Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Qupperneq 24
Einn göfugasti og flekklaus-asti maður á Íslandi í dag að mati Svarthöfða er Tryggvi Þór Herbertsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins. Á meðan
aðrir þingmenn flokksins segja af sér
þingmennsku og fara halloka í um-
ræðunni vegna gamalla synda fyrir-
hrunsáranna stendur þetta valmenni
keikt og má vera stolt af sínu.
Hvergi hefur skuggi fallið á þennan mikla mann í upp-gjörinu við hrunið og árin þar á undan. Aldrei hefur
neitt mál komið upp sem gæti mögu-
lega orðið til þess að menn krefjist
afsagnar Tryggva Þórs líkt og félaga
hans, Guðlaugs Þórs og Gísla Mart-
eins, sem þáðu milljónir í styrki. Svo
maður tali nú ekki um Þorgerði Katr-
ínu og Kaupþingsbrall hennar.
Öfugt við þessa syndaseli þáði Tryggvi Þór aldrei neina prófkjörsstyrki fyrir hrun, enda tók hann sem
betur fer ekki þátt í stjórnmálum fyrr
en eftir það. Á meðan aðrir sjálfstæð-
ismenn voru að betla peninga af stór-
fyrirtækjum og útrásarvíkingum sem
unnu gegn þjóðinni var Tryggvi að
fást við önnur og göfugri störf.
Fyrst var Tryggvi uppi í háskóla að reyna að bæta heiminn og Ísland með faglegum úttekt-um sínum á sviði hagfræði.
Eins og frægt er orðið gerðið hann
þjóðinni til dæmis mikið gagn árið
2006 þegar hann skrif-
aði skýrslu um fjármálaástandið á Ís-
landi sem var kostuð af Viðskiptaráði
Íslands þar sem mikið lof var borið á
íslenskar eftirlitsstofnanir.
Einnig vildi Tryggvi Þór vinna þjóðinni mikið gagn þetta sama ár þegar hann bað auðmanninn Björgólf Guð-
mundsson að borga undir sig sér-
staka rannsóknarstöðu í hagfræði
sem heita átti eftir Hafskipsmannin-
um fyrrverandi. Í þeirri stöðu ætlaði
Tryggvi Þór sér væntanlega að halda
áfram þeim tímamótarannsókn-
um sem greint var frá skýrslu hans,
rannsóknir sem væntanlega hefðu
lagt enn frekari grunn að íslenska
útrásarævintýrinu sem hann mærði
svo mjög.
En svo var íslenska þjóðin svo ólánssöm að missa Tryggva Þór úr þessari virtustu rík-isstofnun landsins og yfir til
fjárfestingabankans Askar Capital
þar sem Tryggvi reyndi enn frekar að
bæta heiminn með göfgi sinni. Auð-
vitað fékk Tryggvi Þór nokkur hundr-
uð milljóna kúlulán, jeppa og fleira
þegar hann hóf störf enda ekki auð-
velt verk eða öfundsvert að vera bjarg-
vættur Íslands í göfugum fjárfesting-
arbanka sem ætlar að sigra heiminn.
Og að sjálfsögðu tók hann sér lán hjá
einkahlutafélaginu sem kúlulánið var
inn í þegar hann skorti fé vegna fast-
eignaviðskipta.
Þegar spá Tryggva um fjár-málastöðugleika rættist ekki árið 2008 kom því engum á óvart að Geir H. Haarde réð
bjargvættinn til liðs við ríkisstjórnina
til að bjarga því sem bjargað yrði. Hver
annar hefði verið betri til starfsins en
Tryggvi sem ævinlega hafði starfað
þar sem neyðin var mest. Auðvitað
var það því ekki skrítið að Tryggvi Þór
keyrði áfram á jeppanum frá Askar og
þægi 16 milljónir í laun frá bankan-
um á meðan hann ráðlagði Geir um
heill þjóðarinnar. Bjargvættir eru
mikilvægir menn og eiga skilið allt hið
besta.
Og auðvitað var það ekki held-ur ekki skrítið að Tryggvi Þór fengi áfram greiddar á sjöttu milljón króna frá Ask-
ar Capital í fyrra, sama ár og hann var
kjörinn á Alþingi Íslendinga, enn og
aftur til að koma og bjarga málunum,
Sjálfstæðisflokknum og þjóðinni þeg-
ar komið var í óefni.
Svarthöfði ber mikla virðingu fyrir hæfileikum Tryggva Þórs og mannkostum og spyr sig iðulega að því hvað íslenska
þjóðin myndi gera ef hún ætti hann
ekki að í nauðum. Tryggvi Þór er nán-
ast sjálfkjörinn sem næsti formað-
ur Sjálfstæðisflokksins enda er hann
nánast eini þingmaður þeirra sem
ekki er laskaður af vafasömum mál-
um. Þvert á móti eru verk þessa bjarg-
vætts og saga eins göfug og góð og
axarsköft samflokksmanna hans eru
forkastanleg og siðlaus. Tryggvi Þór
mun koma þjóðinni á réttan kjöl líkt
og hann hefur alltaf gert.
Bjargvættur Íslands „... ríða fólkinu í
rassgat og við
verjum það.“
n Bubbi Morthens um þau
skilaboð sem ríkisstjórnin
sendi fjármálafyrirtækjum með nýlegum
tilmælum Seðlabanka og Fjármálaeftirlitsins. -
DV.is
„Við vorum bara að
skemmta okkur.“
n Fimm íslenskir karlmenn við lögregluna í
Mílanó á Ítalíu. Þeir skildu ekkert í því að þeir
væru handteknir fyrir að hoppa á bílum í miðbæ
borgarinnar. - DV.is
„Íslendinga hefur vantað
tónlistarhús í hundrað ár.“
n Ólafur Elíasson, listamaður og einn hönnuða
Hörpu. Hann segir það engu breyta um hrunið ef
húsið yrði rifið heldur verði að gera það besta úr
því sem komið er og læra af reynslunni. - Frétta-
blaðið
„Ég er handviss um að
hún rokki þetta.“
n Garðar Gunnlaugsson fótboltakappi um
eiginkonu sína Ásdísi Rán sem mun prýða
forsíðu búlgarska Playboy. - DV
„Eins og alltaf
hef ég rétt fyrir
mér.“
n Kári Stefánsson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar, um
mál byggingarfélagsins Eyktar gegn honum.
Eykt segir Kára ekki hafa greitt alla reikninga
sína en Kári er ekki sammála því. - DV
Anna og lúxusjeppinn
Anna Skúladóttir, fjármálastjóri Orkuveitu Reykjavíkur, á heiður skilinn fyrir að skila um það bil átta milljóna króna Benz-jeppa sem
almannafyrirtækið keypti handa henni á
reikning borgarbúa 12. maí síðastliðinn.
Þær skýringar sem hún færði eru hins vegar
til þess að draga úr göfuglyndi hennar.
Anna er fjármálastjóri fyrirtækis í al-
mannaeign og taldi sig ekki þurfa að svara
fyrir ákvarðanir sem varða fjármál fyrir-
tækisins, líkt og jeppakaup fyrir hana á
sama tíma og lagt var á ráðin um gjald-
skrárhækkun fyrir almenning. Anna hef-
ur reyndar margt til að svara fyrir og því
er slæmt að hún skuli hafa það viðhorf að
henni beri ekki að veita almenningi svör.
Orkuveitan er afar illa stödd fjárhagslega,
vegna fjármálalegra ákvarðana, og horfur
eru á að almenningur borgi 37% hærra verð
fyrir heita vatnið vegna þess. Engu að síður
vildi Anna ekki ræða þessi útgjöld við DV
eða aðra fjölmiðla, svo hægt væri að færa al-
menningi svörin.
Bréf Önnu til samstarfsmanna sinna í Orku-
veitunni útskýrir sýn hennar á hver ábyrgð
hennar sé. „Ég harma þá umræðu sem þessi
kaup hafa valdið Orkuveitu Reykjavíkur,“
skrifaði hún á innra net Orkuveitunnar. Hún
kaus að neita að tjá sig um málið opinber-
lega.
Stjórnendur Orkuveitunnar virðast að
mörgu leyti hafa litið á hana sem einkafyr-
irtæki. Þegar plottað var um sölu Reykjavik
Energy Invest, REI, hafði verið ákveðið að
stjórnendur Orkuveitunnar fengju að kaupa
í REI fyrir tugi milljóna króna á sérkjörum,
þar á meðal Anna fjármálastjóri og forstjór-
inn Hjörleifur Kvaran. Þetta er sama fólk og
ákvað að kaupa sér rándýran glæsijeppa á
kostnað Orkuveitunnar. Fjórir yfirmenn fyr-
irtækisins keyra um á jeppa á þess kostnað,
en þeir neita að upplýsa hverjir það eru og
hvað það kostar. Væntanlega þykir stjórn-
endum Orkuveitunnar það ekki koma al-
menningi við hvernig þeir nýta almannafé í
eigin þágu.
Lánshæfismat Orkuveitunnar er í rusl-
flokki, horfur neikvæðar. Óttast er að
greiðslufall geti orðið hjá Orkuveitunni.
Vegna þess möguleika er talið að Reykja-
víkurborg þurfi að hafa 12 milljarða króna
handbæra til að bjarga henni. Fólkið sem
stýrir henni hefur farið illa að ráði sínu.
Kostnaðurinn lendir á okkur. Sama fólk
harmar að rætt sé um að það kaupi sér lúxus-
jeppa á okkar kostnað.
Það sem var óeðlilegt var að kaupa millj-
ónajeppa handa fjármálastjóra almanna-
fyrirtækis í kröggum. Og það er ennþá óeðli-
legra að kvarta yfir því að sagt sé frá því. Það
viðhorf á ekki heima hjá stjórnendum al-
mannafyrirtækja. Þetta sýnir að vandamál-
ið er enn til staðar innan Orkuveitunnar.
jón trausti reynisson ritstjóri skrifar. Þetta er sama fólk og ákvað að kaupa sér rándýran glæsijeppa á kostnað Orkuveitunnar.
leiðari
svarthöfði
bókstaflega
24 umræða 2. júlí 2010 föstudagur
Hægri-grænn
þingmaður
n Guðmundur Franklín Jónsson,
þáttarstjórnandi á Útvarpi Sögu og
fyrrverandi verðbréfamiðlari á Wall
Street, hefur
stofnað nýjan
stjórnmála-
flokk. Flokkur-
inn fékk heitið
Hægri grænir og
er væntanlega
til mótvægis við
vinstri-græna.
Aðspurður í út-
varpsviðtali hverjir stæðu að stofn-
uninni með Guðmundi sagði hann:
„Fullt af fólki, ekki neinir svona
heimsfrægir Íslendingar.“ Þess ber þó
að geta að sá sem innleiddi hugtakið
„hægri-grænt“ í þjóðfélagsumræðuna
á Íslandi er einmitt hornreka þing-
maður. Hann heitir Illugi Gunnars-
son og er í leyfi frá þingstörfum. Ekki
hefur þó heyrst að hann hafi áhuga á
hinu nýja stjórnmálaafli.
Samúel ríS á ný
n Tímaritið Samúel er risið úr rekkju
eftir margra ára dvala. Tímaritið rís af
krafti og hefur boðað til mikillar feg-
urðarsamkeppni fáklæddra stúlkna
á netinu. Það er fornfrægi tímarita-
ritstjórinn Þórarinn Jón Magnússon
sem stýrir vefútgáfu Samúels. Litið
er á endurreisn Samúels sem tákn
um afturhvarf íslensks samfélags til
einfaldari tíma í kjölfar efnahags-
hrunsins. Endurreisn Samúels helst í
hendur við dauða erótíska tímaritsins
Bleikt og blátt, eða B og B. Það varð
hins vegar ekki efnahagshruninu að
bráð, heldur fyrst og fremst miklum
uppgangi femínisma síðustu ár og
tilheyrandi aðkasti sem það varð fyrir.
Talið er að endurreisn Samúels verði
skammvinn ef femínistar fara af stað.
gulli á bláþræði
n Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra, hefur tekið
þann pólinn í hæðina að þegja af sér
kröfur grasrótar
Sjálfstæðisflokks-
ins um að hann
segi af sér þing-
mennsku. Þannig
hefur Guðlaugur
farið þá leið að
hafa ýmist slökkt
á farsíma sínum
eða svara ekki
símtölum blaðamanna DV. Nú treystir
Guðlaugur á dvínandi minni kjós-
enda. Óvíst er hins vegar að þagnar-
aðferðin gagnist jafn vel og hún gerði
fyrir hrun.
gíSli marteinn
lafði
n Guðlaugur Þór Þórðarson má
þakka Bjarna Benediktssyni fyrir að
hann hangi enn þá inni á Alþingi þrátt
fyrir andstöðu
grasrótarinnar.
Gísli Marteinn
Baldursson á það
hins vegar klass-
ískri vanrækslu
stjórnmála-
manna að þakka
að hann situr
í borgarstjórn.
Ósamræmi er í kosningareglum til
Alþingis og til sveitarstjórna. Ef Gísli
hefði boðið sig fram til þings hefðu
yfir þrjú þúsund yfirstrikanir kjós-
enda Sjálfstæðisflokksins dugað til að
færa hann niður.
sandkorn
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
framkvæmdaStjóri:
Bogi örn emilsson
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fréttaStjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
dv á netinu: Dv.IS
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur.
Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Ég reikna ekki
með því. Mér
finnst ágætt að
aðrir sjái um að
ferðast um þessa
helgi,“ segir
SIGurður
HelGaSon, hjá
umferðarstofu.
Nú er að ganga í
garð ein mesta
ferðahelgi
sumarsins.
reynslan hefur sýnt að þá geti verið
sérstaklega þung umferð til og frá
höfuðborgarsvæðinu. umferðarstofa
leggur áherslu á að fólk keyri á
löglegum hraða og í samræmi við
aðstæður hverju sinni. umferðarstofa
ráðleggur þeim sem geta að ferðast
utan helsta umferðartímans til að
komast hjá löngum röðum.
leggur þú land
undir fót um
helgina?
spurningin