Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Blaðsíða 38
70 ára á föstudag
38 ÆttfrÆði umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 2. júlí 2010 föstudagur
Kristín Laufey Ingólfsdóttir
húsmóðir í reykjavík
Kristín Laufey fæddist í Stykkis-
hólmi en ólst upp í Reykjavík. Hún
var í Miðbæjarskólanum og stund-
aði nám við húsmæðraskóla í
Kaupmannahöfn veturinn 1930-31.
Kristín Laufey starfaði m.a. við
saltfisksbreiðslu áður en hún gifti
sig en þó lengst af hjá Ársæli Árna-
syni, bókbindara og bókaútgefanda
í Reykjavík. Hún var síðan búsett
með manni sínum í Færeyjum á
árunum 1933-45 og var síðan hús-
móðir á fjölmennu heimili þeirra í
Vesturbænum í Reykjavík.
Kristín Laufey vann mikið að
málefnum andlega fatlaðra hér
á landi, var einn af stofnendum
Styrktarfélags vangefinna og einn
helsti hvatamaður að stofnun
Bjarkaráss á sínum tíma.
Fjölskylda
Kristín Laufey giftist 1932 Marg-
eiri S. Sigurjónssyni, f. 22.11. 1907,
d. 1.11. 1987, forstjóra G. Helgason
og Melsted og síðar forstjóra Stein-
varar hf. í Reykjavík frá 1960. For-
eldrar Margeirs voru Sigurjón Jó-
hannsson, söðlasmiður og bólstrari
í Hafnarfirði, og k.h., Margrét Þor-
leifsdóttir húsmóðir.
Börn Kristínar og Margeirs eru
Margrét, f. 22.5. 1933, fyrrv. full-
trúi í Reykjavík, ekkja eftir Gissur
Jóel Gissurarson skrifstofumann
en börn þeirra eru Ívar, útgefandi
í Reykjavík, Margeir matvælafræð-
ingur, Snorri viðskiptafræðingur,
Laufey þroskaþjálfi, Lilja þroska-
þjálfi, og Ingólfur matvælafræðing-
ur; Lilja, f. 5.5. 1936, búsett að Bergi
í Reykholtsdal, ekkja eftir Flosa Ól-
afsson, leikara og rithöfund en son-
ur þeirra er Ólafur, hljóðfæraleikari
og tónlistarkennari; Guðjón Sigur-
geir, f. 6.3. 1942, forstjóri, búsettur
á Seltjarnarnesi, kvæntur Margréti
Jónsdóttur snyrtifræðingi en börn
þeirra eru Ragnheiður snyrtifræð-
ingur, Þorsteinn, viðskiptafræðing-
ur og framkvæmdastjóri, Kristín
Laufey, viðskiptafræðingur í Lond-
on, Árni verkfræðingur í Noregi,
og Daði hagfræðingur; Ingólfur,
f. 4.5. 1948, sagnfræðingur og rit-
höfundur í Reykjavík, kvæntur Jó-
hönnu Jónasdóttur lækni og er son-
ur þeirra Jónas Margeir laganemi
en börn Ingólfs og fyrri konu hans
eru Lilja, kvikmyndamaður í Nor-
egi, og Daníel læknanemi; Sigur-
jón, f. 8.3. 1953, d. 4.9. 1953; Óskar
Helgi, f. 11.6. 1954, starfsmaður við
Ás en kona hans er Jóhanna Magn-
úsdóttir.
Systkini Kristínar Laufeyjar:
Oddfríður Ingibjörg, f. 25.6. 1908,
d. 23.3. 1995, húsmóðir í Reykja-
vík og um skeið á Sauðárkróki; Elín
Fanney, f. 15.9. 1912, d. 20.1. 2000,
húsmóðir í Reykjavík; Örn, f. 21.3.
1917, d. 3.11. 1922; Hrefna Sólveig,
f. 19.9. 1921, d. 17.11. 1946; Erna,
f. 9.5. 1924, nú látin, lengst af hús-
móðir á Long Island í Bandaríkjun-
um; Dóra María, f. 20.10. 1926, hús-
móðir í Reykjavík.
Foreldrar Kristínar Laufeyj-
ar voru Ingólfur Daðason, f. 22.12.
1886, d. 24.6. 1947, verkamaður og
verkstjóri í Reykjavík, og k.h., Lilja
Halldórsdóttir, f. 7.6. 1881, d. 6.11.
1956, húsmóðir.
Ætt
Ingólfur var bróðir Guðmundar, b.
á Ósi á Skógarströnd en hann varð
hundrað og fimm ára, og bróð-
ir Ingibjargar, húsmóður í Stykk-
ishólmi en hún varð hundrað og
þriggja ára, auk þess sem maður
hennar, Sigurður hreppstjóri varð
hundrað og fjögurra ára. Ingólfur
var sonur Daða, b. á Setbergi, bróð-
ur Kristjáns, afa Sigfúsar Daðason-
ar skálds. Daði var sonur Daníels, b.
í Litla-Langadal, bróður Þorbjarg-
ar, langömmu Guðbergs, föður
Þóris rithöfundar. Daníel var son-
ur Sigurðar, b. í Litla-Langadal á
Skógarströnd Sigurðssonar, skálds
og hreppstjóra þar Daðasonar, b.
á Leiti á Skógarströnd Hannes-
sonar. Móðir Sigurðar Sigurðsson-
ar var Þorbjörg Sigurðardóttir, b. á
Setbergi Vigfússonar. Bróðir Þor-
bjargar var Sigurður stúdent, lang-
afi Elíasar, afa Elíasar Snælands
Jónssonar, rithöfundar og fyrrv. rit-
stjóra. Sigurður var einnig langafi
Steinunnar, ömmu Þorsteins Jóns-
sonar ættfræðings. Móðir Daníels
var Ingibjörg Daðadóttir, systir Sig-
urðar skálds.
Móðir Ingólfs var María, en hún
varð hundrað og sex ára. María
var systir skáldkvennanna Her-
dísar og Ólínu. María var dótt-
ir Andrésar, formanns í Skáleyj-
um Andréssonar, frá Hellissandi
Björnssonar. Móðir Andrésar for-
manns var Guðrún Einarsdóttir,
systir Þóru, móður Matthíasar Jo-
chumssonar skálds, og systir séra
Guðmundar á Kvennabrekku þar
sem María ólst upp, föður Theod-
óru Thoroddsen skáldkonu, ömmu
Dags Sigurðarsonar skálds. Önnur
dóttir Guðmundar og uppeldissyst-
ir Maríu var Ásthildur, kona Péturs
Jens Thorsteinssonar, kaupmanns
og útgerðarmanns á Bíldudal, móð-
ir Muggs og Katrínar Thorsteinsson
Briem, móður Péturs sendiherra.
Móðir Maríu var Sesselja Jónsdótt-
ir frá Djúpadal, systir Sigríðar, móð-
ur Björns Jónssonar, ráðherra og
ritstjóra, föður Sveins Björnssonar
forseta, og Ólafs, stofnanda og rit-
stjóra Morgunblaðsins.
Lilja var dóttir Halldórs, b. í Mið-
hrauni í Miklaholtshreppi, bróð-
ur Kristjáns, föður Stefáns, föð-
ur Alexanders alþm. og Guðbjarts,
föður Gunnars, fyrrv. formanns
Stéttarsambands bænda. Halldór
var sonur Guðmundar, b. í Mið-
hrauni í Miklaholtshreppi, bróður
Guðnýjar, langömmu Theodóru,
ömmu Helga Ólafssonar stórmeist-
ara. Systir Guðmundar var Elín,
langamma Helgu, móður Svavars
Gests og ömmu Vilborgar Harðar-
dóttur blaðamanns, móður Marð-
ar Árnasonar, fyrrv. alþm. Þá var
Elín langamma Þórðar Kárasonar
fræðimanns. Bróðir Guðmundar
var Jóhannes, langafi Guðmundar
J. verkalýðsleiðtoga. Guðmundur
var sonur Þórðar, ættföður Hjarðar-
fellsættar Jónssonar.
Móðir Lilju var Elín Bárðar-
dóttur, b. á Flesjustöðum í Kol-
beinsstaðahreppi Sigurðssonar
og Solveigar, systur Ragnheiðar,
ömmu Jóhanns Gunnars Sigurðs-
sonar skálds og Guðríðar, lang-
ömmu Björgvins, föður Ellerts B.
Schram, fyrrv. ritstjóra DV, forseta
ÍSÍ og alþm. Solveig var dóttir Árna,
b. á Borg Jónssonar og Guðríðar
Kársdóttur b. í Munaðarnesi Ólafs-
sonar, bróður Vigdísar, langömmu
Þorbjargar, móður Ólafs Thors for-
sætisráðherra.
Kristín Laufey mun taka á móti
vinum og ættingjum í Akoges-saln-
um, Lágmúla 4, á 3. hæð (sami inn-
gangur og Úrval Útsýn), föstudag-
inn 2.7. kl. 16.00-19.00.
100 ára á föstudag
Anna fæddist í Reykjavík 2 júlí
1940. Hún stundaði nám við
Kvennaskólann í Reykjavík 1953-
57.
Anna starfaði við verslunar-
störf hjá Bókabúð Máls og menn-
ingar frá 1957. Hún var fram-
kvæmdastjóri Bókaverslunar
Snæbjarnar Jónssonar 1986-89,
sem þá var í eigu Máls og menn-
ingar, deildarstjóri og síðan versl-
unarstjóri í Bókabúð Máls og
menningar, Laugavegi 18, en
starfar nú í Safnbúð Þjóðminja-
safnsins.
Anna hefur setið i stjórn Máls
og menningar frá 1974, sat í stjórn
og varastjórn Kínverska menning-
arfélagsins, hefur gegnt nefnd-
arstörfum á vegum Norræna fé-
lagsins, verið námskeiðsstjóri á
íslenskunámskeiðum fyrir Norð-
urkollubúa, sat í stjórn Félags
Framnesfara 1980-82, var þar
formaður 1982-84, í stjórn Ís-
lensk-sænska félagsins 1984-90, í
varastjórn og aðalstjórn Reykja-
víkurdeildar Norræna félagsins,
í stjórn og fulltrúaráði Listasafns
Sigurjóns Ólafssonar frá 1990, í
stjórn Bok og Bibliotek i Gauta-
borg frá 1990-96, varamaður í
stjórn Norræna hússins 1991-93,
og í stjórn Sænsk-íslenska sam-
vinnusjóðsins 2003 -2009.
Anna hlaut heiðursverðlaun
Norræna félagsins, Peruna, í
mars 2010, en það var í fyrsta sinn
sem Peran var veitt. Hún verður
veitt árlega á degi Norðurlanda,
23. mars, einstaklingi sem hefur
af hugsjón og óeigingirni unnið
að því að styrkja tengsl norrænna
þjóða. Anna var sæmd riddara-
krossi Hvítu rósar Finnlands 1989,
sænsku Norðurstjörnunni 1995 og
riddarakrossi og íslensku fálka-
orðunni 1998 fyrir störf að félags-
og menningarmálum.
Fjölskylda
Eiginmaður Önnu var Halldór
Jónsson, f. 8.2. 1932, ökukenn-
ari frá Ísafirði. Þau skildu. Hann
var sonur Jóns Valdimarssonar, f.
10.7.1900, d. 31.5. 1988, vélsmiðs,
og Sigríðar Ásgeirsdóttur, f. 7.9.
1903, d. 14.5. 1981, gullsmiðs.
Börn Önnu og Halldórs: Einar
Halldórsson, f. 7.5. 1957, verktaki
á Ísafirði; Jón Sigurður Halldórs-
son, f. 27.7. 1958, d. 17.4. 1991,
framkvæmdastjóri í Reykjavík,
en sambýliskona hans var Lou-
ise Dahl; Gunnar Þorsteinn Hall-
dórsson, f. 9.4. 1960, sendikennari
í íslensku við Sorbonne-háskóla í
París, var kvæntur Eddu Péturs-
dóttur; Fríður María Halldórs-
dóttir, f. 15.12. 1963, íþróttakenn-
ari við MR í Reykjavik, en maður
hennar er Þórður Ingi Marelsson
framkvæmdastjóri.
Foreldrar Önnu voru Ein-
ar Andrésson, f. 30.5. 1904, d.
13.4. 1975, umboðsmaður Máls
og menningar, og Jófríður Guð-
mundsdóttir, f. 19.8. 1902, d.
4.7.1980, húsmóðir.
Ætt
Einar var bróðir Kristins E. Andr-
éssonar mag.art. og framkvæmda-
stjóra Heimskringlu og Máls og
menningar, og bróðir Kristjáns
(samfeðra) framkvæmdastjóra og
bæjarfulltrúa í Hafnarfirði, föður
Loga verkfræðings, Maríu, leik-
listarstjóra Ríkisútvarpsins, og
Bergljótar Soffíu bókmenntafræð-
ings.
Einar var sonur Andrésar, síð-
ar verslunarmanns á Drangsnesi,
og b. á Helgustöðum í Reyðarfirði
Runólfssonar vinnumanns. Móðir
Andrésar Runólfssonar var Kristín
Árnadóttir. Móðir Einars og Krist-
ins var Maria Elísabet Beck, dótt-
ir Nielsar Richards Beck, beyk-
is og verslunarmanns á Eskifirði,
bróður Hans Beck, hreppstjóra á
Sómastöðum, afa Eysteins Jóns-
sonar, fjármálaráðherra og for-
manns Framsóknarflokksins, og
dr. Jakobs, sóknarprests í Hall-
grímskirkju, föður Þórs veður-
fræðings og rithöfundanna Svövu
og Jökuls, föður rithöfundanna
Elísabetar, Illuga og Hrafns. Niels
Richard var sonur Christens Ni-
elsens Beck, faktors á Eskifirði og
kaupmanns í Vejle, og Elísabetar
Beck, systur, samfeðra, Þórarins,
b. á Krossi, afa Finns listmálara
og Ríkharðs myndskera Jónssona.
Elísabet var dóttir Richards Long,
verslunarstjóra á Eskifirði og ætt-
föður Longættar. Móðir Maríu
Elísabetar var Soffía Þorvalds-
dóttir, b. í Naustum Jónssonar.
Jófríður var dóttir Guðmund-
ar, b. á Helgavatni í Þverárhlíð
Sigurðssonar, b. í Höll, bróður
Þórdísar, langömmu Þorsteins
frá Hamri, föður Kolbeins blaða-
manns og séra Þóris Jökuls. Sig-
urður var sonur Þorbjörns, b. á
Helgavatni Sigurðssonar, og Mar-
grétar Halldórsdóttur, fróða á Ás-
bjarnarstöðum Pálssonar, langafa
Jóns, föður Halldórs stjórnarfor-
manns, föður Garðars, arkitekts
og fyrrv. húsameistara ríkisins.
Móðir Jófríðar var Anna Ás-
mundsdóttir, b. á Höfða i Þverár-
hlíð Einarssonar, b. á Einifelli Ey-
vindssonar.
Anna tekur á móti gestum á
heimili dóttur sinnar og tengda-
sonar að Esjugrund 48, á Kjal-
arnesi, laugardaginn 3. júlí, kl.
16.00-20.00.
Anna Einarsdóttir
fyrrv. verslunarstjóri máls og menningar