Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Page 8
Leikarinn og leikstjórinn Stefán
Jónsson hefur verið ráðinn í stöðu
prófessors við Listaháskóla Íslands
þrátt fyrir að hafa hvorki lokið meist-
araprófi né doktorsgráðu. Þess í
stað taldi sérstök matsnefnd skól-
ans reynslu hans og þekkingu koma
í stað menntunar og því hlaut hann
stöðuna.
Ásamt því að ráða prófessor í
arkitektúr réð Hjálmar H. Ragnars-
son, rektor Listaháskóla Íslands,
Stefán í stöðu prófessors í leiklist
frá og með 1. ágúst næstkomandi.
Níu umsækjendur voru um starfið.
Þriggja manna dómnefnd, sem skip-
uð var þeim Torfa Tulinius, Kristínu
Jóhannesdóttur og Stefáni Baldurs-
syni, mat sjö þeirra hæfa og þar af
fjóra „vel hæfa“ til að gegna starfinu.
Miðað var við starfssvið og skyldur
eins og starfið var auglýst af hálfu
skólans. Þessir fjórir voru kallaðir í
viðtöl og Stefán á endanum ráðinn.
Átti von á gagnrýni
Hjálmar rektor er virkilega ánægður
með ráðningu Stefáns en viðurkenn-
ir að hann hafi átt von á því að ráðn-
ingin yrði gagnrýnd. Þegar kemur
að listum telur hann afar mikilvægt
að horfa til reynslu, ekki síður en til
menntunar. „Stefán hefur starfað hjá
okkur eiginlega frá stofnun skólans,
bæði sem stundakennari og fasta-
kennari. Undanfarin ár höfum við
ekki ráðið í þessa stöðu en gerðum
það nú. Ráðningarferill skólans er
eftir mjög hörðum reglum þar sér-
skipuð nefnd fer yfir hæfisskilyrði
umsækjenda,“ segir Hjálmar.
„Dómnefndin mat reynslu og
þekkingu Stefáns til jafns við meist-
arapróf. Samkvæmt því uppfyll-
ir hann öll formleg skilyrði og var
dæmdur vel hæfur ásamt þremur
öðrum. Úr þeim hópi valdi ég svo
eftir viðtöl með öllum. Við fórum al-
gjörlega eftir öllum reglum því fer-
illinn er mjög formlegur og ég réð
algjörlega samkvæmt mati dóm-
nefndar.“
Ekki hrifinn
Gísli Már Gíslason, formaður Félags
prófessora við ríkisháskóla, hefði
viljað að gerðar væru sömu kröfur
við ráðningu prófessora hjá einka-
háskólum og hjá ríkisháskólum.
Aðspurður finnst honum reynsla
ekki koma í stað menntunar. „Kröf-
ur okkar eru fastmótaðar. Þær gera
ráð fyrir því að prófessor hafi lok-
ið doktorsprófi í sinni fræðigrein, að
viðkomandi hafi unnið mjög lengi
að rannsóknum og fengið þær birt-
ar í virtum tímaritum og í þriðja lagi
að viðkomandi hafi langa kennslu-
reynslu á háskólastigi. Reynsla kem-
ur ekki í stað menntunar. Ég tel æski-
legt að Listaháskólinn gerði sömu
kröfur,“ segir Gísli Már.
Aðspurður viðurkennir Hjálmar
að meðal annarra umsækjenda hafi
verið að finna einstaklinga með
meiri menntun en Stefán. Hann segir
það nýtilkomið að gerðar séu kröfur
um prófgráður í listum. „Í listheim-
inum eru það tiltölulega ný fyrirbæri,
þessar formlegu prófgráður, þannig
að við verðum að gera matið út frá
menntun og auðvitað ekki síst út
frá reynslu. Ég átti alveg von á gagn-
rýni. Við erum mjög meðvituð um
að virða menntun fólks en það þýð-
ir ekkert að fá einhvern inn í prófess-
orsstöðu sem aldrei hefur leikstýrt.
Stefán hefur það svo sannarlega því
hann hefur afburðamikla reynslu og
er því vel að þessu kominn. Ég held
að það sjái það allir að ráðning hans
sé mjög lógísk,“ segir Hjálmar.
Deilir við jónínu
n Matthías Halldórsson aðstoð-
arlandlæknir lætur af störfum
nú um mánaðamótin. Undanfar-
ið hefur hann
staðið í opinber-
um deilum við
Jónínu Bene-
diktsdóttur eft-
ir að hann lýsti
yfir efasemdum
um gagnsemi
detox-með-
ferðar hennar.
Jónína hefur verið harðorð í garð
Matthíasar og meðal annars hótað
honum og embætti landlæknis
málsókn láti hann ekki af því sem
hún kallar atvinnuróg. Matthías
snýr sér nú alfarið að geðlækning-
um á Landspítalanum.
BeneDikt tengDur
HraðBraut
n Málefni Menntaskólans Hrað-
brautar vöktu nokkra athygli
í vikunni. Þó hefur ekki áður
komið fram að
einn tiltekinn
landsþekktur
maður teng-
ist skólanum.
Þetta er Bene-
dikt Sveins-
son, forstjóri
og faðir Bjarna
Benediktsson-
ar formanns Sjálfstæðisflokksins.
Benedikt situr í varastjórn Hrað-
brautar. Miðað við hverjir sitja
í stjórn skólans hlýtur þetta að
þýða að Benedikt tengist Ólafi H.
Johnson skólastjóra. Hugsanlegt
er að þessi tengsl séu í gegnum
Garðabæ, þar sem þeir báðir búa,
eða í gegnum Sjálfstæðisflokkinn
og jafnvel hugsanlega Frímúrara-
regluna en skrafað hefur verið um
að báðir séu meðlimir í samtökun-
um dularfullu.
engeyingar í sögu
HraðBrautar
n Annar Engeyingur tengist reynd-
ar líka sögu Hraðbrautar. Þetta
er Björn Bjarnason, fyrrverandi
menntamála-
ráðherra, en
hann tryggði
Hraðbraut ríf-
leg fjárframlög
frá ríkinu þeg-
ar skólinn var
opnaður árið
2003. Ef Björns
hefði ekki not-
ið við hefði Hraðbraut því líklega
aldrei verið opnuð. Tengingin á
milli Benedikts og Björns er svo
auðvitað sú að þeir eru náfrænd-
ur, bræðrasynir, en Benedikt faðir
Björns og Sveinn faðir Benedikts
voru bræður. Því gæti verið auð-
velt að smíða samsæriskenning-
ar um pólitískar tengingar Ólafs,
Hraðbrautar og Sjálfstæðisflokks-
ins og að þær hafi hjálpað til við að
tryggja Ólafi peninga fyrir skólann.
sandkorn
8 fréttir 2. júlí 2010 föstudagur
Stefán Jónsson, leikari og leikstjóri, var nýverið ráðinn í prófessorsstöðu við Lista-
háskóla Íslands en hann er hvorki með meistarapróf né doktorsgráðu. Bæði valnefnd
skólans og rektor telja reynslu hans vega það upp. Formaður félags prófessora harmar
að ekki hafi verið gerðar sömu kröfur og hjá ríkisháskólunum.
Reynsla metin í
stað menntunaR
Ég held að það sjái það allir að
ráðning hans sé mjög
lógísk.
trauSti HafStEinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Stefán Jónsson lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1984. Að því loknu nam hann
við útlendingadeild Université Paul
Valéry í Frakklandi þar sem hann
lærði frönsku og um franska menn-
ingu. Síðar útskrifaðist Stefán sem
leikari frá Guildhall School of Music
and Drama í Lundúnum árið 1989.
Starfsreynsla hans er víðtæk, bæði
sem leikari, leikstjóri og kennari.
Á árunum 2003 – 2005 starfaði
hann við leikstjórn hjá Borgarleik-
húsinu og árin 2005 – 2008 hjá Þjóð-
leikhúsinu. Þá hefur hann sett upp
sýningar með ýmsum sjálfstæðum
leikhúsum og Nemendaleikhúsi
Listaháskólans. Stefán hefur hlotið
ýmsar viðurkenningar og verðlaun
fyrir listræn störf sín, meðal annars
Grímuna 2003 fyrir bestu leikstjórn.
Sem leikari starfaði Stefán lengst
hjá Þjóðleikhúsinu, eða frá 1992 –
2002, en áður hafði hann leikið hjá
Borgarleikhúsinu um þriggja ára
skeið. Þá hefur Stefán komið fram
sem leikari í fjölda kvikmynda, sjón-
varpsmynda og í útvarpsleikritum.
Stefán gegndi stöðu fagstjóra
leikarabrautar við Listaháskólann
frá 2008 og kenndi áður sem
stundakennari í leiktúlkun frá stofn-
un deildarinnar.
trausti@dv.is
Ferill nýráðins prófessors:
ráðinn AfvalnefndListaháskólans
varStefántalinnvelhæfurogreynsla
hansúrleikhúsheiminummetintil
mótsviðmenntunannarravelhæfra
umsækjenda.
Ánægður Hjálmarrekturervirkilega
ánægðurmeðaðhafaráðiðnýja
prófessoraogsegirreynslunaskipta
verulegumáliþegarkemuraðlistum.