Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Blaðsíða 17
föstudagur 2. júlí 2010 fréttir 17
Stórhöfða 25 • simi 569 3100
Opið virka daga frá kl. 9 -18
Nálastungudýnan
• Eykur orkuflæði og vellíðan
• Er slakandi og bætir svefn
• Notkun 10-20 mínútur í senn
Heilsusamlegar
vörur
Verð 9.750 kr.
Bakteygjubrettið
• Eykur sveigjanleika
• Linar bakverki
Verð 7.950 kr.
Stuðningshlífar
• Einstök hönnun og gæði
• Bak, úlnliðs, ökkla- og hnéhlífar
www.eirberg.is
Hælsærisplásturinn
• Verndar fætur og hindrar
blöðrumyndun
• Vatnsheldur
– vörn gegn bakteríum
• Dregur úr óþægindum
og sársauka
Fæst í
apótekum
Airfree lofthreinsitækið
• Betra loft - betri líðan!
• Eyðir örverum og ryki
Verð frá 33.950 kr.
SKÓLASTJÓRINN SEM GEKK OF LANGT
Nokkuð ljóst er því að umræðan
um Hraðbraut er rammpólitískt mál.
Sjálfstæðis- og hægrimenn benda á
vinstrimenn og segja að umræðan sé
runnin undan rifjum vinstrimanna
á meðan vinstrimenn munu líklega
nota Hraðbraut sem dæmi um vafa-
samt einkaframtak og sem mótrök
gegn einkavæðingu í menntakerfinu.
Úttekt Ríkisendurskoðunar á starf-
semi skólans mun því líkast til verða
pólitískt bitbein þegar hún liggur fyr-
ir.
Gagnrýndur af kennurunum
Gagnrýni kennara Hraðbrautar á
Ólaf er þó tiltölulega ný af nálinni
samkvæmt heimildum DV og er alls
ekki byggð á athugunum þeirra á
fjármálum skólans. Óánægja þeirra
með Ólaf hófst fyrir um tveimur
árum þegar kennararnir komust að
því að starfskjör þeirra, bæði laun og
aðrar launatengdar greiðslur, væru
ekki í samræmi við það sem geng-
ur og gerist í öðrum menntaskól-
um. Þegar kennararnir báðu Ólaf að
staðfesta aðild þeirra að Kennara-
sambandi Íslands með undirskrift
sinni neitaði hann því á þeim for-
sendum að hann treysti ekki sam-
bandinu vegna fyrri samskipta hans
við það, sem vísað er til hér að ofan.
Gagnrýni kennaranna snérist
einnig um að Ólafur sinnti starfi sínu
ekki sem skyldi og gengu þeir á fund
hans með undirskriftalista þar sem
þeir gagnrýndu fjarveru hans frá
skólanum.
Fyrr á þessu ári funduðu kenn-
ararnir með Ólafi til að reyna að fá
hann til að staðfesta aðild þeirra
að sambandinu. Þeir fundir leiddu
meðal annars til þess að Ólafur snéri
vörn í sókn og rak tvo kennara sem
höfðu beitt sér fyrir aðildinni að
Kennarasambandinu. Annar kenn-
aranna, Hilmar Pétursson, fékk eng-
ar skýringar á uppsögninni. Kennar-
ar skólans gengu á fund Ólafs með
undirskriftalista þar sem þeir mót-
mæltu uppsögnunum á starfsmönn-
unum tveimur.
Nokkuð ljóst er hins vegar að
starfsmennirnir voru reknir fyr-
ir að krefjast aðildar að Kennara-
sambandinu enda hefði það þýtt að
Hraðbraut hefði þurft að komast að
samkomulagi við skólann um kjara-
samning. Slíkt hefði þýtt aukin fjár-
útlát fyrir skólann.
Frá því að þessir atburðir áttu
sér stað í mars hefur óánægjan auk-
ist meðal starfsliðs skólans og er ein
birtingarmynd hennar sú að að-
stoðarskólastjórinn sagði starfi sínu
lausu.
Ríkisendurskoðun og
samstarfssamningurinn
Tvennt mun væntanlega ráða úr-
slitum um framtíð Menntaskólans
Hraðbrautar á næstunni: Úttekt Rík-
isendurskoðunar og svo eins hvort
menntamálaráðuneytið endurnýjar
samstarfssamninginn við skólann í
lok þessa árs eða ekki.
Miðað við þær upplýsingar sem
fram hafa komið um fjármál skól-
ans og óánægju kennara Hraðbraut-
ar með eiganda og skólastjóra hans
verður að teljast afar ólíklegt að sam-
starfssamningurinn við Ólaf verði
endurnýjaður. Einnig kann að spila
inn í að mikill niðurskurður hefur
verið hjá hinu opinbera og herma
heimildir DV að jafnvel hafi stað-
ið til að endurnýja ekki samninginn
við Ólaf eingöngu á þeim forsend-
um að spara þyrfti fjármuni. Fréttir af
ástandinu í skólanum auka hins veg-
ar mjög á líkurnar á því að ekki verði
af endurnýjun því upp hefur komist
að framlögin frá ríkinu renna alls ekki
öll til skólastarfsins.
Ef samningurinn við Hraðbraut
verður ekki endurnýjaður þýðir það
væntanlega að skólinn mun þurfa að
leggja upp laupana í núverandi mynd
þar sem í rekstri hans er stólað svo
mjög á framlög frá ríkinu. Þá liggur
ekki ljóst fyrir hvað verður gert í mál-
efnum nemenda skólans og hvernig
þeir muni þá ljúka skólagöngu sinni.
Ein möguleg leið væri að starfrækja
skólann í einhvern tíma áfram en
taka ekki nýnema inn í hann. Þá væri
skólastarfinu sjálfhætt þegar búið
væri að útskrifa alla nemendur hans.
Erfitt er hins vegar að fullyrða hvern-
ig þetta verður gert en afar ólíklegt
er að rekstri Hraðbrautar verði hald-
ið áfram nú þegar meira er vitað um
starfsemi skólans síðastliðin ár.
Nú ætlaði Katr-ín Jakobsdóttir
í anda vinstri-grænna
að ganga af skólanum
dauðum.
ÓSLESIÐ
Eitt af því sem vakið hefur athygli við stjórn
Hraðbrautar er hversu margir af stjórnar-
mönnum skólans og Hraðbrautar ehf. hafa
verið nánir og tengdir Ólafi Hauki Johnson.
Til dæmis hefur systir hans, Helga Guðrún
Johnson, bæði setið í stjórn skólans og í stjórn
eignarhaldsfélagsins. Mágur hans, Pétur Björn
Pétursson, hefur verið stjórnarformaður skól-
ans, en það er sami maður og rak með honum
Sumarskólann á árum áður, og vinir hans
hafa setið í stjórn skólans, til dæmis Bjarni
Jónsson ljósmyndari. Kona Ólafs, Borghildur
Pétursdóttir, situr einnig í varastjórn skólans.
Í eignarhaldsfélagi skólans sitja nú í stjórn
Ólafur og kona hans.
Þeir sem starfa fyrir skólann og tengd
félög eru því flestir ef ekki allir nátengdir Ólafi.
Núverandi stjórn Hraðbrautar
samkvæmt stjórnarfundi 28. maí 2010:
n Pétur Björn Pétursson formaður
n Höskuldur Ásgeirsson
n Bjarni Jónsson
n Helga Guðrún Johnson
Náið sambaNd við Ólaf
Varastjórn:
n Borghildur Pétursdóttir
n Benedikt Sveinsson