Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Side 41
föstudagur 24. apríl 2009 41Helgarblað
„Þegar ég skoða myndir af mér frá
því að ég var ungur sé ég að ég var
spengilegur og flottur strákur og bara
alls ekki feitur, en ég upplifði mig
hins vegar alltaf stóran,“ segir Guð-
jón Sigmarsson, betur þekktur sem
Gaui litli, um holdafar sitt sem barn
en eins og alþjóð veit hefur Gaui litli
átt í erfiðri baráttu við aukakílóin.
Gaui er fæddur árið 1957 og er
einn fjögurra systkina. Hann á einn
eldri bróður, einn yngri og eina yngri
systur. „Ég er annar í röðinni og þeg-
ar ég var að alast upp tíðkaðist það
að systkini notuðu föt hvert af öðru.
Stóri bróðir var svo grannur að hann
blotnaði varla í sturtu en svo kom ég
svona ögn þreknari eins og pabbi og
þar af leiðandi þurfti að kaupa á mig
ný föt eða breyta fötunum hans. Litli
bróðir var svo með sama vaxtarlag
og sá eldri þannig að það má segja
að strax á mínum yngri árum hafi
ég fundið fyrir því að ég var ekki eins
og ég átti að vera en ég var samt alls
ekki feitur. Hvort það hefur haft þau
áhrif að ég hef alltaf haft þessa feitu
ímynd af sjálfum mér er hins vegar
ómögulegt að segja.
Leit ekki á sig sem
óheilbrigðan
Þrettán ár eru nú liðin frá því að Gaui
litli opinberaði sig fyrir alþjóð en þá
var hann með sjónvarps-innslög um
heilsu og heilbrigðan lífsstíl í þættin-
um Dagsljós.
„Ég sat í makindum mínum að
gæða mér á einni franskri súkkulaði-
kökusneið, tvöföldum kaffi og koní-
aki þegar vinur minn mikill og pró-
dúsent, Marteinn St. Þórsson, sem
ég vann með kom til mín og sagði
að upp hefði komið hugmynd að
þessum tiltekna sjónvarpsþætti, eða
innslögum öllu heldur. Við rædd-
um þetta fram og til baka og köst-
uðum fram augljósum hugmyndum
um einhverja heilsubolta til að sjá
um innslögin. Báðir erum við van-
ir að fara ótroðnar slóðir og höfð-
um gert margt óhefðbundið saman
og því datt okkur einnig í hug að það
gæti verið sniðugt að fá mann í verk-
ið sem væri í raun andstæða heilsu
og heilbrigðis. Vinur minn horfði á
mig og sagði: „Vilt þú ekki bara sjá
um þetta?“ Í fyrstu var ég móðgaður
því ég leit alls ekki á mig sem óheil-
brigðan einstakling.“ Eftir að hafa
hugsað málið betur ákvað Gaui litli
að slá til, hugmyndin var því borin
undir stjórnendur Dagsljóss og sam-
þykkt.
Missti fimmtíu og þrjú kíló á sjö
mánuðum
Gaui litli sló í gegn á skjánum og
undu hlutirnir því hratt upp á sig.
Áður en hann vissi af stóð hann á
nærfötunum einum klæða á for-
síðum blaðanna og var farinn af stað
í allsherjarátak með þjóðina sér við
hlið. Gaui hafði lengið iðkað jóga en
þurfti nú á meiri hreyfingu að halda.
Úr varð að hann byrjaði í spinning
en fannst það fullmikið brjálæði fyr-
ir sig. Fór hann því þá leið að blanda
saman spinning, hathajógaæfing-
um og öndun. Yoga-spinning eins
og Gaui kallaði þessa nýstárlegu lík-
amsrækt kenndi hann í líkamsrækt-
arstöðinni World Class við miklar
vinsældir. „Hugmyndin er að fara
af stað með þessa stórskemmtilegu
tíma aftur í haust.
Allir sem einhverja þekkingu
höfðu á líkamsræktarbransanum
bentu mér á að það þýddi lítið að fara
af stað með átaksnámskeið um vor.
Þrátt fyrir það fylltust öll námskeið-
in hjá mér í byrjun sumars. Þörfin
var mikil og hefur örugglega aukist
og þess vegna byrjum við aftur núna
í vor. Nokkrir sem skráðu sig á nám-
skeiðin létu ekki sjá sig og hringdi ég
því í það fólk. Í ljós kom að þessir að-
ilar höfðu mætt en ekki þorað inn í
sal. Þetta fannst mér slæmt að heyra
og ákvað í kjölfarið að opna Heilsu-
garð Gauja litla. Heilsugarðinn hugs-
aði ég sem aðsetur fyrir þetta fólk til
að koma saman og ræða málin.“ Um
leið og einn hópur puðaði í ræktinni
hjá Gauja litla hittist annar hópur
reglulega í Heilsugarðinum og tók
til í toppstykkinu, eins og Gaui orð-
ar það, og þau sáu sjálf um að hreyfa
sig. „Hópurinn sem hittist í Heilsu-
garðinum og vann í andlegu hlið-
inni samferða því að hreyfa sig náði
betri og varanlegri árangri en fólkið
á átaksnámskeiðinu.“ Sjálfur missti
Gaui litli 53 kíló á einungis sjö mán-
aða tímabili. „Það er náttúrulega allt
of mikið,“ segir hann.
Harður heimur barna
Eftir að hafa náð þessum ótrúlega
árangri fór Gaui aðeins að slaka á
eins og gengur og gerist. „Rann-
sóknir sýna að um níutíu og sex pró-
sent þeirra sem ná að grennast falla.
Hlutfallið er svipað hjá alkóhólistun-
um. Ég féll og það skrítna við það var
að það hafði enginn sagt neitt. Það
verða allir svolítið meðvirkir og segja
ekkert fyrr en maður tekur sig á aftur.
Þá fékk ég að heyra að ég hefði verið
orðinn allt of feitur. Merkilegt!“
Gaui viðurkennir að hann hafi
farið allt of geyst í átakinu mikla og
þá geti fallið oft verið hátt. Gaui hélt
áfram að starfa í heilsugeiranum og
fór að einbeita sér að forvarnarstarfi
og námskeiðahaldi fyrir börn og
unglinga með góðum árangri.
„Það er ekkert grín að vera feitt
barn, því fylgir áreiti, stríðni, vina-
leysi og jafnvel einelti. Eins og gef-
ur að skilja geta þessir krakkar ekki
tekið þátt í mörgum leikjum og ver-
ið virkir félagslega og fara þess vegna
á mis við svo margt. Ég tel að leggja
þurfi miklu meira í forvarnir barna
og unglinga þegar kemur að heilsu
og heilbrigðum lífsstíl.“ Gaui rak sig
strax á það að ekki dugði að vinna
eingöngu með börnunum heldur
þurfti hann að fá foreldra þeirra í lið
með sér. „Það var ekki nóg að vinna
bara með börnin og predika yfir þeim
hvað má og ekki má. Það eru for-
eldrarnir sem versla í matinn, keyra
börnin á alla staði og það eru foreldr-
arnir sem planta börnunum sínum
fyrir framan sjónvarpið og fara sjálfir
út að ganga með hundinn á meðan.
Þar af leiðandi verða foreldrarnir að
vera meðvitaðir og taka virkan þátt
svo að börnin nái árangri.
Tímamót
Fyrir tveimur árum stóð Gaui á mikl-
um tímamótum í lífinu. Hann fagn-
aði hálfrar aldar afmæli sínu og því
fylgdi svolítil naflaskoðun. „Þegar
ég varð fimmtugur hugsaði ég með
mér: Nú er meirihluti ævi minnar
búinn. Ég á kannski þrjátíu ár eftir
og hvernig vil ég eyða þessum þrjátíu
árum?“ Gaui var ekki í góðu líkam-
legu ástandi á þessum tímamótum,
hann hafði snúið sér að sjónvarps-
bransanum á ný á meðan góðær-
ið stóð sem hæst. Hann hafði bætt
umtalsverðum kílóafjölda á sig og
var kominn með áunna sykursýki,
svo fátt eitt sé nefnt. Hann rifjar upp
ástand sitt áður en hann fór að huga
að heilsunni. „Í fimmtán ár gat ég
ekki klætt mig í skó eða sokka sjálfur
og það er engin óskastaða fyrir mann
á besta aldri.“ Af skömm klæddist
Gaui þó alltaf lokuðum skóm, í stað
þess að renna sér í klossa því hann
vildi ekki að neinn gerði sér grein
fyrir ástandi hans. „Ég var orðinn
hættulegur sjálfum mér en var svo
heppinn að vera vel giftur maður og
fékk því góða hjálp við að klæða mig
á morgnana,“ segir Gaui og glottir.
Frá og með fimmtugsafmælinu
góða var Gaui staðráðinn í að taka
heilsuna í sínar hendur og hleypa sér
ekki í þetta ástand á ný. Hófst þá ró-
legt og skynsamlegt ferli í átt að betra
lífi ólíkt síðasta átaki.
Á eigin forsendum
Gaui viðurkennir að reynslan hafi
kennt honum mikið og að núna geri
hann hlutina á sínum hraða og sín-
um forsendum. „Ég ætla að gera
þetta í gleði og vellíðan núna.“
Gaui byrjaði á mataræðinu og tók
þrjá mánuði í að taka það í gegn. „Ég
gerði engar róttækar breytingar held-
ur tók út eina og eina fæðutegund
í einu, skipti þeim út fyrir eitthvað
annað og fór að borða aðeins minna
í hvert mál. Reglan hjá mér er í raun
sú að ég neita mér ekki um neitt. Ég
borða það bara sjaldnar og minna
af því. Til þess að ná raunhæfum ár-
angri verður maður að hafa raunhæf
markmið.“ Því næst fór Gaui að huga
að hreyfingunni.
Í framhaldi af þessu nýja formi
til að betrumbæta lífsstílinn, sem
Gauja finnst svo mikilvægt að miðla
til þeirra sem á þurfa að halda, ákvað
hann að opna Heilsugarð Gauja litla
á ný. „Það hefur vissulega jákvæð
áhrif á mitt líf að hjálpa fólki. Það er
ekki bara ég sem hjálpa þeim heldur
hjálpa þau mér. Einnig hef ég upplif-
að það eftir hrunið að fólk hafi meiri
þörf fyrir að leita inn á við og sinna
heilsunni, jafnt andlegri sem og lík-
amlegri. Þar af leiðandi fannst mér
tilvalið að hefjast handa á ný og ég
hef nú opnað Heilsugarðinn við frá-
bærar aðstæður hérna í Álafosskvos-
inni í Mosó. Fólk spyr sig kannski af
hverju það ætti að koma til mín núna
þar sem ég hætti á sínum tíma og ég
tel það eðlilegt en svar mitt við þeirri
spurningu er að ég er reynslunni rík-
ari, búinn að brenna mig og veit hvað
virkar ekki.“
Vefsmíðin
Ásamt því að vera farinn að vinna að
bættri heilsu bæði barna og fullorð-
inna á ný hefur Gaui unnið hörðum
höndum að því í nokkra mánuði að
smíða glæsilegan vef, gauilitli.is. Á
vefnum er hægt að skrá sig í sam-
félag í anda Facebook þar sem fólk
getur talað saman, hvatt hvert ann-
að áfram og skipst á reynslusögum,
áhrifaríkum leiðum og hverju því
sem tilheyrir þessum málaflokki.
Einnig má þar finna margskonar
fróðleik um hamingju, hreyfingu og
heilsu, uppskriftir að hollum réttum,
matardagbók, kennslugögn og margt
fleira áhugavert.
„Vefurinn hefur farið vel af stað og
er að reynast fólki vel. Ég er enn að
vinna í honum og þróa hann. Þetta
er frábær vettvangur fyrir fólk til að
nálgast annað fólk í sömu sporum.
Við erum líka sérstaklega ánægð
með að í gegnum netið náum við til
fólks úti á landi sem oft hefur litla
sem enga valkosti. Einnig erum við
með reglulegar göngur og þær aug-
lýsum við inni á vefnum, og eru all-
ir hjartanlega velkomnir í þær, stórir
sem smáir, hundar og kettir.“
Óttast heilsumissi
Gaui er búinn að missa þó nokk-
ur kíló undanfarna mánuði, jafnt og
þétt og á eðlilegum hraða. Hann segir
það þó ekki meginatriðið. „Fólk þarf
að líta á hvert andartak sem hlekk á
milli sín og heilbrigðs lífs. Sjálfur hef
ég lent í því að missa heilsuna oftar
en einu sinni og það er eitthvað sem
ég óttast hvað mest að lenda í aftur.
Fótunum er kippt undan manni og
áður en maður veit af liggur mað-
ur í sjúkrarúmi, síma- og tölvulaus,
orðinn sjúklingur. Þá hugsar maður
með sér: Ég vildi að ég hefði hlustað
á sjálfan mig og gert eitthvað í mál-
unum fyrr.“
Gaui ítrekar að margir geti komið
í veg fyrir heilsumissi með heilbrigð-
um lífsstíl. „Ef fólk gerir hlutina á
sínum hraða með jákvæðu hugarfari
ætti þetta ekki að reynast því erfitt,“
segir Gaui sem lætur sér greinilega
annt um heilsu sína sem og annarra.
kolbrun@dv.is
Fyrir og eftir gaui litli veturinn 1996 áður en átakið hófst og svo um vorið 1997,
rúmum fimmtíu kílóum léttari. síðan þá hefur þyngdin rokkað mikið.
Á sólríkum degi gaui ásamt tinnu Björt dóttur sinni á spáni sumarið 2008.
Sumarið 2003 gaui litli við Vambar-
púkann í feitalundi í Átvaglaskógi á
akureyri sumarið 2003.
Desember 2008 Þessi mynd er tekin í desember 2008.