Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Page 16

Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Page 16
UPPELDI OG MENNTUN/ICELANDIC JOURNAL OF EDUCATION 24(2) 201516 VEGFERÐ TIL FULLORÐINSALDURS Rannsóknir á frávikum og ungmennamenningu studdust frá upphafi við ýmsar félagsfræðikenningar en rannsóknir á vegferð frá skóla til vinnu eða frá barnæsku til fullorðinsaldurs voru lengi kenningasnauðar. Smám saman þróuðust þó kenningar, einkum í Þýskalandi, sem tengdu breytta vegferð við kenningar um breytta samfélagsþróun. Á áttunda áratugnum bar þar talsvert á kenningum um breytta félagsmótun og margar þeirra sóttu í smiðju freudískrar sálgreiningar. Um tíma bar hæst kenningar Thomasar Ziehe um að hrun valdboða og fastra viðmiða í uppeldi hefði leyst uppvaxandi kynslóðir úr menningarlegum viðjum; hann taldi að líf ungmenna einkenndist í vaxandi mæli af leit að haldbærri merkingu (Ziehe og Stubenrauch, 1981). Úr annarri átt komu niðurstöður úr rannsóknum á því hvernig fólk skilur og segir lífssögu sína. Werner Fuchs-Heinritz (1984) benti á veigamikla breytingu: eldri kynslóðir segðu gjarnan lífssögu sína þannig að hún markaðist af ríkjandi viðmiðum á hverjum tíma en yngri kynslóðir legðu áherslu á eigið val. Martin Kohli (1994) benti á að vissulega einkennir einstaklingsvæðingin nútíma lífssögu en að hún hefur ekki út- rýmt áhrifum félagslegrar formgerðar heldur breytt þeim; samfélagsstofnanir tryggja samfellu milli hinna ólíku skeiða lífshlaupsins en einstaklingarnir gefa þessari sam- fellu merkingu með lífssögu sinni. Alheit og Dausien (2000) bentu á að einstaklingar þurfa oft að velja eða gefst kostur á því, en að við hvert val breytir einstaklingurinn lífssögu sinni og að þessi samtvinnun vals og breyttrar lífssögu er lykilatriði í hvata til frekara náms og starfsskipta á fullorðinsaldri. Ulrich Beck (Beck, 1986/1992; Beck og Beck-Gernsheim, 2002) tengdi þessar rannsóknarniðurstöður almennum sam- félagsbreytingum; í iðnaðarsamfélögum 20. aldar hefði stöðugleiki í siðferði og dag- legri menningu myndað mótvægi við aðrar samfélagsbreytingar, en við breytinguna úr iðnaðarsamfélagi í þekkingarsamfélag hefði þessi stöðugleiki riðlast. Beck notaði hér sömu hugtök og greiningu og Ziehe áður; við iðnvæðingu hefði orðið félagsleg leysing (þ. Freisetzung; e. release eða liberation) þegar fólk losnaði úr viðjum hefð- bundins bændasamfélags, fluttist í borgir, fór að stunda launavinnu og réð sjálft yfir frístundum sínum; Ziehe og Beck töldu að nú væri næsta stig leysingarinnar hafið, hin menningarlega leysing. Þessir þýsku straumar tengdust fljótlega frönskum lífssögurannsóknum Daniels Bertaux og fleiri (Bertaux og Kohli, 1984), sem og bandarískri hefð lífshlaupsrann- sókna (e. life course research) sem oft er talin hefjast með rannsókn Williams I. Thomas og Florians Znaniecki á pólskum bændum í Póllandi og Bandaríkjunum fyrir um það bil öld (Thomas og Znaniecki, 1918–1920). Sú hefð hefur sótt í sig veðrið á síðustu áratugum (sjá Giele og Elder, 1998; Mortimer og Shanahan, 2003). Bandaríska hefðin byggðist ekki á sama hátt og hinar evrópsku rannsóknir á viðamiklum samfélagskenningum (e. grand theory) heldur sver hún sig fremur í ætt við grundaða kenningu (e. grounded theory) og stundum við hugsmíðahyggju (e. constructivism). Hún bendir þó í svipaða átt og evrópskar nálganir hvað varðar aukna fjölbreytni lífs- hlaupsins, það er vaxandi mikilvægi lífssögunnar fyrir sjálfsmynd fólks og ákvarðanir sem það tekur, og víðtæka þýðingu þessa fyrir samfélagsþróun. Margir rannsakendur, einkum í Bretlandi og Þýskalandi (sjá Evans, Rudd, Behrens, Kaluza og Woolley, 2001; Heinz, 2009), reyndu að samþætta hefðir fyrir stórum empírískum rannsóknum við kenningarlegar áherslur Fuchs-Heinritz, Kohlis, Alheits, Becks og annarra þýskra
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.