Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2010, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2010, Side 34
UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON, kgk@dv.is Halldór Hjartarson FYRRV. TOLLVÖRÐUR Halldór fædd- ist í Bæ við Steingríms- fjörð. Hann stundaði nám við Bænda- skólann á Hvanneyri, Lögregluskóla ríkisins og lauk skíðakennaraprófi. Halldór var við jarðrækt og vegavinnu í Strandasýslu. Hann flutti til Hafnarfjarðar 1953, stund- aði sjómennsku nokkrar vertíðir og starfaði einnig við skipa- og húsa- smíðar. Halldór var lögreglumaður 1966-72 og gerði út mb. Faxaborg 1973-76. Hann starfaði við toll- gæslu og útlendingaeftirlit í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar á Keflavík- urflugvelli í tuttugu ár, eða þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Halldór var í keppnisliði skíða- manna Strandamanna á árunum 1948-52. Þá var hann varaformað- ur og stjórnarmaður í Tollvarðafé- lagi Íslands um nokkurra ára skeið. Fjölskylda Halldór kvæntist 28.12. 1956 Sig- rúnu Sigurbjartsdóttur, f. 31.1. 1936, fyrrv. gjaldkera við Tollgæsl- una í Hafnarfirði. Hún er dóttir Sigurbjarts Vilhjálmssonar húsa- smíðameistara og Þuríðar Magn- úsdóttur húsmóður. Börn Halldórs og Sigrúnar eru Þuríður Erla, f. 5.3. 1955, hár- greiðslumeistari, gift dr. Kristni Andersen rafmagnsverkfræðingi og eru synir þeirra Halldór og Geir; Sigurbjartur, f. 23.6. 1956, byggingatæknifræðingur, var í sambúð með Aðalheiði Jörgen- sen og eru börn þeirra Bent Bjarni og Sigrún Ásta en sambýliskona hans er Margrét Ragnarsdótt- ir matreiðslumeistari; Jóhann, f. 1.8.1968, viðskiptafræðing- ur, kvæntur Margréti Lárusdótt- ur þjónustufulltrúa og eru börn þeirra Júlía Ósk og Marteinn Logi. Systkini Halldórs: Halldóra, nú látin, var búsett í Njarðvík; Sigrún, nú látin, var búsett á Hólmarvík og síðustu árin í Hafnarfirði; Mar- grét, búsett á Flateyri; Finnfríður, búsett á Hólmavík; Lilja, búsett í Garðabæ; Unnur, nú látin, var bú- sett í Hafnarfirði; Hermann, bú- setttur á Hólmavík; Fjóla, búsett í Kópavogi. Foreldrar Halldórs: Hjört- ur Samsonarson, f. 15.4. 1893, d. 19.7. 1971, sjómaður og bóndi, og Guðrún Ottósdóttir, f. 14.12. 1899, d. 14.8. 1980, húsfreyja. Ætt Hjörtur var sonur Samsonar, b. og formanns í Gjögri í Reykjar- firði á Ströndum Jónssonar, og Karitasar Jónsdóttur, frá Trölla- tungu við Steingrímsfjörð. Guðrún var dóttir Ottós Helga, b. í Kjaransvík og á Glúmsstöð- um í Fljótavík á Hornströndum, á Bæjum á Snæfjallaströnd og síðan bátasmiðs í Bolungarvík Guðlaugssonar, sjómanns á Flat- eyjardal Hallgrímssonar. Móðir Guðrúnar var Halldóra Sigurðar- dóttir, frá Kvíavöllum Jónssonar. 80 ÁRA Á LAUGARDAG 85 ÁRA Á FÖSTUDAG Kristján P. Þórðarson BÓNDI Á BREIÐALÆK OG FYRRV. ODDVITI Kristján fæddist að Innri-Múla á Barðaströnd og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Héraðsskólann í Reykjanesi við Djúp 1948-49. Eft- ir að Kristján kvæntist konu sinni reistu þau hjónin nýbýlið Breiða- læk á Barðaströnd 1955 þar sem þau hafa stundað búskap síðan. Auk þess stundaði Kristján útgerð á trillu, ásamt sonum sínum og sonarsyni, allt fram til 2009. Kristján stofnaði ásamt fleir- um fyrsta unglingaskólann í Barða- strandarhreppi og sá um rekstur hans, var formaður Ungmennafélags Barðstrendinga 1948-68, formaður skólanefndar Barðastrandarskóla- hverfis 1962-78, sat í stjórn Ræktun- arsambands Vestur-Barðstrendinga 1964-79, var einn stofnenda og for- maður stjórnar undirbúningsnefnd- ar Mjólkursamlags Vestur-Barð- strendinga og í stjórn þess um árabil, formaður byggingarnefndar Félags- heimilisins Birkimels og fyrsti for- maður húsnefndar, var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn á Vestfjörð- um, sat í sýslunefnd Vestur-Barða- strandarsýslu 1966-70, í hrepps- nefnd Barðastrandarhrepps 1970-82 og jafnframt oddviti, fulltrúi á þingi Sambands íslenskra sveitarfélaga 1970-82, fulltrúi á Fjórðungsþingi Vestfjarða og á aðalfundum Orkubús Vestfjarða, í stjórn Eyrasparisjóðs á Patreksfirði í nokkur ár frá 1996, einn stofnenda Kaupfélags Barðastrand- ar og formaður þess, einn af stof- hendum Saumastofunnar Strandar ehf., og var umsjónarmaður henn- ar 1968-2005, var varamaður í stjórn Landnáms ríkisins og í Sauðfjársjúk- dómanefnd 1978-90. Bækur eftir Kristján: Sú kemur tíð, endurminningar, útg. 2005; Vegir og vegleysur, útg. 2006. Fjölskylda Kristján kvæntast 23.10. 1954 Val- gerði Kristjánsdóttur, f. 5.11. 1932, húsfreyju. Hún er dóttir Kristjáns Finnbogasonar, sem var bóndi í Litlabæ í Ögurhreppi við Djúp, og Guðbjargar Jensdóttur húsfreyju. Börn Kristjáns og Valgerðar eru Snæbjörn, f. 29.8 1954, rafiðnfræð- ingur í Reykjavík, kvæntur Sigur- laugu Sigurðardóttur skrifstofu- manni; Finnbogi Sævar, f. 21.6. 1956, bóndi og búfræðingur á Breiðalæk, kvæntur Ólöfu Pálsdóttur bónda, frá Hamri á Barðasfrönd; Gísli, f. 16.9. 1957, cand. mag. í sagnfræði og blaðamaður í Ósló og fréttaritari RÚV, kvæntur Anne Aanstad, blaða- manni frá Tromsö í Noregi; Þórhild- ur Guðbjörg, f. 27.4.1964, þroska- þjálfi og kennari á Höfn í Hornafirði, gift Sigurði Mar Halldórssyni, ljós- myndara og grafískum hönnuði; dr. Steinunn Jóna, f. 13.10. 1965, forn- leifafræðingur á Skriðuklaustri; Erla Bryndís, f. 16.4. 1968, landslagsarki- tekt á Ísafirði og eigandi teiknistof- unnar Eikar, gift Jóni Gíslasyni tré- smíðameistara. Systkini Kristjáns: Björg, f. 10.10. 1916, nú látin, bóndi í Tungumúla á Barðaströnd; Ólafur Kristinn, f. 21.8. 1918, kennari í Reykjavík; Jóhanna, f. 4.1. 1920, húsmóðir á Patreksfirði; Júlíus Óskar, f. 29.4. 1921, nú látinn, bóndi á Skorrastað i Norðfirði; Björg- vin 9.9. 1922, nú látinn, leigubílstjóri og sjómaður í Hafnarfirði; Karl, f. 16.10. 1923, nú látinn, verkamaður og sjómaður í Reykjavík; Steinþór, f. 13.7.1924, nú látinn, bóndi í Skugga- hlíð í Norðfirði; Sveinn Jóhann, f. 13.12. 1927, fyrrv. kaupmaður og bóndi á Innri-Múla á Barðaströnd. Foreldrar Kristjáns voru Þórður Ólafsson 24.8. 1887, d. 1985, bóndi á Innri-Múla, og k.h., Steinunn Björg Júlíusdóttir, f. 20.3. 1895, d. 1985, húsfreyja á Innri-Múla. Guðmundur fæddist í Ásatúni í Hrunamannahreppi og ólst þar upp. Hann nam í farskóla í þrjá vet- ur og tók sveinspróf í trésmíði utan skóla 1972. Guðmundur vann við bústörf hjá Bjarna, skólastjóra á Laugarvatni, í tíu ár og einnig við jarðvinnslu og var einn af fyrstu jarðýtumönnum á landinu. Eftir að hann kvæntist bjuggu þau hjónin eitt og hálft ár á Laug- arvatni en haustið 1951 fluttu þau að Laugarási í Biskupstungum og stofnuðu þar nýbýlið Lindarbrekku. Guðmundur vann við smíðar alllengi, þar á meðal við allar bygg- ingar í Skálholti. Seinni ár hefur hann alfarið stundað garðyrkju. Áhugamál Guðmundar eru hestamennska, enda smíðaði hann skeifur í tómstundum. Fjölskylda Guðmundur kvæntist 24.6. 1950 Jónínu Sigríði Jónsdóttur, f. 6.2. 1927, húsfreyju. Hún er dóttir Jóns Péturssonar, pípulagningamanns í Neskaupstað, og k.h., Katrínar Guðnadóttur húsmóður. Börn Guðmundar og Jónínu eru Indriði, f. 6.6. 1951, vélvirki í Reykjavík, kvæntur Ester Gunnars- dóttur en þau eiga fjögur börn; Jón Pétur, f. 15.6. 1955, þungavinnu- vélstjóri á Selfossi, kvæntur Guð- rúnu H. Hjartardóttur og eiga þau þrjú börn; Katrín Gróa, f. 10.10. 1956, starfsmaður hjá Alcan, búsett í Neskaupstað, gift Þórarni Guðna- syni og eiga þau þrjú börn; Grímur, f. 27.6. 1961, ferðabóndi í Ásatúni, kvæntur Guðbjörgu Jóhannsdótt- ur húsfreyju og eiga þau þrjú börn, auk þess átti Grímur dóttur fyrir hjónaband. Systkini Guðmundar: Guðný, f. 1902, lést þriggja vikna; Magnús, f. 22.9. 1903, d. 1994, lengi starfs- maður slippsins í Keflavík, búsettur í Keflavík; Sigríður, f. 13.8. 1905, d. 1973, saumakona, lengst af í Reykja- vík; Hallgrímur, f. 7.9. 1907, d. 1982, bóndi í Ásatúni; Óskar Guðlaugur, f. 1.4. 1910, d. 19.10. 1995, bóndi í Ásatúni; Guðný, f. 23.2.1912, nú látin, vann lengi í sælgætisgerðinni Víkingi, búsett í Reykjavík; Helgi, f. 30.1. 1914, d. 1995, bóndi í Laugar- ási og síðar verslunarmaður í Mál- aranum í Reykjavík; Laufey, f. 24.2. 1917, d. 9.6.1999, húsfreyja í Ása- túni; Jakob, f. 11.11.1918, d. 1991, lengst af kaupmaður í Keflavík; Kristinn, f. 1.5. 1920, d. 1936. Foreldrar Guðmundar eru Ind- riði Grímsson, f. 17.5. 1873, d. 19.4. 1928, bóndi í Ásatúni í Hruna- mannahreppi, og k.h., Gróa Magn- úsdóttir, f. 21.8. 1877, d. 6.6. 1939, húsfreyja. Ætt Indriði var sonur Gríms, b. í Ásatúni Guðmundssonar, b. á Kjaransstöð- um í Biskupstungum Þorsteinsson- ar, b. í Miðdalskoti Vigfússonar, b. á Kiðabergi í Grímsnesi Sigurðsson- ar, b. í Ásgarði Ásmundssonar. Móðir Indriða var Helga Guð- mundsdóttir, b. í Brekku Guð- mundssonar, og Helgu Jónsdóttur, pr. á Klausturhólum. Móðir Helgu Jónsdóttur var Ragnhildur Björns- dóttir, pr. á Setbergi Þorgrímsson- ar, sýslumanns í Mýrasýslu. Móðir Ragnhildar var Helga Brynjólfsdótt- ir, sýslumanns í Hjálmholti Sigurðs- sonar, sýslumanns Sigurðssonar. Gróa var dóttir Magnúsar, b. í Bryðjuholti Jónssonar, b. í Efra- Langholti Magnússonar, b. í Efra- Langholti Eiríkssonar, b. í Bolholti Jónssonar, b. í Bolholti Þórarins- sonar, b. í Næfurholti Brynjólfsson- ar. Móðir Gróu var Guðný Ein- arsdóttir, b. í Bryðjuholti í Hruna- mannahreppi Einarssonar, bróður Sigurðar, b. í Gelti í Grimsnesi, ætt- föður Galtarættarinnar. Einar var sonur Bjarna, b. á Sóleyjarbakka Jónssonar. Móðir Einars var Guð- rún Kolbeinsdóttir, pr. og skálds í Miðdal, Þorsteinssonar og Arndísar Þorsteinsdóttur. KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON rekur ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma viðburði liðinna ára og minnist horfinna merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn tilkynningar um stórafmæli á netfangið kgk@dv.is 95 ÁRA Á LAUGARDAG Guðmundur Indriðason GARÐYRKJUBÓNDI OG TRÉSMIÐUR Í LINDARBREKKU Sigurjón G. Óskarsson RAFVERKTAKI Á HÖFN Í HORNAFIRÐI Garðar fæddist að Syðri-Úlfsstöð- um og ólst þar upp og á Hvols- velli. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Skógaskóla 1966 og prófi frá Iðn- skólanum á Selfossi 1969. Garðar var í brúarvinnu á sumr- in 1966-70, á vertíð í Vestmanna- eyjum 1968-71 og hjá Austurleið við akstur og framkvæmdastjórn á árunum 1970-2003 og hjá Kynn- isferðum 2003-2005. Hann hefur starfað við rafvirkjun hjá Rafhorni frá 2005. Garðar sat í stjórn Björgunarfé- lags Hornafjarðar, Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu, Jöklaferða og Austurleiða. Fjölskylda Garðar kvæntist 14.5.1972 Önnu Ólöfu Ólafsdóttur, f. 16.6. 1953, útibússtjóra hjá ÁTVR á Horna- firði. Hún er dóttir Ólafs Guð- jónssonar og Önnu Markúsdótt- ur, fyrrum bænda í Vesturholtum í Þykkvabæ en þau eru bæði lát- in. Börn Garðars og Önnu Ólafar eru Sigríður Guðbjörg, f. 3.2. 1972, bankastarfsmaður og trygginga- fulltrúi, gift Aðalsteini Guðmunds- syni og eiga þau þrjú börn, Ágúst Mána, Hafstein Elvar og Magn- dísi Lóu; Sonja, f. 24.9. 1977, leik- skólaleiðbeinandi en maður henn- ar er Arnar Þór Jónsson og eiga þau tvær dætur, Ólöfu Maríu og Örnu Ósk, en börn Arnars frá fyrra hjónabandi eru Sindri Rafn, Ey- dís Hlín og Andri Jón; Ólöf Ósk, f. 18.8. 1980, húsmóðir en unnusti hennar er Gunnar Örn Reynisson og eiga þau tvö börn, Reyni Snæ og Írisi Ösp; Svanhildur, f. 10.7. 1984, tanntæknir. Systkini Garðars: Halldór, f. 4.2. 1953, kennari á Hellu; Ómar, f. 22.5. 1954, starfsmaður Cargo bíla; Guðbjörg, f. 27.3. 1956, bók- ari hjá Ísaga; Sigurlín, f. 7.11. 1958, svæðisstjóri VÍS á Hvolsvelli; Ósk- ar, f. 25.1.1965, flugumferðarstjóri í Reykjavík; Unnur, f. 20.6. 1967, leikskólakennari á Hvolsvelli; Þór- unn, f. 20.6.1967, grunnskólakenn- ari á Hvolsvelli. Foreldrar Garðars: Óskar Sigur- jónsson, f. 16.8. 1925, fyrrv. fram- kvæmdastjóri Austurleiðar hf., og Sigríður Halldórsdóttir, f. 15.6. 1929, húsmóðir, búsett á Hvols- velli. 60 ÁRA Á FÖSTUDAG 34 FÖSTUDAGUR 14. maí 2010

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.