Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Blaðsíða 51
18. júní 2010 föstudagur 51
Ingó og Dóra
kynþokkafyllst á vellinum
Dóra María Lárusdóttir – Val
„Dóra hefur lengi verið meðal fallegustu leikmanna Pepsi-deildar kvenna. Aðsóknin á Hlíðarenda
stórjókst þegar þessi byrjaði að sprikla.“
„Stelpa sem þú vilt fara með beint heim og kynna fyrir foreldrum þínum.“
„Sönn íslensk fegurð.“
„Kynþokkafull, fallegt bros. Alger sjarmör.“
„Vill ekki að sér sé hampað í sviðsljósi fjölmiðla, sýnir hæfileika sína frekar inni á vellinum. Svakalega
falleg og flott og ber af sér mjög góðan þokka. Ef hún myndi „skvísa“ sig upp myndu margir karlmenn
missa andann. En hún er hins vegar alveg jafnfalleg ómáluð og sveitt, nýkomin af vellinum eftir
hörkuleik. Bara falleg stelpa.“
„Sæt, sexí og góðleg og frábær knattspyrnukona. Fullkomin blanda.“
„Ber af. Það hreinlega lekur af henni kynþokkinn og ef við notum íþróttamálið er verið að tala um fullt
hús stiga.“
Sara Björk Gunnarsdóttir – Breiðablik
„Vakti fyrst athygli mína þegar henni var kippt inn í landsliðið sem ungri stelpu fyrir ofboðslega
mikilvægan landsleik. Þar kom hún, sá og sigraði enda fallegur baráttujaxl á miðsvæðinu.“
„Lítil krúsídúlla með x-factor.“
„Svakaskutla með dökkt yfirbragð og lítur út fyrir að vera frá Mið-Ameríku.“
„Svakalega tönuð og má alveg fara að slaka þar á. En heilt yfir gífurlega falleg og er engin pempía.“
„Kann vel við boltann.“
„Gríðarlega flott stelpa með einstaklega fallegt bros, nánast fullt hús stiga.“
Embla Grétarsdóttir – Val
„Andlitsfríð með eindæmum.“
„Fulltrúi landsbyggðarinnar. Er frá Höfn, bæði myndarleg og hraustleg.“
„Drottning kvennaboltans og hefur verið það um margra ára skeið. Hávaxin, kynþokkafull og algjör-
lega stórkostleg í alla staði.“
„Stórglæsileg kona, frjáls í fasi og þokkafull.“
Greta Mjöll Samúelsdóttir – Breiðabliki
„Ótrúlega hæfileikarík og kynþokkafull knattspyrnukona. Í hvert skipti sem ég sé hana verð ég aftur
aðdáandi íslenska kvennalandsliðsins, því miður hefur hún verið meidd lengi en ég held samt alltaf
meira með þeim þegar ég er nýbúinn að sjá hana. Ætli ég hefði ekki bara farið á Evrópumótið á síðasta
ári hefði hún verið að spila. Ekki nóg með að útlitið sé stórkostlegt heldur virðist hún vera gerð úr gulli
af viðtölum við hana að dæma.“
„Falleg stelpa úr Kópavoginum. Hefur verið í fremstu röð í áraraðir. Náttúrulega falleg.“
Hólmfríður Magnúsdóttir – Philadelphia Independance
„Hefur eitthvað villt og ótamið við sig. Hörkunagli inni á vellinum og gefur aldrei eftir og gefst aldrei
upp. Mikilvægasti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins. Hún er sæt stelpa sem hefur ákveðið „look“
sem karlmenn fíla – hún er óþekka stelpan og langflottust ómáluð í stuttermabol og í þröngum
gallabuxum. Æðislega flott inni á vellinum líka – sexí.“
Edda Garðarsdóttir – Örebro
„Eitthvað segir mér að einhver lesbíubaninn gæti átt helvíti gott kvöld fái Edda og Ólína sér vel í glas
og vanti allt í einu álegg á samlokuna.“
Ólína Viðarsdóttir - Örebro
„Flottir leggir og alveg ótrúlega flott (þótt hún sé hinsegin).“
Margrét Lára Viðarsdóttir - Kristianstads
„Hefur alveg sérstakt karisma.“
Álitsgjafar:
SigfúS SigurðSSon handboltastjarna
VéSteinn gauti HaukSSon markaðsstjóri
YngVi eYSteinSSon útvarpsmaður
HanneS Þór HalldórSSon knattspyrnumaður
MattHíaS VilHjálMSSon knattspyrnumaður
andréS Pétur rúnarSSon fasteignasali
tóMaS Þór ÞórðarSon íþróttafréttamaður
BaldVin StefánSSon kokkur
SVanur Már SnorraSon blaðamaður
konurnar