn hafa byggt upp
og sameinar vinnu og velferð, samkeppnishæft
rekstrarumhverfi og samfélagslega ábyrgð.
græðgin má ekki ráða för.“
hvenær verður botni kreppunnar náð?
„Ýmislegt bendir til að botni fjármálakreppunnar
sé náð en því miður eru líkur á að það taki
nokkurn tíma enn og mikið átak að komast upp
aftur. Næstu misseri verða erfið, en þau verða
uppávið í flestu tilliti.“
Brugðust fjölmiðlar í aðdraganda
hrunsins?
„Þeir bera sína ábyrgð en ég vil ekki taka svo
djúpt í árinni að segja að þeir hafi brugðist.“
hefurðu neytt fíkniefna?
„Nei.“
þurfa þingmenn aðstoðarmenn?
„Nei.“
Skortir pólitíska ábyrgð á íslandi, sbr.
bankahrunið?
„Já, tvímælalaust – við erum bernsk í þessu
tilliti. samfylkingin hefur viljað setja lög um
ráðherraábyrgð sem auka og skýra pólitíska
ábyrgð þeirra.“
kemur til greina að breyta þingsköpum til
að lágmarka málþóf?
„Já, það kemur til greina.“
kanntu á þvottavél?
„Já.“
þakkar ekki
fjÁrgLæfra-
MönnuM
guðjón arnar kriStjÁnSSon, for-
Maður frjÁLSLynda fLokkSinS:
í einu orði, hver var orsök hrunsins?
„fjárglæfrar án eftirlits.“
hverju myndir þú breyta á íslandi ef þú
gætir breytt hverju sem er?
„Kvótakerfi fiskveiða, verðtryggingu og
gjaldmiðli.“
vissir þú fyrir hrun að ríkisábyrgð væri á
erlendum innlánum einkabanka?
„Nei. tel óvíst að svo hefði verið, ef hagsmuna
okkar hefði verið gætt af stjórnvöldum.“
hver er besti tími sólarhringsins?
„Morguninn.“
hefur þú villt á þér heimildir á netinu?
„Nei.“
hversu lengi hugnast þér að leiða þinn
flokk?
„Ekki fram yfir sjötugt.“
Á þjóðin kvótann?
„Hann á að vera í þjóðareign, en er það ekki
nú í raun, eins og sést í verkum og meðferð
kvótans.“
ertu trúaður og hvernig iðkar þú trú þína?
„Já, og iðka hana með sjálfum mér.“
hvaða kvikmynd sást þú síðast í bíó?
„langt er síðan ég fór í bíó, en líklega var það
mynd um mörgæsir sem ég sá í Háskólabíó.“
hvað á íslenska krónan langt eftir?
„Einhver ár. Þrjú til sex ár.“
hversu hátt hlutfall atkvæða yrði fram-
boði þínu ásættanlegt?
„8–12 prósent.“
Langar þig að biðja einhvern afsökunar?
„Ég hef oft beðið fólk afsökunar ef ég hef haft
það fyrir rangri sök.“
hvaða fjölmiðli treystir þú best?
„Engum sérstökum.“
hefur þú drepið dýr?
„Já, mjög oft, eins og allir bændasynir og
fiskimenn.“
er þetta allt útrásarvíkingunum að kenna?
„Ég kann fjárglæframönnum engar þakkir. Þeir
bera mikla sök.“
hvaða íslendingur er skemmtilegastur?
„laddi.“
er einhver þingmaður í röngum flokki?
„örugglega, en þeir sjá það ekki endilega sjálfir.“
hversu hratt hefur þú keyrt á íslandi?
„stundum hraðar en lög leyfa, ef greiðfært er.“
hvað getum við lært af hruninu?
„fjölmargt. Hófsemi, varfærni og að okkur ber
að tryggja velferð fólks.“
hvenær verður botni kreppunnar náð?
„2010–2011.“
Brugðust fjölmiðlar í aðdraganda
hrunsins?
„Já, þeir voru meðvirkir í æðinu, eins og mjög
margir íslendingar.“
hefurðu neytt fíkniefna?
„Nei, aldrei. reykti en hætti því. Neyti víns í
góðra vina hópi.“
þurfa þingmenn aðstoðarmenn?
„Já, að mínu mati.“
Skortir pólitíska ábyrgð á íslandi, sbr.
bankahrunið?
„Já. Vaktin var ekki staðin af ráðherrum og
undirstofnunum þeirra.“
kemur til greina að breyta þingsköpum til
að lágmarka málþóf?
„Ef til vill. En það er vandasamt að takmarka
málfrelsi.“
kanntu á þvottavél?
„Já.“