Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Side 14
100 MILLJARÐAR
ERU LÍTIÐ BROT
Gjaldþrot
SeðlabankanS
175 milljarðar
Í aðdraganda bankahrunsins lánaði Seðlabanki Íslands
bönkum og fjármálafyrirtækjum gríðarlega háar fjárhæðir í
þeirri von að bankarnir myndu ná að standa af sér erfiðleikana.
Bankarnir urðu aftur á móti gjaldþrota og Seðlabankinn varð
tæknilega gjaldþrota. Heildarkostnaður ríkissjóðs af gjaldþroti
Seðlabankans er um 175 milljarðar króna.
14 fréttir 2. júlí 2010 föStudaGur
Heildarkostnaður vegna afnáms gengistryggingar lána sem almenningur tók nemur um 100 millj-
örðum króna. AGS hefur áhyggjur af stöðunni. Auðmenn hafa þó fengið hundruð milljarða króna
afskrifaða án þess að verða persónulega gjaldþrota. Þá þurfa Íslendingar að borga 300 milljarða
Icesave-skuld og 196 milljarða í framlög til nýju bankanna.
IceSave-Skuld
lágmark
300 milljarðar
Íslendingar gætu þurft að greiða Bretum og Hollendingum að lágmarki
300 milljarða króna til þess að bæta það tjón sem hlaust af töpuðu fé á
Icesave-innlánsreikningum Landsbankans. Það þýðir að hver einasti Íslendingur
þarf að taka á sig tæplega milljón krónur vegna falls Landsbankans.
framlöG
ríkISSjóðS tIl
vIðSkIptabankanna
196 milljarðar
Kostnaður skattgreiðenda vegna eiginfjárframlaga ríkisins
til viðskiptabankanna þriggja, Arion banka, Íslandsbanka
og Landsbankans, er 196 milljarðar króna. Það gera um 733
þúsund krónur á hvern Íslending.
afSkrIftIr
ólafS ólafSSonar
88 milljarðar
Skuldir Kjalars, sem námu 88 milljörðum króna,
við gamla Kaupþing voru nánast afskrifaðar að
fullu. Skuldir Kjalars við bankann námu um 115
milljörðum króna í september 2008. Arion banki
gerði í vetur samning við Ólaf um að hann héldi
Samskipum en hann og stjórnendur Samskipa
eiga nú skipafélagið að fullu.
afSkrIftIr björGólfS
GuðmundSSonar
3 milljarðar
Björgólfur átti stærstan hlut í Árvakri,
útgáfufélagi Morgunblaðsins, sem
var skuldum vafið þegar hann missti
félagið í hendur bankans. Talið er að
skilanefnd Glitnis og Íslandsbanki
hafi afskrifað rúmlega þrjá milljarða
króna af um það bil fimm milljarða
skuldum félagsins áður en nýr
eigendahópur keypti Árvakur.
afnám GenGIS-
tryGGInGar
lána
100 milljarðar
Það gæti kostað 100 milljarða að afnema
gengistryggingar lána, sem hafa sligað
marga lántakendur. Það er aðeins hluti af
þeirri upphæð sem tæknilegt gjaldþrot
Seðlabanka Íslands kostaði.
afSkrIftIr
maGnúSar
krIStInSSonar
50 milljarðar
Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, fékk
um það bil 50 milljarða króna skuld afskrifaða eftir að hann
samdi við skilanefnd Landsbankans. Skilanefndin leysti
ekki til sín kvóta Magnúsar, sem var ekki í persónulegum
ábyrgðum fyrir langmestum hluta skulda sinna.
afSkrIftIr
bauGSfeðGa
30 milljarðar
Þegar 30 milljarða króna lán, sem 1998 ehf. tók hjá
Kaupþingi sumarið 2008, var fært frá skilanefnd
Kaupþings yfir til Nýja Kaupþings og nú Arion banka
var lánið metið á 17 milljarða. Miðað við vísitöluþróun
stóð lánið í 48 milljörðum í lok síðastliðins árs.
Munurinn er því um 30 milljarðar króna.
Talið er að það gætið kostað í heild-
ina um 100 milljarða króna að af-
nema gengistryggingu lána, eftir að
Hæstiréttur Íslands dæmdi í júní að
slíkt fyrirkomulag á lánum væri ólög-
legt. Þessi kostnaður myndi þá lenda
á fjármálafyrirtækjum, íslenska rík-
inu og á lántakendum. Sjálfur hefur
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra
sagt að versta niðurstaða í kjölfar
dóms Hæstaréttar myndi fela í sér
100 milljaðra króna kostnað fyrir rík-
issjóð.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur
einnig lýst áhyggjum af íslenska
bankakerfinu í kjölfar dómsins. Ef
þessi kostnaður við að leiðrétta hlut
almennings er settur í samhengi við
upphæðir sem nefndar hafa verið
í tengslum við skuldaafskriftir ein-
staka manna, þá breytist dæmið.
Þannig fékk Ólafur Ólafsson 88 millj-
arða afskrifaða svo hann gæti hald-
ið yfirráðum í Samskipum. Magnús
Kristinsson, útgerðarmaður og fjár-
festir, slapp einnig við að borga um
50 milljarða króna.
valgeir örn ragnarsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
framlaG ríkISInS tIl
SparISjóða kerfISInS
20 milljarðar
Fjárlög fyrir árið 2010 gera ráð fyrir 20
milljarða eiginfjárframlagi ríkissjóðs til
sparisjóðakerfisins. Fjármálaráðherra segir
þó að ekki liggi fyrir endanleg fjárhæð í því
sambandi.
afSkrIftIr
WernerSSona
135 milljarðar
Karl Wernersson og Steingrímur Wernersson voru í
hópi stærstu fjárfesta á Íslandi. Félög í þeirra eigu, svo
sem Milestone og Þáttur International, eru gjaldþrota
og aðeins lítið brot fæst upp í kröfur. Þá er félag þeirra
Svartháfur stórskuldugt og ekki útséð með framtíð
þess. Afskrifa þarf á annað hundrað milljarða króna af
skuldum þeirra.
D
v
g
r
a
FÍ
K
J
Ó
n
in
g
i