Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2010, Síða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2010, Síða 62
62 FÖSTUDAGUR 14. maí 2010 FÓLKIÐ Frægðarsól Magnúsar Valdi-marssonar, betur þekktur sem Maggi mix, skín skær-ar en nokkru sinni fyrr. Fólk keppist um að fá Magga til þess að skemmta í partíum, tónleikum og öðrum viðburðum. Er orðið þannig í pottinn búið að Maggi hefur ráðið nær alla fjölskylduna í vinnu. Syst- ir hans sér um að keyra stjörnuna á giggin og Heimir Berg Halldórsson, náskyldur ættingi Magga, hjálpar honum við bókanir. „Ég er enginn opinber umboðs- maður, ég sé bara um ýmis mál fyr- ir hann, til dæmis bókanir. Það er alveg nóg að gera hjá honum,“ segir Heimir léttur. „Það er öll fjölskyldan hans í þessu. Það eru allir að hjálp- ast að,“ segir Heimir. Eins og endra- nær heldur Maggi nánu sambandi við aðdáendur sína á Facebook en alls eru rétt tæplega 26.600 manns skráðir á síðuna. Það er vægt til orða tekið þegar sagt er að Maggi mix sé með langvinsælustu íslensku síðuna á Facebook. Nóg er að gera hjá Magga við að skemmta en um daginn þurfti hann að hafna nokkrum giggum í Reykja- vík þar sem honum bauðst annað stærra á Ísafirði. Er hann því farinn að ferðast um landið til þess að sinna Mix-þyrstum landanum. Magga skaut fyrst fram á sjónar- sviðið með hinum gríðarlega vin- sælu matreiðsluþáttum, Gott og gómsætt, sem hann hefur nú gefið út á DVD. Maggi er þó algjör þús- undþjalasmiður og hefur síðustu vikur einbeitt sér að sparnaðarráð- um sem hann kynnir með mynd- böndum á heimasíðu sinni. Í nýjasta myndbandinu kennir hann fólki að fela peninga á næturlífinu með því að geyma þá í tómum Extra tyggjó- poka. Eru margir aðdáendur Magga þó farnir að sakna matreiðsluþáttanna og skrifar ein stúlka á Facebook- síðu kappans: „Þú ert bara hættur með gott og gómsætt og byrjaður með viðskiptaþætti. Af hverju breyttist þú svona?“ Það mun væntanlega ekki líða á löngu þar til nýr þáttur af Góðu og gómsætu birtist enda hugsa fáar stjörnur betur um aðdáend- ur sína. Lillý eignast lilla Sykursæta rauðkan Lillý Valgerð- ur Pétursdóttir, fréttakona á Stöð 2, er orðin móðir í fyrsta sinn en hún eignaðist lítinn strák sem kom í heiminn síðastliðið mánudags- kvöld. Segir Lillý á Facebook-síðu sinni: „Lítill yndislegur og falleg- ur strákur kom í heiminn á mánu- dagskvöldið klukkan 21. Hann var rúmar 15 merkur og 53 sentímetr- ar.“ Lillý Valgerður, sem er stjórn- málafræðingur að mennt, hef- ur verið ein af helstu fréttakonum Stöðvar 2 undanfarin ár en hún hóf feril sinn í fjölmiðlum sem skrifta en það er ekki óalgengt. Til dæm- is hófu tvær skvísur á RÚV feril sinn sem skriftur, þær Margrét Erla Maack á Rás 2 og Elsa María Jak- obsdóttir, fyrrverandi Kastljóskona. MAGGI MIX MEÐ FJÖLSKYLDUNA Í VINNU: ALLIR HJÁLPAST AÐ Svo mikið er að gera hjá internetstjörnunni Magga mix að öll fjölskyldan hjálpast að við að halda utan um ferilinn. Undanfarið hefur Maggi lagt matarþætti sína til hliðar og einbeitir sér nú að sparnaðarráðum fyrir landann ásamt því að skemmta úti um allt land. Vinsæll Maggi mix fær góða hjálp til að geta sinnt öllum sem vilja fá hann til að skemmta. 3-5 5-9 3-8 3-6 3-8 1-6 3-8 0-3 5-10 2-6 3-5 3-6 3-8 0-5 3-5 5-9 5-10 4-6 5-10 1-5 3-8 0-4 8-13 2-6 3-6 2-5 3-8 0-3 ...OG NÆSTU DAGA Sun Mán Þri Mið vindur í m/s hiti á bilinu Stykkishólmur vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu Sun Mán Þri Mið vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu Höfn Reykjavík Egilsstaðir Ísafjörður Vestmannaeyjar Patreksfjörður Kirkjubæjarkl. Akureyri Selfoss Sauðárkrókur Þingvellir Húsavík Keflavík VEÐRIÐ Á MORGUN KL. 15 VEÐRIÐ Í DAG KL. 15 4 6 5 4 6 7 13 15 4 12 6 6 9 10 14 12 9 10 6 1012 8 4 6 6 8 6 10 3 13 8 613 8 13 3 3 8 6 10 410 8 4 Hitakort Litirnir í kortinu tákna hitadreifingu. Því rauðara því hlýrra. Fös Lau Sun Mán hiti á bilinu Kaupmannahöfn hiti á bilinu Osló hiti á bilinu Stokkhólmur hiti á bilinu Helsinki hiti á bilinu London hiti á bilinu París hiti á bilinu Tenerife hiti á bilinu Alicante 13/7 16/7 15/12 20/11 15/5 18/4 23/17 19/10 11/6 14/8 20/9 19/8 17/7 16/5 23/19 23/11 15/6 14/6 22/8 19/11 15/7 20/10 24/19 22/11 14/3 20/7 22/10 20/9 17/7 19/4 24/20 22/11 VEÐRIÐ ÚTI Í HEIMI Í DAG OG NÆSTU DAGA 3-8 5-9 3-8 4-9 3-8 3-7 3-5 3-6 3-8 4-10 3-5 4-8 3-5 2-6 3-8 6-8 6-8 5-8 3-8 5-7 3-5 5-7 3-5 5-7 3-5 8-11 3-8 8-10 5-10 3-6 10-15 5-8 3-5 7-12 3-10 6-11 3-8 5-10 5-10 5-10 8-13 5-7 3-8 3-8 5-10 5-9 3-5 7-10 5-8 4-6 3-8 4-9 3-5 4-8 5-10 5-10 3-8 4-8 5-10 7-10 3-5 7-10 3-10 5-8 3-8 3-12 3-5 5-10 3-10 8-11 5-10 5-10 8-13 5-10 5-10 5-10 5-10 5-8 5-8 5-10 5-8 5-9 5-10 5-8 HELGARHORFURNAR BESTAR HÖFUÐBORGAR- SVÆÐIÐ Dagurinn í dag verður þurr að mestu í höfuðborginni og eitthvað mun sjást í þá gulu þó hún verði spar á sig. Almennt má segja að veðrið sé ekkert sérstakt en allt í lagi þar sem vindur verður hægur og hiti 7-11 stig. LANDSBYGGÐIN Dagurinn í dag og um helgina verður blautur víðast hvar á norður- og austurhluta landsins. Í dag verður hiti þó sæmilegur í fremur hægum vindi en á morgun kólnar allnokkuð, sérstaklega nyrðra auk þess sem vindur vex á Snæfells- nesi, Vestfjörðum, norðvestan til og með ströndum nyrðra, 8-15 m/s. Þá á ég jafnvel von á næturfrosti aðfaranótt sunnudagsins. Það verður því að segjast eins og er að veðurhorfurnar fyrir norður- og austurhluta landsins eru óttalega óspennandi. Því sýnist mér að helgarveðrið verði best á Suðurlandi og jafnvel suðvesturlandi. Það er þó rétt að nefna að dagurinn í dag er fremur lítt spennandi. NÆSTU DAGAR Sunnudagurinn verður keimlíkur morg- undeginum. Svalur og blautur nyrðra og eystra en hlýr og bjartur sunnan til að deginum, þó svalt verði að næturlagi. <5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst, fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu.VEÐRIÐ MEÐ SIGGA STORMI siggistormur@dv.is EKKI NORÐUR! Maður er farinn að sjá hjólhýsin og fellihýsin aftan í bílunum. Ætli menn sér að vera í þurrki og einhverri sól um helgina er afleitt að vera á Akureyri og á Norðurlandi almennt. Suðurland- ið og eitthvað yfir á suðvesturhornið verður áberandi best sé litið heilt yfir helgarveðrið. Góða ferð!!! ATHUGASEMD VEÐURFRÆÐINGS Hitakort Litirnir í kortinu tákna hitadreifingu. Því rauðara því hlýrra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.