Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Blaðsíða 23
fréttir 18. júní 2010 föstudagur 23
„Hér er ekkert einræði“
legu sviði síðastliðin þrjú ár auk
þess sem samvinna er með lönd-
unum hvað leyniþjónustur þeirra
varðar. Því þarf engan að undra að
Chavez hafi brugðist reiður við síð-
ustu höftum sem sett voru á Íran af
Sameinuðu þjóðunum.
„Venesúela er frjálst ríki og við
verðum ekki kúgaðir af neinum.
[...] Við munum ekki láta segja okk-
ur fyrir verkum hvað varðar Íran,
við munum ekki taka því að verða
nýlenda einhvers,“ sagði Chavez.
Hugo Chavez vísaði alfarið á
bug fullyrðingum um að Venesúela
sæi stjórnvöldum í Íran fyrir úrani.
n Í viðtalinu fullyrti Hugo Chavez að fjölmiðlar Venesúela væru „100 sinnum
frjálsari en í Bandaríkjunum“ og brást hinn versti við þegar hann var spurður
um nýlega lokun RCTV, einkarekinnar sjónvarpsstöðvar, að því er virtist vegna
tregðu á þeim bæ við að útvarpa ræðum forsetans.
„Enn ein lygin hjá þér,“ sagði Chavez við spyrilinn, Stephen Sackur. „Þú ert mikill
lygasafnari. Hvaðan færðu þessar lygar? Heyrðu, ertu fullgildur blaðamaður?“
Slagur Chavezar við andstöðuöfl í Venesúela komst í hámæli í síðustu viku
þegar gefin var út handtökuskipun á Guillermo Zuloaga, aðaleiganda og
framkvæmdastjóra Globovisión-sjónvarpsstöðvarinnar, sem þekkt er fyrir
gagnrýna afstöðu gagnvart Chavez. Globovisión mun vera síðasta sjónvarps-
stöð Venesúela sem býður Chavez birginn.
Zuloaga brá á það ráð að flýja land og sakaði forsetann um „ógnarstjórn“. Í
viðtali við breska dagblaðið The Guardian sagði Zuloaga að ríkisstjórn landsins
reyndi út á við að sýnast lýðræðisleg en það reyndist erfiðara með hverjum
deginum.
Ákærurnar á hendur Zuloaga eru vegna meints okurs og meinsæris í tengslum
við bílasölu sem hann á í félagi við son sinn, sem einnig var ákærður. Zuloaga
fullyrti að ákæruatriðin væru upplogin og að Chavez hafi með beinum hætti
fyrirskipað handtökuna.
Hugo Chavez vísaði fullyrðingum Zuloaga til föðurhúsanna og sagði að
dómstólarnir væru eingöngu að sinna starfi sínu. Chavez kvartaði þó yfir því að
Zuloaga væri enn frjáls maður þrátt fyrir að hafa viðhaft harðorð ummæli um
hann.
frelsi fjölmiðla
Hugo Chavez í ham Chavez hyggst ganga
lengra í jafnaðarstefnu sinni.
Stórhöfða 25 • simi 569 3100
Opið virka daga frá kl. 9 -18
Nálastungudýnan
• Eykur orkuflæði og vellíðan
• Er slakandi og bætir svefn
• Notkun 10-20 mínútur í senn
Heilsusamlegar
vörur
Verð 9.750 kr.
Bakteygjubrettið
• Eykur sveigjanleika
• Linar bakverki
Verð 7.950 kr.
Stuðningshlífar
• Einstök hönnun og gæði
• Bak, úlnliðs, ökkla- og hnéhlífar
www.eirberg.is
Hælsærisplásturinn
• Verndar fætur og hindrar
blöðrumyndun
• Vatnsheldur
– vörn gegn bakteríum
• Dregur úr óþægindum
og sársauka
Fæst í
apótekum
Airfree lofthreinsitækið
• Betra loft - betri líðan!
• Eyðir örverum og ryki
Verð frá 33.950 kr.