Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Qupperneq 4
Sjóðheit Þorgerður
n Sjálfstæðismenn hafa af því mikl-
ar og rökréttar áhyggjur að klofn-
ingur blasi við í
framhaldi af því
að Evrópusinn-
ar voru reknir út
á gaddinn með
landsfundar-
samþykkt um
að aðildarvið-
ræðum við ESB
skyldi þegar í
stað hætt. Á fundi Evrópusinna inn-
an flokksins mátti sjá þingkonurnar
Ragnheiði Ríkharðsdóttur og Þor-
gerði Katrínu Gunnarsdóttur þung-
búnar vegna stöðunnar. Ekki er tal-
ið ólíklegt að báðar muni þær ganga
til liðs við nýtt, frjálslynt stjórn-
málaafl ef til kemur. Ragnheiður
þykir vera ólíkindatól og til alls vís.
Þorgerður Katrín hefur aftur á móti
engu að tapa innan Sjálfstæðis-
flokksins þar sem frami hennar er
á enda. Hermt er að hún sé sjóðheit
fyrir því að komast í oddvitastöðu
hjá nýju hægraafli.
ÞorSteinn beStur
n Besti kosturinn sem oddviti nýs
hægriflokks er af mörgum talinn vera
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi for-
maður Sjálfstæð-
isflokksins, sem
er sannfærður
Evrópusinni.
Þorsteinn var á
fundi Evrópu-
sinna fyrr í vik-
unni en gaf það
út að hann teldi
ólíklegt að flokk-
urinn myndi klofna vegna málsins.
Þeir sem til þekkja telja að sú skoðun
hans ráðist af því að hann vilji ekki
leggja undir að vera þekktur fyrir
að hafa stýrt Sjálfstæðisflokknum
án brotlendingar. Þetta kann þó að
breytast ef nýr flokkur verður stofn-
aður. Þá kann svo að fara að fremstir
í fylkingu standi þeir fornu fjendur
Davíð Oddsson og Þorsteinn. En talið
er að Davíð hafi ráðið því að harðlínu-
stefnan gegn ESB varð ofan á.
tækifæri guðlaugS
n Guðlaugur Þór Þórðarson alþing-
ismaður liggur lágt í umræðunni eftir
að séra Halldór Gunnarsson í Holti
bannfærði hann
á landsfundin-
um og heimtaði
afsögn hans og
Gísla Marteins
Baldurssonar
borgarfulltrúa.
Guðlaugur stend-
ur nú vinafár á
pólitískum kross-
götum. Innan þingliðs Sjálfstæðis-
flokksins er hann einfari eftir
að samherjar hans eru horfnir á
braut. Örlög hans eru í raun þau sömu
og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdótt-
ur sem er valdalaus í flokknum en laf-
ir inni. Hvorugt getur vænst þess að fá
ráðherrastól að nýju. Guðlaugur Þór
kann því að eiga tækifæri til pólitískr-
ar upprisu með því að ganga Evrópu-
sinnum formlega á hönd.
lýðSkrum
n Innan Samfylkingar er uppi
krafa um að Gylfi Magnússon við-
skiptaráðherra verði látinn fjúka
hið fyrsta. Gylfi
komst til áhrifa
eftir að hafa
flutt magnaða
ræðu á borgara-
fundi á Austur-
velli sem mót-
mælandi. Þetta
fleytti honum á
ráðherrastól. En
nú þykir hann sýna að lýðskrum-
ið var honum efst í huga á Aust-
urvelli. Gylfi er kominn í þá stöðu
að vera einn helsti varðhund-
ur illræmdra fjármálafyrirtækja
sem hafa tapað máli sínu fyrir
Hæstarétti. Þykir samfylkingar-
mönnum afleitt að bera ábyrgð
á ráðherra sem ekki vill fara eftir
dómi Hæstaréttar. Það hefur því
hitnað mjög undir ráðherrastóli
hans og gæti dregið til tíðinda
fyrr en varir.
sandkorn
4 fréttir 2. júlí 2010 föstudagur
„Þau eru búin að stefna mér aftur, í
fjórða sinn,“ segir söngvarinn Herbert
Guðmundsson en húseignafélagið að
Prestbakka 11 til 21 hefur stefnt Her-
berti og fyrrverandi eiginkonu hans
Svölu Guðbjörgu Jóhannesdóttur
vegna viðgerða á þaki raðhúsalengju.
Aðspurður hvað málið snýst um seg-
ist Herbert ekki vita það því hann sé
hættur að hugsa um þetta mál.
„Ég er hættur að pæla í þessu og
held áfram að lifa mínu lífi. Ég hef
allt öðrum hnöppum að hneppa en
að pæla í svona geðveiki. Lífið er dýr-
mætara en það. Ég er bara í ræktinni
núna,“ segir Herbert. Ásamt því að
vera í ræktinni segir Herbert að von
sé á nýrri plötu frá honum sem hann
vinnur með syni sínum. „Um leið og
HM klárast þá fer nýtt lag frá mér í út-
varpsspilun sem nefnist Time,“ seg-
ir Herbert og ef lagið er eitthvað í lík-
ingu við það sem áður hefur komið frá
honum eiga útvarpshlustendur von á
góðu.
Í júní í fyrra sneri Hæstiréttur
Íslands dómi Héraðsdóms Reykja-
víkur um að Herbert ætti að greiða
húseignafélaginu að Prestbakka 11
til 21 3,9 milljónir króna. Húseigna-
félaginu var í staðinn gert að greiða
Herberti og Svölu 1,2 milljónir króna
vegna málskostnaðar í héraði og fyrir
Hæstarétti.
Herbert segist þurfa að heyra í
lögmanni sínum um málið til að vita
út á hvað það gengur. „Ég er hættur
að lifa í þessu þetta er svo mikill fá-
ránleiki,“ segir Herbert.
Lögmaður Herberts segir í sam-
tali við DV að krafist hafi verið frá-
vísunar á kröfu húseignafélagsins því
málið sé vanreifað en ekki hafi ver-
ið fallist á þá frávísunarkröfu og fer
málið aftur í gang í haust.
birgir@dv.is
Herberti Guðmundssyni stefnt í fjórða sinn vegna þakviðgerða:
„Ég er hættur að pæla í þessu“
Stefnt í fjórða sinn
Herbert Guðmundsson
segist ekki ætla að
eyða lífinu í að hugsa
um leiðindin sem
fylgja deilumálum við
húseignafélagið.
Ragnar Sær Ragnarsson framkvæmdastjóri fékk hlutabréfakaup sín í Glitni banka
hf. felld niður í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ragnar keypti bréfin 2. október árið 2008,
þremur dögum eftir þjóðnýtingu bankans, en ekki kom til uppgjörs á bréfunum fyrr
en 7. október. Þá voru bréfin verðlaus og dæmd ónýt vara í Héraðsdómi Reykjavíkur.
ÞARF EKKI AÐ BORGA
ÓNÝT GLITNISBRÉF
„Ég er ánægður með að dómurinn
féll mín megin,“ segir Ragnar Sær
Ragnarsson, framkvæmdastjóri og
fyrrverandi formaður leikskólaráðs
Reykjavíkur, sem fékk hlutabréfa-
kaup sín í Glitni banka hf. felld niður
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Ragn-
ar keypti bréfin 2. október árið 2008,
þremur dögum eftir að Glitnir var
þjóðnýttur, fyrir tæpar tvær milljón-
ir króna en ekki kom til uppgjörs á
bréfunum fyrr en 7. október.
Þá voru þau orðin verðlaus eft-
ir að Fjármáleftirlitið hafði tekið yfir
vald hlutahafafundar Glitnis, vikið
félagsstjórn bankans og skipað skila-
nefnd. Glitnir krafðist þess fyrir dómi
að Ragnar ætti að greiða fyrir bréfin
en dómurinn félltst ekki á sjónarmið
bankans.
Ragnar átti að fá bréfin afhent
daginn eftir að viðskiptin fóru fram
en fékk þau ekki afhent á vörslureikn-
ing sinn fyrr en 7. október. Bank-
inn hélt því þó fram að Ragnar hefði
fengið bréfin lögð inn á reikning sinn
fyrir 7. október en dómnum sagði
bankann ekki hafa geta fært nægj-
anlegar sannanir fyrir því. Ragnar
var sýknaður af öllum kröfum Glitn-
is Banka og bankinn dæmdur til að
greiða honum fjögurhundruð þús-
und krónur vegna málskostnaðar.
Aldrei gerst áður
Að sögn Sigrúnar Helgu Jóhanns-
dóttur, lögmanns Ragnars Sæs, þá er
niðurstaðan í málinu í raun byggð á
því að ef vara, hvort sem er bíll eða
hlutabréf, skemmist áður en seljand-
inn nær að afhenda kaupandanum
þá liggur áhættan hjá seljandnum.
„Það hefur aldrei gerst áður vegna
hlutabréfakaupa,“ segir Sigrún.
Ragnar Sær hefur verið virkur í
starfi borgarstjórnarflokks Sjálfstæð-
isflokksins og var sem fyrr segir for-
maður leikskólaráðs Reykjavíkur.
Þá sótti Ragnar nýlega um störf sem
bæjarstjóri í Fljótsdalshéraði og Ísa-
fjarðarbæ.
Dagsetning hlutabréfakaupa
Ragnars Sæs vekur athygli en hann
keypti bréfin þremur dögum eftir
að Glitnir var þjóðnýttur. Aðspurður
hvers vegna hann hafi keypt bréfin
eftir að bankinn var þjóðnýttur seg-
ist Ragnar ekki vilja tjá sig um það og
vísar á lögmann sinn Sigrúnu Helgu.
„Það var náttúrulega stór hópur fólks
sem mat það svo að það sem að
bankinn var orðinn 75 prósent í rík-
iseign þá var þetta orðin traust fjár-
festing,“ segir Sigrún Helga.
Hún segir fjölda fólks hafa ákveð-
ið að fjárfesta í bankanum eftir að
hann var þjóðnýttur. Það hafi þeir
gert í þeirri trú um að stöðugleiki
hans væri tryggður. „Ég veit ekki um
nein tiltekin mál þar sem menn voru
ekki búnir að greiða líkt og Ragnar en
stór hópur var búinn að greiða fyrir
sín viðskipti,“ segir Sigrún. Hún segir
að hópur fjárfesta ætli fara fara í mál
við ríkið vegna sambærilegra við-
skipta.
Forsendur brostnar
Í dómnum segir að ekki hafi verið
ágreiningur um að kauptilboð eða
pöntun Ragnars Sæs var samþykkt
af hálfu bankans, sem tók að sér að
afhenda honum hin pöntuðu verð-
mæti á tilteknum degi, það er 2. okt-
óber 2008, gegn greiðslu fimm dög-
um síðar. „Stefnandi stóð hins vegar
ekki við það að afhenda hin pöntuðu
verðmæti á tilsettum tíma, en eins og
að framan er rakið, er ósannað, að
stefndi hafi fengið umrædd hluta-
bréf á sinn vörslureikning fyrr en 7.
október 2008. Þann dag voru bréfin
hins vegar orðin algerlega verðlaus
og voru ekki lengur skráð í Kaup-
höllinni og engin viðskipti með þau
þar, enda verðgildi þeirra 0 krónur.
Á þeim tímapunkti höfðu bréfin því
ekki lengur þá eiginleika, sem stefndi
mátti ætla að þau hefðu, það er að
vera hæf til viðskipta,“ segir í dómn-
um.
„Af þeim sökum, að stefnandi
stóð ekki við að afhenda bréfin á
umsömdum tíma og enn fremur þar
sem afhending umsaminna verð-
mæta var stefnda í raun ómöguleg
síðar, þar sem engin verðmæti voru
fyrir hendi, þegar yfirfærsla bréf-
anna á vörslureikning stefnda fór
fram, mátti stefnanda vera ljóst, að
allar forsendur stefnda fyrir kaup-
um hlutabréfa í Glitni banka voru
brostnar.“
BiRGiR OlGeiRSSOn
blaðamaður skrifar: birgir@dv.is
Það hefur aldrei gerst áður vegna
hlutabréfakaupa.
Ragnar Sær Ragnarsson
Fékk hlutabréfakaup sín í
Glitni banka hf. felld niður í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
MynD FRéttABlAðið