Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Blaðsíða 22
22 erlent 2. júlí 2010 föstudagur Hvítt fólk óskast til leigu Í Kína er leigumarkaður fyrir hvítt fólk. Þar þekkist að fyrirtæki vilji leigja hörundshvítt fólk í einn dag, yfir helgi, í vikutíma eða jafnvel heil- an mánuð eða tvo. Kínversk fyrir- tæki eru reiðubúin til að greiða hátt verð fyrir ljósa útlendinga sem eru reiðubúnir til að þykjast vera starfs- menn fyrirtækisins eða viðskiptafé- lagar. Af sumum er þetta fyrirkomu- lag kallað „hvíta manns útstilling“. En einnig er þetta þekkt sem „hvíti náunginn með bindið“-viðburður, „táknræna hvíta manns giggið“ eða einfaldlega „andlitsstarf“. Í grein Löru Farrar á vefsíðu CNN segir að í grundvallaratriðum snú- ist þetta um aldagamla túlkun Kín- verja á ásjónu og merkingu hennar. „Að hafa nokkra útlendinga á vappi í kring merkir að fyrirtækið búi að betri orðstír, eigi fé og hafi viðskipta- tengsl. Hvort sem þau raunveruleg eða ekki. Mikilvægara en lífið sjálft Rithöfundurinn Zhang Haihua, sem skrifaði bókina „Hugsaðu eins og Kínverji“, sagði: „Í Kína segjum við að andlit sé mikilvægara en lífið sjálft.“ Haihua sagði að fólk álíti að vestræn ríki séu betur stödd en önn- ur því þau séu svo þróuð og því haldi fólk að ef fyrirtæki geti ráðið útlend- inga hljóti það að vera vel statt fjár- hagslega og með mikilvæg tengsl í útlöndum. „Þess vegna, þegar þau vilja vekja hrifningu einhvers, kunna þau að grípa til þess ráðs að flíka útlendingi.“ En fyrirtæki þurfa ekki að vera með útlendinga á launaskrá allt árið um kring því ef í harðbakkann slær geta þau leigt sér einn slíkan. Í greininni segir frá bandarísk- um leikara, Jonathan Zatkin, sem býr í Beijing. Í fyrra þóttist hann vera varaforseti ítalsks skartgripafyrir- tækis sem hafði verið í samvinnu við kínverska skartgripaverslanakeðju í áratug. Zatkin fékk greidd 2.000 júan, sem svara til um 39 þúsund króna, fyrir að fljúga með nokkrum rúss- neskum fyrirsætum til smáborgar í Henan-héraði. Þegar hann kom þangað flutti hann ræðu við opnun skartgripaverslunar í borginni. Þrjú skilyrði Zatkin sagðist hafa verið uppi á sviði með borgarstjóranum. „Ég hélt ræðu um hve indælt það hefði verið að hafa verið í samvinnu við fyrirtækið í tíu ár og hve stoltir við værum yfir ár- angi okkar í Kína,“ sagði Zatkin. Skilyrðin fyrir þessu starfi eru ein- föld, vertu hvítur; ekki tala kínversku, eða talaðu alls ekkert nema þú sért beðinn um það og láttu líta út fyrir að þú sért nýstiginn úr flugvélinni. Þeir sem einna helst taka að sér störf af þessum toga eru atvinnulaus- ir leikarar eða fyrirsætur, enskukenn- arar í hlutastarfi eða aðrir þeir sem vilja ná sér í aukapening. „Það kemur fyrir að fyrirtæki vilji útlendinga á fundi og ráðstefnur, eða í matarboð til að brosa til viðskipta- vinanna og taka í hönd fólks,“ sagði í auglýsingu frá fyrirtæki sem heitir Leigðu „laowai“, eða Leigðu útlend- ing. Auglýsingin birtist á vefsíðunni beijinger.com. Í auglýsingunni sagði ennfremur: „Það eru miklir atvinnu- möguleikar fyrir fallegar stúlkur og karlmenn sem líta vel út í jakkaföt- um.“ Heimsókn frá lögreglunni CNN hafði samband við bandarísk- an leikara sem býr í Beijing. Sá notar dulnefnið Brad Smith því hann hef- ur farið flatt á því að nota sitt eigið nafn. Þegar CNN náði sambandi við Brad stóð hann fyrir utan fundar- herbergi á Ramada Inn í Hangzhou, 160 kílómetra fyrir utan Shanghaí. Hlutverk Brads þann daginn var að leika arkitekt frá New York og af- henda embættismönnum borgar- innar drög að teikningum að nýju safni. Fyrr um daginn hafði Brad farið yfir handritið með hinum kínversku „viðskiptafélögum“ á Kentucky Fri- ed Chicken-veitingastað. Ef Brad yrði spurður um eitthvað átti hann að þykjast segja eitthvað við „túlk- inn“ sem síðan átti að þykjast skilja hvað Brad hafði sagt. Fyrir einu og hálfu ári lenti Brad í vandræðum þegar lögreglan í Bei- jing bankaði upp á hjá honum eft- ir að fjármálafyrirtæki sem hann hafði unnið fyrir hafði svikið millj- ónir júan út úr öðru fyrirtæki. „Það Í Kína er ágætis eftirspurn eftir hvítu fólki sem fyrirtæki vilja leigja í einn dag eða tvo mánuði og allt þar á milli. Tilgangur- inn er að skapa ímynd fjárhagslegrar vel- gengni eða mikilvægra viðskiptatengsla við erlend fyrirtæki. kolbeinn Þorsteinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Ef Brad yrði spurður um eitt- hvað átti hann að þykj- ast segja eitthvað við „túlkinn“ sem síðan átti að þykjast skilja hvað Brad hafði sagt. tveir erlendir námsmenn að störfum VorufengnirtilaðþykjastveraerlendirfjárfestaríefnaverksmiðjuíShenyang. Mynd reuters Jonathan Zatkin t.h. Fékkgreittfyriraðþykjastveravaraforsetiítalsksskartgripafyrirtækis.Mynd Cnn Dattíþaðmeðvara- borgarstjóraDujiangyan Árið 2007 bjó Dagur Kristjánsson í borginni Chengdu í Kína. Dag einn hafði kínverskur vinur hans sam- band við hann og bar upp óvenju- lega bón. „Hann hringdi í mig og spurði hvort ég gæti ekki reddað svona fimm útlendingum og ég reddaði einhverjum vinum mín- um. Svo fórum við til Dujiangyan, sem er 600.000 manna borg, eins konar úthverfi af Chengdu. Þeg- ar við komum þangað var búið að stilla upp langborði og þar voru aðstoðarborgarstjórinn og ein- hverjir viðskiptamenn og okkur var skipað til borðs með þeim,“ segir Dagur. Síðar komst Dagur að því að viðburðurinn snérist um skipu- lagningu á einhverri alþjóðlegri hátíð og nærvera Dags og vina hans átti að sýna að útlendingar kæmu að skipulagningunni. Ítalskur gerviprestur Svæðissjónvarpið mætti á staðinn og mikið gert úr nærveru útlend- inganna enda gæðastimpill fyrir væntanlega hátíð að útlendingar væru bendlaðir við hana. Einnig hafði verið ráðinn tón- listarmaður frá Svíþjóð og var honum ætlað að skemmta þeim með tónlist. „Við borðuðum með þessum fyrirmönnum og fórum um kvöld- ið í bæinn með þeim og fengum okkur í glas, og allan tímann fylgdi Svíinn með,“ segir Dagur. Fyrir vik- ið fékk Dagur greitt sem svarar til tíuþúsund króna. „Þetta var ekki nema eitt kvöld, bara eitt fyllerí og svo var farið heim.“ Í Kína kynntist Dagur Ítala sem fékk greitt fyrir að klæða sig í prestskrúða og sjá um hjónavígsl- ur, og í brúðkaupsveislum var vin- sælt að vera með útlendar hljóm- sveitir. Dagur þekkti mann sem gerði sérstaklega út erlenda tónlistar- menn og var með á sínum snærum meðal annars afríska, mexíkóska og evrópska hljómsveit.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.