Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Síða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Síða 58
föstudagur 24. apríl 200958 Lífsstíll Vertu sólarmegin Hleyptu sólskininu í líf þitt með þessum dásamlega sumarilm frá Mark Jacobs. Ilmurinn ber heitið daisy og er léttur og ferskur eins og sumarið sjálft. Ilmurinn kemur í einstaklega fallegri flösku enda er hönnuðurinn ekki þekktur fyrir annað en elegant og kvenlega hönnun og er engin breyting þar á þegar kemur að daisy. láttu sumarið ekki framhjá þér fara og nældu þér í glas af þessari ein- stöku lykt. Uppskrift: Sigríður Björk Bragadóttir. Ljósmyndari: Kristinn Magnússon Þessi einfaldi og létti réttur er úr nýj- asta tölublaði Gestgjafans og er úr þætti sem heitir Kjúklingur á heims- hornaflakki. Í þættinum má finna marga framandi og skemmtilega kjúklingarétti. Uppskrift fyrir 4 6-8 kjúklingabitar 2 dl brauðrasp 2 tsk. salt 1 tsk. paprika 2 -3 tsk. blandaðar kryddjurtir, t.d. tímían, óreganó, merían ¼ tsk. pipar 30 g smjör, brætt, eða 4 msk. olía Hitið ofninn í 190°C. Bland- ið raspi, salti, papriku, kryddjurt- um og pipar saman í skál. Pensl- ið kjúklingabitana með smjöri eða olíu og veltið síðan upp úr raspinu. Raðið í ofnfast fat. Bakið í 35-40 mín. Berið fram með hrísgrjónum og góðu salati. Í boði Gestgjafans: KjúKlingabitar með Kryddrasphjúp uMsJón: kolbrún pálína HelgadóttIr, kolbrun@dv.is gefðu sumargjöf sumarið er komið eða svo segir dagatalið allavega. Hefð er fyrir því að börn fái sumargjafir í tilefni þessara tímamóta og eiga eflaust flestir góðar minningar um fallegar sumargjafir. dV tók saman nokkrar hugmyndir að nokkrum ódýrum en sumarlegum gjöfum. Sápukúlur sápukúlur gleðja alltaf yngri kyn- slóðina enda fátt skemmtilegra en að blása sápukúlur á góðviðrisdegi þegar maður er lítill. Krítar götukrítar geta kætt marga káta krakka og ýtt undir hugmyndaflug þeirra. gætið þess þó að börnin kríti þar sem þau mega kríta. Sippubönd sippu- og snúsnúbönd eru mjög vinsæl hjá börnum. gefðu barninu þínu sippuband í tilefni sumarsins og það fer hoppandi út í góða veðrið. Frisbídiskur Það getur öll fjölskyldan tekið þátt í frisbí og því ekkert nema jákvætt að láta eins og einn frisbídisk fylgja sumargjöfinni. Boltar allt frá skopparaboltum til skotbolta og fótbolta getur verið góð sumar- gjöf. boltar ýta undir hreyfingu og krefjast þess að börnin fái fleiri til leiks við sig. Öryggishlutir Þau börn sem eiga hjól, hlaupahjól, línuskauta eða fá það jafnvel í sumargjöf þurfa að vera vel varin. tilvalið er því að gefa hjálm eða aðrar hlífar svo barnið sé öruggt að leik. Sundföt Það þarf að endurnýja sundfatnað barnanna reglulega og er tilvalið að gera það á þessum tímamótum. gefðu barninu flott sundföt, sund- gleraugu og kúta ef þörf er á. gjöfin ætti að nýtast vel með allt sumarið fram undan. Háfur tilvalið er að gefa ævintýragjörnum krökkum sem hafa gaman af því að vera úti í náttúrunni háf. börnin geta nýtt hann í veiðina í sumar með þeim sem eldri eru eða dundað sér við að veiða síli í litlum lækjum. gott sKipulag sKiptir sKöpum Fyrstu sumardagarnir eiga það til að vera kaldir og blautir. Tilvalið er að nota þessa daga til að fara í gegnum fataskápinn, nokkuð sem við eigum til að fresta þar til skipu- lagið er farið út um þúfur. Ekki fara í þetta verkefni með hangandi hendi því það gæti orðið tímafrekt. Settu góða tónlist á fóninn og hafðu gaman af. Erfitt að byrja 1. Byrjaðu á að taka öll fötin út úr skápnum. Þetta gæti verið yfir- þyrmandi í fyrstu en vittu til, þú verður hissa að komast að því hvað þú notar lítinn hluta fatanna. Taktu öll þau föt sem þú getur hugsað þér að henda og settu í poka, því næst skaltu taka þau föt sem ekki passa eða gera ekki mikið fyrir þig og setja í annan poka. Fötin sem eftir eru mega svo fara hægt og ró- lega inn í skáp á ný. Komdu á góðu skipulagi, sumum finnst þægilegt að flokka eftir litum, öðrum finnst betra að hengja kjóla á sama stað, jakka á sama stað og svo framvegis. Veturinn víkur fyrir sumrinu 2. Þegar þú ert búin(n) að finna það skipulag sem hentar þínum fataskáp eða fataherbergi hvað best skaltu byrja að raða. Hafðu í huga að sum- arið er að skella á og hafðu því sumar- flíkur og léttari fatnað sem þú telur þig nota meira næstu mánuði á aðgengi- legum stöðum og leyfðu þykku vetr- arpeysunum að hvíla aftar í hillunum eða skápunum. Ekki þó fela þær alveg því íslenska sumarið getur eins og við vitum verið með kaldara móti. Þó svo að gott sé að taka til hend- inni í skápnum reglulega er engin skylda að láta allt flakka sem ekki er notað. Þau föt sem hafa tilfinninga- legt gildi fyrir þig eða rifja upp góðar minningar mega að sjálfsögðu eiga sitt pláss í skápnum. Ef þú neyðist hins vegar til að losa þig við flíkurnar sökum plássleysis getur verið sniðugt að taka mynd af flíkunum og hengja myndirnar inn í fataskápinn. Að mörgu að huga 3. Flestum konum fylgir meira en bara föt. Snyrtivörur, skart, klútar, belti og fleiri aukahlutir liggja úti um hvippinn og hvappinn hjá okk- ur flestum. Ef þú ert með fataskáp skaltu kaupa litla snaga sem þú get- ur límt inn á skáphurðarnar og nota þá undir hálsfestar, belti og fleira í þeim dúr. Gott er að hengja klútana alla saman á eitt eða fleiri herðatré, allt eftir fjölda. Þær sem hafa meira pláss skulu líka huga að því að setja upp nokkra smekklega snaga á vegg- ina, einnig er hægt að nota þá und- ir töskur. Flestir framleiðendur fata- skápa í dag bjóða líka upp á einhvers konar skartgripahengi sem hægt er að draga út úr skápunum. Mjög snið- ugt og hentugt. Þegar þú hefur fundið stað fyrir alla aukahlutina er komið að snyrti- vörunum. Ekki hika við að henda gömlum snyrtivörum, það er engum hollt að nota gamalt meik, púður eða varaliti. Þvoðu pensla, svampa og annað slíkt og kauptu körfur og/eða snyrtibuddur og flokkaðu snyrtivör- urnar þínar. Skiptimarkaður með vinum 4. Láttu vinkonur þínar vita af fram- takssemi þinni og hvettu þær til að gera slíkt hið sama. Áður en haldið er með gömlu fötin í Rauða krossinn eða í aðrar góðar hendur gæti verið einstaklega gaman að hitta vinkon- urnar og fá að gramsa í gömlu fötun- um og aukahlutunum þeirra og leyfa þeim að gramsa í þínum. Þið munuð eflaust finna eitthvað spennandi hjá hver annari. Gerið ykkur góða kvöld- stund úr þessu og skemmtið ykkur við það að máta gömul föt. Gangi þér vel og gleðilegt sumar... kolbrun@dv.is Taktu til hendinni notaðu fyrstu sumardagana vel og taktu til hendinni í fataskápnum þínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.