Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2010, Page 52
52 FÖSTUDAGUR 14.maí 2010 HELGARBLAÐ
FRÆGIR DÓMAR
fjárglæframanna
HINIR ÞRÍR DÆMDU
Í BAUGSMÁLINU
Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri
Baugs, var dæmdur í þriggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir sinn þátt í Baugsmálinu
þegar málinu lauk endanlega með dómi Hæsta-
réttar í júní 2008. Tryggvi Jónsson, fyrrverandi
aðstoðarforstjóri Baugs, var dæmdur í tólf mánaða
skilorðsbundið fangelsi. Jón Ásgeir var ákærður í
58 ákæruliðum og var sakfelldur fyrir einn þeirra.
Tryggvi var ákærður fyrir 36 liði og sakfelldur fyrir
fjóra.
Jón Gerald Sullenberger athafnamaður, sem var
upphaflegur kærandi í Baugsmálinu, hlaut á sama
tíma þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir
að gefa út reikning og aðstoða Jón Ásgeir þannig
við brot sem hann hafði þegar verið dæmdur fyrir.
SAMIÐ Í SKJÓLI NÆTUR
Björgólfur Guðmundsson, útrásarvíkingur, var árið 1990 einn af
þremur sem dæmdir voru sekir í Hafskipsmálinu. Málið fjallaði
um það að Eimskipafélagið þoldi illa samkeppni við Hafskip og
samdi við Útvegsbankann um kaup á Hafskip að næturlagi. Fátt
var eðlilegt með kaupunum þar sem Eimskip nýtti sér slæma
stöðu Hafskips til þess að ganga frá kaupunum. Gífurleg umfjöll-
un var um málið og vilja margir meina að aðkoma stjórnmála-
manna í málinu hafi verið með öllu óeðlileg. Albert Guðmunds-
son, þáverandi Iðnaðarráðherra, sagði af sér í tengslum við
málið. Á endanum voru 14 af þeim 17 ákærðu í málinu sýknaðir
en Björgólfur hlaut fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi.
ÁVÖXTUNAR-
ÆVINTÝRIÐ
ENDAÐI ILLA
Vinjettuhöfundurinn og fagurkerinn
Ármann Reynisson var dæmdur
fyrir svokallað Ávöxtunarævintýri á
níunda áratug síðustu aldar. Fjöldi
fólks tapaði fé á viðskiptum við
hann þegar Ármann rak fyrirtækið
Ávöxtun og var hann dæmdur fyrir
lögbrot. Sjálfur hefur Ármann þó
sagt að hann hafi ekki gert annað
en hafi síðar viðgengist hjá ýmsum
fjármálafyrirtækjum. Ármann
afplánaði dóm sinn á Kvíabryggju.
DÆMDUR FYR-
IR VIRÐISAUKA-
SKATTABROT
Karl Wernersson, kenndur við
Milestone, var fundinn sekur fyrir
héraðsdómi árið 1998 fyrir brot gegn
lögum um virðisaukaskatt. Hann var
þar dæmdur í tveggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa ekki, sem
framkvæmdastjóri Tölvukaupa ehf.,
staðið skil á virðisaukaskatti upp á 1,7
milljónir króna. Karli var einnig gert
að greiða 3,4 milljónir króna í sekt auk
sakarkostnaðar. Hæstiréttur mildaði
hins vegar dóminn í hundrað þúsund
króna sekt.
NOTAÐI BJÖRGÓLF
Haukur Heiðar, starfsmaður Landsbankans, var dæmdur fyrir rúmlega 50 milljóna króna fjárdrátt árið
1980. Sem deildarstjóri ábyrgðardeildar Landsbankans hafði Haukur Heiðar um sjö ára skeið, frá 1970 til
1977, dregið sér rúmar 50 milljónir króna með skjalafalsi. Í flestum tilfellum notaði Haukur Heiðar féð sem
hann dró sér til þess að borga ábyrgðarskuldir fyrirtækja Björgólfs Guðmundssonar, Dósagerðarinnar og
Bláskóga, eða kom fénu úr landi og inn á bankareikning í Sviss. Björgólfur borgaði Hauki svo til baka í
reiðufé og með vöxtum.
Björgólfur var ekki ákærður í málinu á sínum tíma því Haukur Heiðar sagði að hann hefði verið einn að
verki og að hann hefði notað Björgólf „sem verkfæri“ honum óafvitandi til að koma peningunum út úr
bankanum.
Haukur Heiðar var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi og skilaði jafnframt öllu því fé sem hann hafði
dregið sér með vöxtum eftir að upp komst um fjárdráttinn, meðal annars fé sem hann geymdi á banka-
reikningi í Genf í Sviss.
FYRSTU DÓMAR HRUNSINS
Í byrjun desember 2009 voru Kaupþingsmennirnir Daníel Þórðarson og Stefnir Ingi Agnarsson dæmdir í átta mánaða fangelsi. Voru það fyrstu dómarnir í tengslum við hrunið. Þeim var gert að sök að hafa sett inn kauptilboð í skuldabréfaflokk Exista sex sinnum, í janúar og febrúar árið 2008, skömmu fyrir lokun markaða, þannig að tilboðin hefðu áhrif á dagslokagengi. Með þessu taldi ákæruvaldið að þeir hefðu búið til falska eftirspurn auk þess sem verð bréfa hafi verið misvísandi. Auk þess var Daníel og Stefni gert að greiða 1,2 milljónir króna í sakarkostnað.