Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Blaðsíða 16
16 föstudagur 18. júní 2010 úttekt „Hann elskaði Jinky mjög innilega sem dóttur sína,“ segir Marylin Yo- ung, meint barnsmóðir Bobbys Fis- cher, um samband dóttur sinnar og skákmeistarans. Hún fullyrðir í samtali við DV að Jinky sé líffræði- leg dóttir hans. Marilyn, fyrrverandi ástkona skákmannsins Bobbys Fischer, hef- ur höfðað barnsfaðernismál fyrir hönd dóttur sinnar, Jinky, þar sem hinn látni skáksnillingur sé fað- ir ungu stúlkunnar. Ein af kröfum mæðgnanna er sú að lífsýni úr Fis- cher verði borið saman við lífsýni úr Jinky sem tekið var á dögunum er þær komu í heimsókn hingað til lands í tengslum við málið. Þeirri beiðni hafnaði héraðsdómur en ákvörðuninni var skotið til Hæsta- réttar þar sem beðið er niðurstöðu. Þá hefur Marylin gert kröfu fyrir hönd dóttur sinnar í dánarbú skák- meistarans, sem metið er á nærri 300 milljónir króna, og sú krafa verður einnig borin undir dómstóla. „Ég elska þig“ Marylin leggur áherslu á að sam- band þeirra hafi staðið frá fyrstu kynnum og til dauðadags Fischers. Aðspurð segir hún þau hafa kynnst í klúbbi á Filippseyjum í ágúst árið 2000. „Við áttum í ástarsambandi frá því að við kynntumst fram að and- láti hans. Alla tíð vorum við í óvígðri sambúð þrátt fyrir að við hittumst sjaldnar en við vildum. Vegna stöðu hans og náms sem ég stund- aði bjuggum við fjarri hvort öðru en samband okkar hélt allan tímann. Við hittumst þó reglulega, í nokkr- ar vikur í senn, og þá oftast á Fil- ippseyjum en líka víðar, til dæmis í Hong Kong, Sviss og á Íslandi,“ segir Marylin. Hin meinta barnsmóðir skák- meistarans segir engan vafa á því að Fischer hafi litið á Jinky sem sína eigin dóttur. Hún segir hann hafa verið á leið til þeirra mæðgna þeg- ar hann var handtekinn með ógilt vegabréf á flugvelli í Japan. „Já, hann leit á Jinky sem líffræðilega dótt- ur sína og í hvert sinn sem við hitt- umst sá hann ekki sólina fyrir henni. Hann skrifaði undir öll póstkort sem hann sendi henni sem pabbi hennar og endaði öll símtöl þeirra á orðun- um: Ég elska þig,“ segir Marylin.   Mikill söknuður Marylin ítrekar að það sé deginum ljósara að dóttir hennar sé líffræði- leg dóttir skákmeistarans. Spurð út í sönnunargögn bendir hún á myndir og meðlagsgreiðslur en leggur jafn- framt áherslu á að DNA-sýni komi til með að sanna hið rétta. „Dótt- ir mín er líffræðileg dóttir hans Bobbys. Ég á innileg- ar fjölskyldumyndir af okkur og trúðu mér, Bobby var ekki þannig maður sem lætur taka af sér innilegar mynd- ir með nokkrum nema að hann beri til þeirra sannar tilfinningar. Hann sendi okkur með- lagsgreiðslur mánaðar- lega og heimsótti okkur reglulega. Þá leið ekki sá dagur sem Bobby hringdi ekki í okkur til að heyra í okkur hljóð- ið. Hann hringdi meira að segja í mig kvöld- ið áður en hann lést,“ segir Marylin. Sjálf seg- ist hún sakna Fischers mjög mikið. „Bobby var mjög misskilinn maður. „BoBBy elskaði dóttur sína innilega“ Marylin Young, ástkona Bobbys Fischer og meint barnsmóðir, vonast til þess að erfða- máli skáksnillingsins ljúki farsællega. Hún segir engan vafa á því að dóttir sín sé dótt- ir Fishcers og telur að lífsýni sanni hið rétta. Mæðgurnar horfa til þess að nýta arf til að flytja til Íslands og búa nærri gröf skákmeistarans. trausti haFsteinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Vonandi lýkur erfðamálinu fljótlega með réttlátum hætti svo að Bobby fái þann frið sem hann á skilið. n Jinky, sem er níu ára og sögð dóttir skákmeistarans Bobbys Fischer, fæddist 21. maí árið 2001 í borginni Baguio á Filippseyjum. Að sögn móður hennar hefur hún nýlokið grunnskólanámi með fyrstu einkunn. Sjálf segist hún hafa gaman af því að synda og tefla. „Bobby var pabbi minn og ég sakna hans mjög mikið. Ég hef beðið mömmu um að fá að búa á Íslandi því þar líður mér vel. Ég myndi vilja búa nálægt pabba,“ segir Jinky. klár stelpa n Bobby Fischer var bandarískur stór- meistari í skák sem síðar hlaut íslenskan ríkisborgararétt. Hans frægasta einvígi fór fram í Reykjavík þegar hann sigraði Boris Spasskíj árið 1972. Þremur árum síðar neitaði hann að verja titilinn. Fischer þótti ákaflega hæfileikaríkur skákmaður og mældist með afar háa greindarvísitölu. Hegðun hans var hins vegar óútreiknan- leg og átti hann til að gefa út misvinsælar yfirlýsingar um stjórnmál sem gjarnan einkenndust af gagnrýni á gyðinga og Bandaríkin. Eftir að Fischer tefldi í skákeinvígi í Júgó- slavíu árið 1992 varð hann eftirlýstur í Bandaríkjunum. Hann var síðar handtekinn í Japan eftir að vegabréf hann rann út en í janúar árið 2005 óskaði hann formlega eftir íslenskum ríkisborgararétti. Tveimur mánuðum síðar fékk hann þann rétt, var leystur úr haldi og flaug rakleiðis til Íslands. Í Reykjavík bjó hann síðan til æviloka en hann lést af völdum nýrnabilunar. Hann lést 17. janúar 2008, 65 ára að aldri. BráÐgáfaÐur Og uMdeIldur roBert JaMes Fischer F. 9. mars 1943 D. 17. janúar 2008 framhald á næstu sÍÐu „Ég sá það með eigin augum hversu heitt Bobby elskaði Mar- ilyn og hversu innilega hann hélt á Jinky litlu í örmum sínum. Þá sá ég hana taka utan um hann og kyssa,“ segir Juliet Felonia, barn- fóstra hinnar meintu dóttur skák- meistarans Bobbys Fischer, Jinky Young. Felonia er frænka þeirra Mari- lyn og Jinky Young og var hún við- stödd fæðingu stúlkunnar í maí árið 2001. Hún segir að Fischer hafi komið til þeirra skömmu eftir fæðinguna og í kjölfarið hafi hún starfað sem barnfóstra á heimil- inu. Felonia ferðaðist með þeim mæðgum er þær fóru til Hong Kong árið 2004 til að hitta Fischer. Eftir þá samveru flaug hann til Jap- ans þar sem hann var síðan hand- tekinn á flugvellinum og færður í fangelsi. „Við vorum þarna saman í tvær vikur og heimsóttum helstu ferðamannastaðina. Síðar fór ég líka með þeim til að heimsækja Bobby í Reykjavík árið 2005 og þá gistum við heima hjá honum í tvær vikur. Á hverjum einasta degi lék hann sér við stúlkuna litlu og það var augljóst að þau nutu sam- vistanna,“ segir Felonia. „Bobby hringdi daglega þegar þau voru ekki saman. Það veit ég því ég starfaði á heimilinu og svar- aði iðulega í símann. Þá bað hann mig alltaf að kaupa ekki sælgæti fyrir Jinky heldur gefa henni frek- ar nóg af grænmeti og ávöxtum. Ég hef ekki séð hamingjusamari fjölskyldu en þau þrjú saman.“ trausti@dv.is BARnFóSTRA JinkY Young HoRFði upp á HAmingJuSAmA FJölSkyldu: BOBBy fIscher elskaÐI MarylIn Og JInky lItlu „Við erum enn sannfærð um að hin meinta ekkja sé ekki löggilt eiginkona Fischers. Henni hefur ekki gengið vel að sýna fram á löggilt hjónaband fyrir rétti. Mínir menn telja því augljósan ágreining um það hver sé réttur erfingi og því eigi opinber skipti að fara fram,“ segir Guðjón Ólafur Jónsson, lögmaður systur- sona skákmeistarans Bobbys Fischer heitins. Meint ekkja skákmeist- arans og Íslend- ingsins Bobbys Fischer, Jap- aninn Miy- oko Watai, fór fram á að sitja ein að dánarbúi hans. Skjól- stæðingar Guðjóns Ólafs, systur- synir Fischers, fara hins vegar fram á að opinber skipti fari fram á dán- arbúi skáksnillingsins, sem þýðir að skiptastjóri væri settur yfir búið. Þá hvílir sönnunarbyrði hjá meintum aðstandend- um Fischers sem þurfa að sýna fram á rétt sinn til arfs. Dómstólar úrskurðuðu að dánarbúið yrði tekið til opinberra skipta og að ekki væri fullsannað að Fischer og Watai hefðu gengið í hjónaband. Deilt er um hundruð millj- óna sem liggja í dánarbúi Fischers þar sem verðmæt- ar fasteignir er að finna. trausti@dv.is lögmAðuR SySTuRSonA BoBBYs Fischer BERST FyRiR ARFi SkákmEiSTARAnS: efast uM ekkJu Og dóttur Bíður spenntur guðjón ólafur bíður ásamt skjól- stæðingum sínum spenntur eftir niðurstöðu um erfðamál Bobbys Fischer. Bobby Fischer „Bobby hringdi daglega þegar þau voru ekki saman,“ segir barnfóstra Jinky young. gaman saman Aðstandendur marilyn og Jinky segja þær og Fischer hafa verið ákaflega hamingjusama fjölskyldu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.