Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Blaðsíða 46
Vel valin sundföt geta undir-strikað það besta við vaxtarlag-ið á meðan sundföt sem passa illa geta haft akkúrat öfug áhrif
og dregið athygli að því sem þú vilt helst
fela. Þau þrjú orð sem þú þarft alltaf að
hafa í huga þegar þú velur þér sundföt
eru: litur, samsetning og snið.
Tískustraumar hafa líka áhrif á sund-
föt. Háar buxur og bikinítoppar í anda
sjötta áratugarins, hlýralausir topp-
ar sem og toppar sem eru aðeins með
hlýra yfir aðra öxlina, blómamynstur og
grafísk prent er afar heitt í sumar og þá
sérstaklega djarfir sundbolir sem sýna
bera húð hér og þar eða eru með mjög
djúpu V-hálsmáli.
ingibjorg@dv.is
Njóttu sumarsiNs í botN Þar sem ís-
lenska sumarið er heldur í styttri kantinum verðum við að njóta
þess til hins ítrasta. Næst þegar þú skiptir um á rúmunum er
um að gera að nota tækifærið og hengja hreinu rúmfötin út
svo geislar sólarinnar og vindurinn gefi þurrkaranum þínum
frí. Það er fátt dásamlegra en að skríða upp í ferskt og ilmandi
hreint rúm. Annað gott ráð til að njóta sólarinnar til hins ítrasta
er að borða úti á verönd við hvert tækifæri. Ekki skemmir fyrir
ef grænmetið kemur beint úr garðinum.
„Sumarlínan er mjög litrík og
stelpuleg. Þetta eru fullorðins
kjólar úr rómantískum og svo-
lítið barnalegum efnum og stíll-
inn minnir á hljómsveitina Coco
Rosie. Þú getur alveg verið í striga-
skóm við,“ segir Sandra Berndsen
fatahönnuður sem hannar undir
merkinu Oktober.
Sandra býr í Danmörku og hef-
ur tekið þátt á mörkuðum sem
svipar til PopUp-markaðanna hér.
Hún segir mikið hark í bransan-
um í Kaupmannahöfn enda séu
margir um hituna. „Ég og fjórar
aðrar stelpur rekum saman versl-
un þar sem við erum einnig með
vinnustofu. Það er mjög erfitt að
komast inn í bransann þarna úti
enda mikið af ódýrum og vinsæl-
um verslunum eins og H&M sem
er erfitt að toppa en sem betur fer
eru Danir hrifnir af hönnun,“ segir
hún og bætir við að hún hafi gam-
an af baráttunni. „Ég er allavega
ekkert á leiðinni heim í bráð enda
gift Dana en maður veit auðvitað
aldrei.“
Sandra er á Klakanum þessa
dagana og verður með á PopUp-
markaðnum sem haldinn verður í
Hafnarhúsinu um þarnæstu helgi.
Aðspurð segir hún að sér lítist vel
á sumartískuna. „Margir hönnuð-
ir eru að gera mjög flotta hluti. Í
sumar er um að gera að vera litrík-
ur og frjálslegur og þora að blanda
saman mismunandi flíkum.“
Hægt er að skoða hönnun
Söndru á vefnum okt.is.
Sandra Berndsen fatahönnuður selur hönnun sína í verslun sinni í Kaupmannahöfn:
Litadýrðin ræður ríkjum í sumar
UmsjóN: iNdíANA ásA hrEiNsdóttir, indiana@dv.is
Er barnið
öruggt í sum-
arlEyfinu?
n mundu að bera vel af sólarvörn á
barnið áður en þið farið út í sólina
og endurtaktu reglulega yfir daginn.
n derhúfa ver höfuð barns
fyrir sterkum geislum sólarinnar yfir
heitasta tíma dagsins.
n settu armkúta á lítil börn í
sundlauginni. mundu að börn þín
eru í sundi á þína ábyrgð.
n hafðu vatnsbrúsa ávallt meðferðis.
hiti getur farið illa í börn.
n sólgleraugu verja augu barnsins
frá geislum sólarinnar.
n Ungbörn ættu að vera í skugga í
miklum hita.
n Ekki leyfa barninu að leika sér
berfættu á tjaldsvæðinu.
n reyndu að halda í rútínuna þótt
um sumarleyfi sé að ræða því þá
gengur allt betur.
sumarlEgur
glamúr-
drykkur
n 60 ml vodka
n 15 ml ferskur sítrónusafi
n 15 ml ferskur lime-safi
n 15 ml sýróp eða 1 tsk. sykur
n dropi af Crème de cassis
Settu martiniglas á hvolf ofan á und-
irdisk fullum af Crème de cassis og
skelltu svo glasinu ofan á undirskál
fulla af sykri. Settu drykkjarblönd-
unni í hristara og bættu klaka út í.
Helltu varlega ofan í martiniglas-
ið án þess að skemma skreyting-
una. Ljúktu við kokteilinn með því
að hella einum dropa af Crème de
cassis í mitt glasið.
46 föstudagur 18. júní 2010
Litrík sandra í litríkum kjól úr
eigin sumarlínu.
Veldu sundföt
út frá vaxtarlagi
Sólríkir dagar og heitar laugar er tvenna sem hljómar vel. Það getur verið afskaplega
ljúft að láta líða úr sér í lauginni og leyfa geislum sólarinnar að leika um líkamann.
Til þess að geta notið þess er samt mikilvægt að manni líði vel í lauginni. Galdurinn
við að vera sjálfsöruggur í sundfötum felst í því að vanda valið á þeim og velja föt sem
henta líkamsvextinum. Þótt konurnar hér séu allar þvengmjóar vilja sumir draga
athyglina frá ákveðnum svæðum og að öðrum um leið.
stór
rass
Dökkir litir grenna og
sömuleiðis stórgerð
mynstur. Buxur sem ná
hátt upp í mittið henta
betur en þær sem liggja
lágt á afturendanum. Best
er að forðast buxur með
drengjasniði þar sem þær
geta haft þau áhrif að
rassinn virðist vera stærri
en hann er í raun.
LitLar
mjaðmir
Mjaðmirnar virðast breiðari ef bux-
urnar eru þverröndóttar. Léttir litir
og fíngerð mynstur henta líka vel.
Boxerbuxur geta hjálpað til
við að skapa ávalar línur og gefa
þér stundaglasavöxt. Bikiníbuxur
sem eru bundnar á hliðunum geta
einnig hjálpað til við að skapa lín-
ur. Skorin sundföt með götum við
mjaðmirnar skapa sömu áhrif.