Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2010, Page 50
Ensku úrvalsdeildinni er lokið á starfsárinu 2009/2010.
Chelsea stóð uppi sem verðugur meistari eftir að hafa
valtað yfir Wigan, 8-0, í lokaumferðinni. DV fylgdist
vel með enska boltanum í vetur eins og alltaf og ger-
ir hér upp tímabilið, það besta og versta. tomas@dv.is
50 FÖSTUDAGUR 14.maí 2010
UPPGJÖRIÐ Á ENGLANDI
LIÐ TÍMABILSINS
Wayne Rooney
Didier Drogba
Branislav Ivanovic
James MilnerFrank Lampard
Patrice Evra
Joe Hart
Cesc Fabregas
Carlos Tevez
Ledley KingThomas Vermaelen
MATTHEW
ETHERINGTON
STOKE
Þessi knái vængmaður er svolítið
kryddið sem lífgar upp á annars ólseigt
lið Stoke. Tony Pulis vissi alveg hvað
hann var að gera þegar hann fékk
Etheringon til liðsins. Leikmaður sem
er tilbúinn að leggja mikið á sig sem er
jú einmitt skylda allra þeirra er klæðast
Stoke-búningnum en einnig virkilega
flinkur fótboltamaður með eitraðar
fyrirgjafir. Hann leggur upp ófá mörkin
og skorar einnig handfylli. Leikmaður
sem gekk í endurnýjun lífdaga hjá Stoke
og er hreinlega spurning um hvort
stærri lið fari að kalla.
KOMU EINNIG TIL GREINA:
Darren Fletcher (Manchester United)
og Kevin Davies (Bolton).
VANMETINNBESTUR
WAYNE ROONEY
MANCHESTER UNITED
Mikil ábyrgð var lögð á herðar Waynes Rooney fyrir tímabilið eftir brotthvarf
Cristianos Ronaldo og Carlos Tevez. Hann stóðst heldur betur þá áskorun og skoraði
26 mörk í deildinni og varð næstmarkahæstur. Á löngum köflum virtist hann eini
maðurinn sem væri fær um að skora mörk fyrir liðið auk þess að mata félaga sína á
stoðsendingum og berjast eins og ljón. Hann fór að fækka óþarfa sprettum neðar
á völlinn og sparaði orkuna í að skora mörk. Það breytir því samt ekki að Rooney er
alltaf alls staðar, og er farinn að skora meira. Hans besta tímabil á ferlinum.
KOMU EINNIG TIL GREINA: Frank Lampard (Chelsea) og Didier Drogba (Chelsea).
DIMITAR
BERBATOV
MANCHESTER UNITED
Ofmetinn og ekki ofmetinn. Dimitar
Berbatov var ekkert stórkostlegur í
fyrra en skoraði þó nokkur mörk. Það
fór minna fyrir honum því Carlos Tevez
var ávallt hafður í byrjunarliðinu þegar
eitthvað mikið var undir. Í ár var aftur á
móti enginn Tevez og var mikil ábyrgð
því á Berbatov. Það var ábyrgð sem
hann stóð engan veginn undir enda
gat þessi 30 milljóna punda leikmaður
nákvæmlega ekkert. Hann er ógeðslega
góður í fótbolta og fær stóra plúsa
fyrir það úti um allt en hann gagnast
liði Manchester United sama og ekkert
þegar mikið bjátar á.
KOMU EINNIG TIL GREINA: Jon Obi
Mikel (Chelsea) og Glen Johnson
(Liverpool)
OFMETINN
SUNDBOLTAMARK SUNDERLAND
Einhver ótrúlegasti atburðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Sunderland hafði
sigur á Liverpool, 1-0, þar sem Darren Bent skoraði afar sérstakt mark. Sérstakt? Jú,
stór sundbolti var að væflast í vítateig Liverpool-manna og tókst Bent að skjóta bolt-
anum í sundboltann og þaðan fór hann í netið. Auðvitað varð allt vitlaust í herbúðum
Liverpool þar sem markið var kolólöglegt. Þegar eitthvað svona gerist ber dómaran-
um að stöðva leikinn þar sem um aðskotahlut er að ræða. Strandabolta-Mike Jones
eins og hann er kallaður í dag vissi samt ekki betur og leyfði markinu að standa.
ATVIK ÁRSINS
HEURELHO
GOMES
TOTTENHAM
Juande Ramos virtist hafa keypt köttinn
í sekknum þegar hann fékk þann
brasilíska frá PSV í fyrrasumar. Hann gat
nákvæmlega ekkert og var ævintýra-
lega mistækur. Þegar Harry Redknapp
var síðan ráðinn stjóri brást hann strax
við og keypti Carlo Cudicini frá Chelsea.
En Cudicini er bara á þeim stað sem
honum líður best núna, á bekknum.
Gomes kom eins og nýr maður inn í
úrvalsdeildina í ár og hefur verið mjög
stöðugur og í sumum leikjum einfald-
lega frábær. Hann á stóran þátt í því að
Tottenham spilar í Meistaradeildinni
að ári.
KOMU EINNIG TIL GREINA: Gareth Bale
(Tottenham) og Lee Bowyer (Birming-
ham).
BÆTTI
SIG MEST
INNKAUP
LIVERPOOL
Liverpool hefur undanfarin ár verið
mjög duglegt að kaupa nokkra 4-7
milljóna punda menn í staðinn fyrir að
safna til sín stærri leikmönnum sem
kosta allt að því 20 milljónir punda og
meira. Það gerðu þeir samt með Torres
og sjáið hvernig það
borgaði sig. Í ár ætluðu
menn heldur betur
að gera bragarbót
þar á. Tveir leikmenn
voru keyptir á sautján
milljónir punda. Annar
þeirra, Glen Johnson hægri bakvörður
sem byrjaði vel en fjaraði út, og svo
ítalski miðjumaðurinn Alberto Aquilani
sem tók þátt í átján leikjum, flestum
sem varamaður. Peningum afar illa varið
svo ekki sé meira sagt. Þú kaupir ekki
bakvörð á 17 milljónir punda. Enda kom
á daginn að sveit Liverpool var engan
veginn nægilega sterk.
KOMU EINNIG TIL GREINA: Ráðning
Brians Law til Burnley og að Arsenal
keypti ekki framherja í janúarglugg-
anum.
MISTÖKIN
STEVEN
GERRARD
LIVERPOOL
„Captain fantastic“, maðurinn sem allir
Liverpool-menn horfa til þegar mikið
bjátar á. Vanalega hefur hann staðið
undir þeirri gríðarlegu pressu að bera
fyrirliðaband þessa fornfræga liðs en
í ár var hann ekki nema skugginn af
sjálfum sér. Oft virtist hann einfaldlega
áhugalaus sem fær auðvitað alla til að
spyrja sig hvort hann sé einfaldlega á
förum. Einnig er hægt að velta því fyrir
sér hvort tími sé bara kominn til að hann
finni sér nýtt lið. Steven Gerrard mun
koma sterkur til baka en það er ekki
nokkur spurning að enginn leikmaður
lék verr miðað við getu á þessu tímabili í
ensku úrvalsdeildinni.
KOMU EINNIG TIL GREINA: Emile
Heskey (Aston Villa) og Gareth Barry
(Man. City).
MAN. UNITED 4
MAN. CITY 3
Nágrannarnir úr Manchester-borg mættust í
hreint út sagt mögnuðum leik í lok september
í fyrra. Heimamenn komust þrívegis yfir en
þegar Manchester United skorar þrjú mörk
á heimavelli dugar það vanalega til sigurs.
Bláliðarnir voru hins vegar ekkert á þeim
buxunum og jafnaði Craig Bellamy metin,
3-3, á lokamínútu leiksins. En þá reis upp
maður frá Liverpool-borg, Michael nokkur
Owen, og skoraði á sjöttu mínútu í uppbót-
artíma. Það varð vægast sagt allt vitlaust á
vellinum og langbesta leik tímabilsins lauk
með sigri þáverandi Englandsmeistara.
KOMU EINNIG TIL GREINA: Chelsea 3 - 3
Everton og Man. City 2 - 1 Chelsea.
LEIKURINN
DALAÐI MEST
RORY DELAP
STOKE
Delap er ekki leikmaður sem 10 ára
fótboltastrákurinn er með mynd af uppi
á vegg hjá sér. Enda engin ástæða til.
Hann er engin ofurstjarna og eins og
margir Bretar ekkert sérlega mynd-
arlegur. En drjúgur er hann í orðsins
fyllstu merkingu. Delap býður upp á
lengstu og föstustu innköst sem sjást
en þau minna mest á hornspyrnur eða
aukaspyrnu hvaðan af vellinum sem
hann grýtir boltanum inn. Fyrir utan
það hefur Delap bætt sig mikið sem
knattspyrnumaður. En Stoke heldur
sér í deildinni að stórum hluta vegna
innkasta hans.
KOMU EINNIG TIL GREINA: Own
Goal (Manchester United) og Barry
Ferguson (Birmingham).
DRÝGSTUR